Morgunblaðið - 03.08.2002, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 03.08.2002, Blaðsíða 27
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 2002 27 Dömustærðir: 42-44 Herrastærðir: 47-50 www.storirskor.is 10 67 /T A K TI K Opinn kynningarfundur þriðjudaginn 6. ágúst kl. 17.15 Alþjóðlega viðurkennt markaðsfræðinám Stjórnendaskóla HR og CIM ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S H IR 1 84 39 08 /2 00 2 Umsóknarfrestur er til 27. ágúst n.k. • Námið hefst 3. september • Allar nánari upplýsingar veitir Sigurþór Gunnlaugsson í síma 510 6280 og sigurthor@ru.is • www.stjornendaskoli.is • www.cim.co.uk Sérstakur gestur fundarins er Richard ShamblerBSc, FCIM, MIM frá Marketing Focus í Bretlandi en hann mun stuttlega kynnaThe Chartered Institude of Marketingog Postgraduate Diploma námið. Markaðsfræðinám fyrir stjórnendur og sérfræðinga með víðtæka þekkingu á markaðsfræðum og áralanga reynslu af markaðsstarfi. ANDRÉS Þór Gunnlaugsson gít- arleikari hefur verið við nám í djass- leik í Hollandi sl. vetur, en þangað sækja flestir Íslendingar nú um stundir í djassnám. Hér hefur hann leikið undanfarinn mánuð með hol- lenska trommaranum Rene Winter og ýmsum Íslendingum. Á þriðju- dagskvöldið var söng Kristjana Stef- ánsdóttir með tríói hans, en hún lærði lengst í Hollandi, og á bassann lék Tómas R. Einarsson. Efnisskráin bar yfirskriftina: Jazzrómantík – tónlist eftir 20. aldar tónskáld; og var prentuð. Það telst til tíðinda að koma á djasstónleika þar sem efnisskrá er prentuð þótt á flestum þeirra sé hvert lag ákveðið. Það er eins og menn lifi enn í þeirri gömlu rómantík að innblásturinn ráði hvaða ópus verði næst fyrir val- inu. Þó skal þess getið að nú um stundir kynna flestir djassleikarar ópusana jafnóðum, en misbrestur er á því oft á tíðum. Tónleikarnir hófust á ópusi eftir þann brasilíska Dori Caymmi, Like A Lover. Sætti hann engum tíðind- um, en síðan söng Kristjana Here, There And Everywhere eftir þá kumpána Lennon og McCartney af miklum þokka. Annað lag úr söng- bók Bítlanna var aukalag, Some- thing eftir George Harrison, og þriðji söngdansinn frá seinni hluta aldarinnar er poppið réð ríkum var The Masquerade eftir Leon Russell. Það er alltaf dálítill vandi að flytja þessi lög í djassi, en Kristjönu og tríóinu tókst að gefa The Masquer- ade fínt djassyfirbragð. Aftur á móti var Harrison dálítið flatur í túlkun Kristjönu og sama má segja um fal- lega ballöðu er Nat King Cole söng eftir að djassferli hans lauk, That Sunday That Summer. Kristjana mætti stundum huga betur að dýn- amíkinni. Aftur á móti var allt í lagi í ópus Tómasar R. við eigið ljóð: Ef það sé djass. Þetta má finna á diski Ólafíu Hrannar og Tómasar: Koss. Margir muna er Ólafía Hrönn söng þetta með miklu tilþrifum á RúRek- djasshátíðinni 1995 í Súlnasal Hótels Sögu, en tilþrifin voru enn magnaðri hjá Selfossdívunni í Listasafni Sig- urjóns Ólafssonar og lá við að tréfíg- úrurnar stigu af stalli og tækju að dansa. Sér í lagi var seinni útgáfan mögnuð, en á henni lauk þessum bráðskemmtilegu tónleikum. Á Landsýn Tómasar R. syngur Ragn- hildur Gísladóttir tónskáldskap hans við ljóð Laxness: S.S. Montclare; síð- an hef ég heyrt tónlist Tenu Palmer við sama ljóð. Á Landsýn söng Ragga þetta með leikrænum til- brigðum, en í listasafninu söng Kristjana lokaþáttinn, sem hefst á ,,Mannabörn eru merkileg,/mikið fæðast þau smá/þau verða leið á lestri í bók,/og langar að sofa hjá. Þetta er ljúf ballaða hjá Tómasi í þrískiptum takti og söng Kristjana hana undurvel. Svo voru fjórir söng- dansar klassískir: Once Upon A Summertime eftir Michel Legrand, þar sem vantaði herslumuninn upp á gæðatúlkun, Dream A Little Dream Of Me eftir Gus Kahn, sem byrjaði á skemmtilegum dúett Kristjönu og Andrésar Þórs, og útsetning tromm- arans Rene Winters á The Song Is You eftir Jerome Kern, þar small ekki allt saman, en í fyrsta aukalag- inu, Me One And Only Love, var allt á tæru. Það var mjög gaman