Morgunblaðið - 15.06.2002, Blaðsíða 18
LANDIÐ
18 LAUGARDAGUR 15. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
EKKI fór framhjá neinum í blíð-
viðrinu á Hellnum þegar börn
fóru skyndilega að synda og baða
sig í höfninni. Þarna voru á ferð
krakkar úr 5. bekk Grunnskólans
á Hellissandi sem létu það ekkert
á sig fá þótt sjórinn væri dálítið
kaldur heldur nýttu sér sólar-
geislana til að verma sig þegar
þau komu uppúr.
Sundspretturinn var góður
endir á frábærri óvissuferð sem
umsjónarkennari þeirra, Anna Ýr
Böðvarsdóttir, og nokkrar mæður
úr foreldrafélaginu höfðu skipu-
lagt fyrir krakkana.
Dagurinn hófst með ferð á Snæ-
fellsjökul og svo vel hafði ferða-
áætlun verið haldið leyndri að
krakkarnir höfðu ekki hugmynd
um að snjógallarnir þeirra væru
með í för þegar kom að Jöklinum,
enda höfðu mæðurnar laumað
þeim í bílana þegar þau sáu ekki
til. Eftir velheppnaða troðaraferð
á Jökulinn var haldið í fjöruna á
Hellnum þar sem grillaðar voru
pylsur og þeim rennt niður með
gosi. Eftir matinn og ýmsa leiki í
fjörunni var farið að kanna hitann
á sjónum og þótt sumir væru hug-
aðri en aðrir til að byrja með voru
þau Sigurður Sveinn, Albert
Fannar, Magnús Darri, Guð-
mundur, Tanja Eydís, Lísa Dögg
og Aldís Eva öll áður en yfir lauk
búin að taka sundsprett eða vaða
um í höfninni. Þau voru líka öll
sammála um að þetta væri æðis-
leg útskriftarferð.
Óvissuferð
í blíðunni
Morgunblaðið/Guðrún Bergmann
Þeir Sigurður Sveinn, Albert
Fannar, Magnús Darri og
Guðmundur syntu í Hellna-
höfn í veðurblíðunni.
Hellnar
Í ANNARRI atrennu lenti flugvél
Flugfélags Íslands á Grímseyjar-
flugvelli með forsætisnefnd Alþingis
innanborðs. Langur þokukafli yfir og
um Grímsey hefur aftrað eðlilegum
flugsamgöngum undanfarna daga.
En það var bjart yfir Halldóri Blön-
dal forseta Alþingis er hann mætti
með nefndarmönnum forsætisnefnd-
ar, þeim Guðmundi Árna Stefánssyni,
Guðjóni Guðmundssyni, Ísólfi Gylfa
Pálmasyni og Árna Steinari Jóhanns-
syni. Auk þessara voru með í för Frið-
rik Ólafsson, Þorsteinn Magnússon
og eiginkonur Halldórs og Friðriks,
þær Kristrún Eymundsdóttir og
Auður Júlíusdóttir.
Forsætisnefndin heldur árlega
einn fund utan Reykjavíkur. Halldór
Blöndal sagði að nú hefði Grímsey
orðið fyrir valinu, því hann hefði
áhuga á því að forsætisnefndin gæti
kynnt sér sérstakar aðstæður Gríms-
eyjar, náttúrufegurð og fuglalíf. Hall-
dór vildi líka að nefndin kynntist hin-
um skemmtilega brag sem fylgir
íbúunum, höfðingsskap þeirra og vel-
vild. Halldór sagði að það mætti ekki
gleyma því að Grímsey væri lífhöfn
og grunnlínupunktur landhelginnar.
Þannig að það ríður á því að byggð
haldist í eyjunni.
Fjögur börn tóku á móti forsæt-
isnefndinni þegar hún lenti og öll
héldu þau með Liverpool, sá yngsti
Gunnar Atli Snorrason, tveggja ára.
Atvinnurekstur stendur traustum
fótum í Grímsey. Eyjan býr yfir töfr-
um sem gera það að verkum að fólk
vill búa hér. Halldóri fannst ekki síst
merkilegt að meðalaldur íbúa er 30
ár. Og eftir því sem forseti Alþingis
kemur oftar til Grímseyjar þykir hon-
um vænna um eyjuna og eyjar-
skeggja.
Forsætisnefnd fundar
á heimskautsbaug
Grímsey
Morgunblaðið/Helga Mattína
Nefndin, f.v. Guðjón Guðmundsson, Halldór Blöndal, Ísólfur Gylfi
Pálmason, Árni Steinar Jóhannsson og Guðmundur Árni Stefánsson.
