Morgunblaðið - 03.08.2002, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 03.08.2002, Blaðsíða 23
Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100 S u m a rp lú s í sólin a S u a rp lú s Tyrkland Ver› frá á mann m.v. að 2 fullorðnir og 2 börn, 2ja-11 ára ferðist saman á mann ef 2 fullorðnir ferðast saman 72.350kr. staðgr. staðgr. 61.460kr. Innifalið: Flug, gisting á Pandora, ferðir til og frá flugvelli erlendis og allir flugvallarskattar. 30. september 11 dagar 10. október 10 dagar Krít Ver› frá á mann m.v. að 2 fullorðnir og 2 börn, 2ja-11 ára ferðist saman á mann ef 2 fullorðnir ferðast saman 77.300kr. staðgr. staðgr. 58.780kr. Innifalið: Flug, gisting á Malou, ferðir til og frá flugvelli erlendis og allir flugvallarskattar. 5. september 14 dagar VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 2002 23 ÞAU leiðu mistök urðu í frétt um af- komu Skeljungs hf. á fyrstu sex mán- uðum ársins í Morgunblaðinu í gær, að rangur myndatexti fylgdi grein- inni. Myndatextinn átti að hljóða svo: Styrking krónu gagnvart erlendum myntum og þá sérstaklega Banda- ríkjadal skilaði Skeljungi hf. umtals- verðum gengishagnaði og réð mestu um bætta afkomu félagsins á árinu. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. Leiðrétting NIÐURSTAÐA matsskýrslu, sem unnin hefur verið fyrir Samherja, er að kvíaeldi í Reyðarfirði feli ekki í sér veruleg óafturkræf um- hverfisáhrif eða veruleg spjöll á umhverfinu sem ekki er hægt að fyrirbyggja eða bæta úr með mót- vægisaðgerðum, í skilningi l. liðar 3. gr. laga nr. 106/2000. Samherji hf. hyggst reisa og reka fiskeldisstöð í Reyðarfirði og gengur verkefnið undir vinnuheit- inu Reyðarlax. Smálaxar verða keyptir úr eldisstöð á Íslandi og þeim sleppt í sjókvíar til áfram- eldis. Notast verður við laxastofn frá Stofnfiski hf. (Mowi, Bolaks), sem notaður hefur verið í eldi hér á landi um 15 ára skeið og hefur hlotið íslenska nafnið Saga. Miðað er við 6.000 tonna framleiðslu af eldisfiski á ári. Fyrirhuguð framkvæmd Reyð- arlax var úrskurðuð matsskyld 2. apríl 2001, af umhverfisráðherra. Eiginlegur undirbúningur mats á umhverfisáhrifum hófst í júní sama ár og stóð rannsóknar- og vinnslutími fram til maí 2002. Til- laga að matsáætlun var lögð fram 30. ágúst 2001 og var samþykkt af Skipulagsstofnun með minniháttar athugasemdum. Seinna um haustið 2001 var aftur óskað eftir að fá að breyta uppsetningu stöðvarinnar og fyrirhuguðu rekstrarformi frá því sem áður hafði verið gengið út frá í tillögu að matsáætlun. En þegar vinna við val og mat á stað- setningum var vel á veg komin var ákveðið að fækka fyrirhuguðum staðsetningum úr 4 í 3 og stækka þær hlutfallslega á móti og hafa eina staðsetningu sunnanmegin í firðinum og tvær norðanmegin. Með þessari aðgerð var fjarlægð milli kvíastaðsetninga aukin, en áður hafði verið gengið út frá því að hafa 4 staðsetningar norðan- megin í firðinum. Helstu niðurstöður matsskýrsl- unnar eru;  Kynþroska kvíalax sem slepp- ur úr sjókvíum leitar upp í lax- veiðiár í nágrenninu, yfirleitt inn- an 10 km frá eldisstað. Framlag kynbættra eldislaxa er minna við hrygningu en náttúrulegra laxa. Erfðaefni kvíalaxa og náttúrulegra laxa blandast auðveldlega en ekki hefur verið sýnt fram á neikvæð langtímaáhrif erfðablöndunnar. Þó skal fara varlega í að draga þá ályktun að hugsanleg neikvæð áhrif eldislaxa sé ekki til staðar. Almennt er talið að smit af völdum baktería eða veira í eldislaxi ógni ekki náttúrulegum laxastofnum.  Draga má þá ályktun að á nærsvæðum á botni við eldiskvíar verði uppsöfnun lífrænna efna sem muni leiða til talsverðra áhrifa. Eftir árs hvíld í lok tveggja ára eldislotu munu svæðin jafna sig að því sem næst öllu leyti. Vegna mikilla þynningaráhrifa má draga þá ályktun að ekki verði um sam- legðaráhrif uppspretta næringar- og lífrænna efna að ræða á fjörð- unum.  Ekki er talið að sammögn- unaráhrif verði með eldi á öðrum fjörðum Austfjarða.  Fjörulífríki í Reyðarfirði er ekki sérstakt eða fjölbreytt á landsvísu.  Hafsvæðin í firðinum eru talin þola hlutfallslega mikla eldisfram- leiðslu og mat á staðsetningum gefi til kynna að þær henti vel til sjókvíaeldis.  Talið er að fyrirhugað laxeldi muni hafa jákvæð áhrif á byggða- þróun og samfélagið í heild. Kvíaeldi í Reyðar- firði felur ekki í sér veruleg spjöll Morgunblaðið/RAX Samherji kynnir skýrslu um umhverfis- áhrif fyrirhugaðrar starfsemi Reyðarlax SPRON spáir 0,1% lækkun á vísi- tölu neysluverðs milli mánaða, en Hagstofa Íslands mun næst birta vísitölu neysluverðs 13. ágúst næstkomandi. Lækkun vísitöl- unnar samsvarar 1,2% verðlækk- un á ársgrundvelli. Gangi spá SPRON eftir verður vísitala neysluverðs 222,3 stig miðað við verðlag í byrjun ágúst. Tólf mán- aða verðbólga myndi þá halda áfram að lækka og yrði um 3,6%. Þetta kemur fram í fréttabréfi SPRON. Samkvæmt spá SPRON er stærsti einstaki þátturinn í breyt- ingu neysluverðsvísitölunnar miklar fataútsölur í júlímánuði, en þær eru taldar geta haft um 0,35% áhrif til lækkunar vísitölunnar. Þá er gert ráð fyrir hækkunaráhrif- um vegna hækkunar flugfargjalda en að bensínverð muni ekki hækka um næstu mánaðamót. SPRON spáir 0,1% lækkun vísi- tölu neysluverðs Afi/Amma allt fyrir minnsta barnabarnið Við erum á Skólavörðustíg 41, Þumalína
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.