að fá að heyra að nýju í Andrési Þór. Hann hefur greinilega tekið stórstígum framförum síðan hann hélt til Hol- lands og þótt stíll hans sé enn ekki mótaður lék hann vel í hinni klass- ísku gítarhefð er Barney Kessell og Jimmy Raney leiddu til hásætis í djassinum, hvor með sínum hætti. Sólóar hans voru vel uppbyggðir og tónninn tær og hreinn. Tómas og Rene studdu vel við Kristjönu og Andrés, sem var og þeirra hlutverk. Ljúfir tónleikar og skemmtileg- astir fyrir túlkun Kristjönu á Tómasi R. Rómantík frá liðinni öld – og hressilegur TRE DJASS Listasafn Sigurjóns Ólafssonar Kristjana Stefánsdóttir söngur, Andrés Þór Gunnlaugsson gítar, Tómas R. Ein- arsson bassi og Rene Winter trommur. Þriðjudagskvöldið 30. júlí. KRISTJANA STEFÁNSDÓTTIR OG TRÍÓ ANDRÉSAR ÞÓRS Vermharður Linnet SJÖFN Eggertsdóttir myndlist- armaður opnar sýningu á lands- lagsmálverkum í Galleríi Klaustri á Skriðuklaustri í dag. Sjöfn stundaði nám í Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1982–1986 og útskrifaðist úr málaradeild. Auk þess nam hún áður tvo vetur við Myndlistaskóla Reykjavíkur, einn vetur við Listaskólann Myndsýn sem Einar Hákonarson stjórnaði og síðan nokkra vetur hjá Sverri Haraldssyni listmálara. Sjöfn hefur sérhæft sig í portrettmálun og andlitsteikning- um og fæst aðallega við málun með olíu og vatnslitum. Hún hefur haldið nokkrar einkasýningar á höfuðborgarsvæðinu og á Egils- stöðum, auk þess að taka þátt í samsýningum. Hún rekur vinnu- stofu í Húsi handanna á Egilsstöð- um. Sýningin stendur til 16. ágúst og er opin á sama tíma og hús skáldsins, kl. 11–17 alla daga. Sjöfn sýnir í Galleríi Klaustri GARÐAR Jökulsson hefur opnað málverkasýningu í Eden í Hvera- gerði. Sem áður sækir Garðar við- fangsefni sín til náttúru Íslands, birtu hennar og lita. Á sýningunni nú eru 80–90 málverk, stór og smá, unnin með margvíslegum hætti. Listamaðurinn verður í Eden meðan opið er, en sýningunni lýkur 12. ágúst. Garðar Jök- ulsson sýnir í Eden Málverk eftir Garðar Jökulsson. Á SJÖUNDU tónleikum tónleikarað- arinnar Sumarkvöld við orgelið í Hallgrímskirkju á sunnudagskvöld, kl. 20, leikur ungur nýútskrifaður organisti, Guðmundur Sigurðsson. Hann leikur einnig á hádegistónleik- um í dag, laugardag, kl. 12. Guðmundur lauk meistaranámi í orgelleik í Princeton í Bandaríkjun- um og hér gefst áheyrendum tæki- færi til að heyra þá efnisskrá sem hann lék á lokaprófinu í orgelleik í vor, en Guðmundur er nýtekinn við starfi organista við Bústaðakirkju. Á hádegistónleikunum leikur Guð- mundur þrjú verk en tvö verkanna leikur hann einnig á tónleikunum annað kvöld: Tvær útsetningar á gömlum amerískum sálmum eftir breska djasspíanistann og tónskáldið George Shearing og verk eftir Charles Ives, Til- brigði um Eld- gamla Ísafold (Variations on America). Þriðja verkið er eftir franska barokk- tónskáldið Nicol- as de Grigny, Veni Creator (Kom skapari). Á tónleikunum annað kvöld ber framan af mest á evrópskum áhrifum úr námi hans hér á Íslandi en vægi bandarískra orgelbókmennta nær yfirhöndinni undir lokin. Tónleikarnar hefjast á barokktón- list, Prelúdíu í fís-moll eftir Þjóðverj- ann Dietrich Buxtehude og Veni Creator eftir Frakkann Nicolas de Grigny. Inn á milli heyrist Drop, Drop Slow Tears, op. 104 eftir banda- ríska tónskáldið Vincent Persichetti. Þetta er hugleiðing um sálmastef undir sama titli. Persichetti var eitt virtasta tónskáld Bandaríkjamanna á 20. öld, var m.a. lengi prófessor við Juilliard-skólann í New York. Til heiðurs franska tónskáldinu Maurice Duruflé, sem hefði orðið 100 ára á þessu ári, leikur Guðmundur Choral Varié sur le thème du Veni Creator úr op. 4. Síðustu verkin þrjú tengjast Bandaríkjunum á afgerandi hátt. Fyrst er Tvöföld fúga um America sem er lag sem við Íslendingar þekkj- um sem Eldgamla Ísafold eða breska þjóðsönginn, eftir John Knowles Paine. Bandarísk og evrópsk org- elverk í Hallgrímskirkju Guðmundur Sigurðsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.