ÞAÐ vakti athygli við skólaslit
Flúðaskóla, sem fóru fram föstu-
daginn 7. júní, að einn nemandi
varð hæstur í öllum greinum í
samræmdum prófum í 10. bekk.
Þetta er Dórótea Høeg Sigurð-
ardóttir frá Hæli. Hún hlaut 9,5 í
íslensku, 9,0 í ensku, 9,5 í dönsku,
9,5 í raungreinum og 8,5 í stærð-
fræði. Þetta er frábær árangur og
hlaut hún bókaverðlaun fyrir
hverja grein.
Í spjalli við fréttaritara þakkaði
hún námsárangurinn foreldrum
sínum, hve dugleg þau hefðu verið
að hjálpa sér við námið. Einnig að
móðir hennar, sem er dönsk, hefði
kennt sér dönsku þegar hún var
barn. Dórótea sagði að nú tæki
Fjölbrautaskóli Suðurlands við
næstu árin. Þess má einnig geta að
hún hefur lokið fjórða stigi í fiðlu-
leik við Tónlistarskóla Árnesinga.
Þá er hún einnig mjög áhugasöm
hestamanneskja, svo sem hún á
kyn til, og hefur margsinnis hlotið
verðlaun á þeim vettvangi.
170 nemendur
Í vetur stunduðu 170 nemendur
nám í skólanum og 22 kennarar
komu að kennslunni, þó ekki allir í
fullu starfi. Valgarður Lyngdal
Jónsson aðstoðarskólastjóri gegndi
stöðu skólastjóra síðastliðinn vetur
í stað Jóhönnu S. Vilbergsdóttur
skólastjóra, sem var í barneign-
arleyfi. Í skólaslitaræðu sinni sagði
Jóhanna að hún væri ánægð með
árangur nemenda, einkum árang-
ur í íslensku, sem er vel yfir lands-
meðaltali. Hún beindi máli sínu
einkum til þeirra 18 nemenda sem
nú útskrifuðust úr 10. bekk. Nú
tæki við nýr áfangi í lífi þeirra og
óskaði hún þeim farsældar.
UNDANFARIN ár hefur Stefanía
Freysteinsdóttir íþróttakennari
staðið fyrir námskeiðum í ungbarna-
sundi í innisundlaug Fjórðungs-
sjúkrahússins í Neskaupstað. Nám-
skeiðin hafa verið vel sótt en til að
byrja með voru það þó fyrst og
fremst Norðfirðingar sem sóttu
námskeiðin.
Í vetur hafa vinsældir námskeið-
anna aukist svo um munar, sérstak-
lega meðal íbúa frá öðrum þéttbýlis-
stöðum á Austurlandi. Nýbakaðir
foreldrar láta sig ekki muna um að
aka með krílin sín frá Fáskrúðsfirði,
Egilsstöðum, Reyðarfirði og Eski-
firði til að taka þátt í fjörinu. Sú sem
lengst hefur ferðast til að prófa sund-
ið hjá Stefaníu kom alla leið frá Borg-
arfirði eystri, eða um 280 km leið.
Börnin sem koma á námskeiðin
eru á aldrinum tveggja mánaða til
eins árs og er óhætt að segja að flest
þeirra njóti þess verulega að vera í
vatninu. Börnin synda og fara í
hreyfileiki, kafa, standa í lófum for-
eldra sinna og gera hinar ýmsu
kúnstir fyrir stolta foreldra sína.
Aka 280 kílómetra
í ungbarnasund
Neskaupstaður
Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir
Nokkrir af þátttakendum í ungbarnasundinu hjá Stefaníu.
MARGIR telja að sauðfjárbændur
þurfi lítið eða ekkert að vinna
nema í kringum sauðburð og slátt
en raunin er samt önnur. Um leið
og sauðburði lýkur og kindurnar
fara út þarf fljótlega að reka þær
eða keyra með þær á vagni í sum-
arhagana til þess að friða túnin
fyrir slátt, því að stór hluti af án-
um færi ekki úr túninu allt sum-
arið ef hann fengi að ráða. Þegar
fréttaritari kom í heimsókn á bæ-
inn Götur í Mýrdal voru hjónin
Guðrún Einarsdóttir og Jón
Hjaltason að reka kindurnar sínar
úr túninu.
Ærnar reknar úr túninu
Fagridalur
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Hlaut fimm verð-
laun við skólaslit
Hrunamannahreppur
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsso
Dórótea Høeg Sigurðardóttir ásamt fjölskyldu sinni við skólaslitin,
systrunum Helgu og Jóhönnu, foreldrum, Sigurði Steinþórssyni og
Bolette Høeg Koch, og afa sínum Steinþóri Gestssyni.