Morgunblaðið - 03.08.2002, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 03.08.2002, Blaðsíða 50
50 LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ Sendiráð Bandaríkjanna Starfsmaður í stjórnmáladeild Sendiráð Bandaríkjanna óskar eftir að ráða stjórnmálafulltrúa. Stjórnmálafulltrúinn þarf að geta skrifað skýrslur og greinargerðir um stjórnmálaþróunina á Íslandi. Starfið krefst góðrar dómgreindar og getu til að mynda og viðhalda samböndum á stjórnmálasviðinu. Umsækjendur þurfa að uppfylla eftirfarandi skilyrði: ✭ Hafa fullkomið vald á enskri og íslenskri tungu. ✭ Háskólapróf er skilyrði, framhaldsnám æski- legt, t.d. í alþjóðasamskiptum. ✭ Hafa áhuga og þekkingu á alþjóðamálum og samskiptum Íslands og Bandaríkjanna. ✭ Hafa staðgóða þekkingu á íslenskum stjórn- og efnahagsmálum, sögu þeirra og þróun. ✭ Hafa þekkingu á Bandaríkjunum, helst gegn- um nám eða störf. ✭ Tölvukunnátta er nauðsynleg, einkum Micro- soft Word, ritvinnsla og notkun netsins. Umsóknareyðublöð má sækja í afgreiðslu sendiráðsins á Laufásvegi 21 frá kl. 8.00 þann 6. ágúst. Umsóknir verða að vera á ensku og þeim ber að skila fyrir kl. 17.00 þann 19. ágúst. Umsóknir, sem berast eftir þann tíma, verða ekki teknar gildar. Sendiráð Bandaríkjanna mis- munar ekki umsækendum eftir kyni, aldri eða kynþætti. Organisti Organista vantar til Ólafsfjarðarkirkju í hlutastarf. Upplýsingar gefur Guðrún í síma 466 2274 eða Elínborg í síma 466 2220. Fulltrúi á lögmannsstofu Óskað er eftir fulltrúa til starfa á lögmannsstofu þar sem starfa 5 lögmenn. Æskilegt er að um- sækjandi hafi málflutningsréttindi fyrir héraðs- dómi eða sé tilbúinn til að afla þeirra strax. Starfið felst m.a. í þjónustu við einstaklinga, stofnanir og félagasamtök auk allra almennra lögmannsstarfa. Umsóknir um starfið sendist til auglýsinga- deildar Mbl. fyrir 14. ágúst nk., merktar: „Lögmenn — 12569.“ Barngóð manneskja Óskum eftir einstaklingi til að gæta tveggja barna, 9 og 5 ára, og sinna léttum heimilisverk- um (ekki þrif), í u.þ.b. 15 klukkustundir á viku, síðdegis. Búum í Hlíðunum. Upplýsingar veittar í síma 695 8404 eða 511 0950, frá og með mánudeginum 5. ágúst. Lagerstarf Traust heildsölufyrirtæki í Reykjavík óskar eftir duglegum starfsmanni til lagerstarfa með lyft- arapróf þó ekki skilyrði. Umsóknir berist til auglýsingadeildar Mbl., merktar: „L — 12564“, eða á box@mbl.is fyrir 13. ágúst. Kennarastöður í Einholtsskóla skólaárið 2002-2003 Laun samkvæmt kjarasamningum LN og KÍ. Upplýsingar veitir Björk Jónsdóttir skólastjóri í síma 562 3711 eða 864 6807. Tölvupóstfang bjorkjo@ismennt.is. Áhugasamir umsækjendur vinsamlegast hafi samband sem fyrst en skólastarf hefst um miðjan ágúst. Umsóknir sendist til Einholtsskóla, Einholti 2, 105 Reykjavík. Kennarar, sérkennarar eða annað uppeldismenntað starfsfólk Óskað er eftir kennurum, sérkennurum eða öðru uppeldismenntuðu starfsfólki með reynslu af vinnu með unglingum, þó ekki skilyrði. Í Einholtsskóla eru 13-15 nemendur í 8.-10. bekk. Skólinn sér um kennslu og greiningu á námsþörf og skólaðstoð fyrir unglinga á Meðferðarstöð ríkisins að Stuðlum. Rík áhersla er lögð á góða samvinnu starfsfólks í Einholtsskóla. Um Einholtsskóla Einholtsskóli er sérskóli fyrir unglinga sem geta ekki, samkvæmt mati á heildaraðstæðum og þá sérstaklega vegna félagslegra erfiðleika, stundað nám í almennum skóla. Sérstaða skólans innan skólakerfisins felst m.a. í því að skólanámið er hluti af heildarferli þar sem unnið er að því að styrkja aðstæður nemandans utan skólans jafnhliða náminu. Skólinn er einn af grunnskólum Reykjavíkur. Í skólanum eru nemendur allsstaðar að af landinu og geta nemendur fengið fasta skólavist að því tilskyldu að þeir geti sótt skólann daglega. Sveitarstjóri óskast Sveitarfélagið Hörgárbyggð auglýsir eftir sveitarstjóra Sveitarfélagið var sameinað um áramótin 2000—2001 úr Glæsibæjarhreppi, Skriðuhreppi og Öxnardalshreppi. Íbúar eru tæplega 400. Við leitum að einstaklingi, sem hefur góða bók- haldsþekkingu, reynslu af stjórnunarstörfum og er lipur í mannlegum samskiptum. Innsýni í sveitarstjórnamál og háskólamenntun er æskileg. Umsóknarfrestur er til fimmtudagsins 15. ágúst 2002. Nánari upplýsingar gefa Helgi Steinsson í síma 861 8802 og Sigurbjörg Jóhannesdóttir í síma 461 4777 eða 897 4077, milli kl. 19.00 og 22.00. Umsóknir ásamt náms- og ferliskrá berist Helga Steinsyni, oddvita, Syðri-Bægisá, 601 Akureyri, merktar: „Sveitarstjóri." Læknir óskast Staða heilsugæslulæknis við Heilsugæslustöð- ina í Grundarfirði, H 1, er laus frá 1. sept. eða eftir samkomulagi. Nýtt húsnæði, búið bestu tækjum. Tæplega 1.000 íbúar. 12 km radíus innansveitar, 2 klst. til Reykjavíkur. Allar nánari upplýsingar gefa formaður stjórn- ar, Kristján Guðmundsson, s. 438 6874 og 896 3867, Valtýr Stefánsson Thors, afleysinga- læknir, og Hildur Sæmundsdóttir, ljósmóðir, í síma 438 6682. Í Grundarfirði er mikið mannlíf. Þar er stunduð hestamennska (skeiðvöllur og félagsheimili hestamanna), golfíþrótt (9 holu völlur), skotfimi (skotsvæði með leirdúfum), kajaksiglingar og fleira. Þar er mikið tónlistalíf (kórstarf, hljómsveit, jassband), sportklúbbur (enski boltinn), íþróttastarf með börnum, KFUM starf, kirkjuskóli, forvarnarstarf Tilveru (kennsla og fyrirlestrar) Húsvarsla og ræstingar Laus eru til umsóknar störf húsvarðar og ræsti- tæknis hjá stóru fjölbýlishúsi í Reykjavík. Leitað er eftir samhentum hjónum sem geta tekið að sér húsvörslu og ræstingar. Óskað er eftir starfsmanni í húsvarðarstarfið sem er með iðnréttindi í byggingariðnaði eða góða starfs- reynslu. Starfsmenn þurfa að vera vandvirkir, vinnusamir og áreiðanlegir, geta unnið sjálf- stætt og eigi gott með að umgangast fólk. Hús- næði fylgir starfinu. Umsóknir um störfin, ásamt upplýsingum um starfsferil, skal senda til auglýsingadeildar Mbl. fyrir 12. ágúst nk. merktar: „H — 12539“. Ertu íþróttakennari? Ef svo er getum við nýtt krafta þína við íþrótta- kennslu í Fellaskóla, Fellahreppi næsta vetur. Umsóknarfrestur er til 14. ágúst. Nánari upplýsingar veitir Sverrir skólastjóri (sverrir@fell.is) í síma 471 1015 eða 471 1748. R A Ð A U G L Ý S I N G A R HÚSNÆÐI ÓSKAST Hús eða íbúð í Hafnarfirði 3ja manna fjölskylda óskar eftir húsi eða íbúð í Hafnarfirði til leigu. Upplýsingar í símum 486 4537 og 699 8806. Fjölskylda á leið heim úr framhaldsnámi Fjögurra manna fjölskylda óskar eftir að taka á leigu íbúð/hús í haust á Högum/Melum, í Hlíðunum eða á Seltjarnarnesi. Við leitum eftir 3 til 4 svefnherbergjum og leigu til að minnsta kosti eins árs. Góðri umgengni og skilvísum greiðslum heitið. Erum reyklaus. Upplýsingar í síma 848 4104. Húsnæði óskast fyrir erlent fyrirtæki Virt fyrirtæki í alþjóðaviðskiptum vill kaupa húsnæði á Íslandi. Um er að ræða vandað íbúð- arhúsnæði, íbúðir eða sérbýli, einnig skrifstofu- húsnæði 3—400 m² og lagerhúsnæði. Áhugasamir leggið inn grunnupplýsingar á auglýsingadeild Mbl. eða á box@mbl.is merkt- ar: „90061“. Farið verður með allar upplýsingar sem algjört trúnaðarmál. KENNSLA CNM - NÁTTÚRLÆKNINGASKÓLINN REYKJAVÍK 3ja-4ra ára diploma nám Nám með vinnu/öðru námi Náttúrulækningar - Jurtalyf Smáskammtalækningar Næring - Kínversk læknisfræði Námskeið á háskóla- og doktorsstigi í heilbrigðisvísindum Lækningastofur í Kína, Indlandi og Sri Lanka Sími 699 2228 - MIÐTÚN 4, 105 RVÍK.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.