Morgunblaðið - 03.08.2002, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 03.08.2002, Blaðsíða 60
FÓLK Í FRÉTTUM 60 LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ         2. (!,5 *    "!,5 2   &6!7'&! MAÐUR skrifar Biblíuna bara einu sinni. Frank Miller veit allt um það enda á hann á samviskunni að hafa skrifað áhrifamestu og sumir segja bestu ofurhetjumynda- sögu allra tíma; The Dark Knight Returns. Það var fyrir 15 árum og hafa öll hans seinni verk, sem mörg hver hafa verið framúrskarandi, verið miðuð við þessa einu bók. Í The Dark Knight Returns segir Miller kröftuga sögu af Leðurblök- umaðurinn sem snýr aftur eftir að hafa lagt skóna (skikkjuna, grím- una eða eitthvað í þá áttina) á hill- una. Það gerir hann til að bjarga Gotham-borg frá ribbaldaklíkum sem tekið hafa völdin. Inn í þá sögu tvinnar hann kröftuga ádeilu á þá- verandi stjórnvöld, gagnrýni á inn- antóma sjónvarpsþvælu og það sem kannski helst kom á óvart; of- urhetjuhugsjónina sjálfa. Ofur- mennið fær rækilega á baukinn sem staðalmynd alls þess sem of- urhetjan hafði staðið fyrir fram að þeim tíma: drengskap, hreinlyndi, göfgi og ameríska drauminn. Leð- urblökumaðurinn er reiður gamall maður sem séð hefur í gegn um það hjóm sem umlykur hetju- ímyndina og veit að hetjurnar geta misnotað það vald sem þeim er gef- ið og snúist upp í andhverfu sína. Framhaldssögu DKR, The Dark Knight Strikes Again (eða DK2) hefur verið beðið með gífurlegri eftirvæntingu síðan af því fréttist að sagan væri í burðarliðnum. Margir af þeim sem líta á fyrri sög- una sem upphaf nýrrar sagnagerð- arstefnu í ofurhetjumyndasögum vonuðust eftir að Miller næði að töfra fram aðra viðlíka klassík fyrst hann hafði á annað borð haf- ist handa. Aðrir töldu (löngu áður en sagan kom út) að Miller hefði verið hollast að reyna ekki að end- urtaka leikinn heldur leyfa fyrstu sögunni að standa. Um þetta hafa spunnist miklar umræður á net- miðlum þar sem sjálfskipaðir myndasöguskríbentar hafa látið gamminn geisa. Nú eru bindin þrjú sem gera DK2 öll komin út og geta menn loks farið að meta söguna af eigin verðleikum. Jú, Miller sýnir sömu töfrana við teikniborðið; Varley (eiginkona Millers) litar myndirnar af slíkum krafti að annað eins er fáséð og til að fagna útkomunni fyllir Miller blöðin af mörgum ást- sælustu ofurhetjum sögunnar. En sagan sjálf er ekki nógu sterk, því er nú verr og miður. Meginstofninn er ekki ólíkur fyrra verkinu. Allt er að fara til skrambans og á þeim ár- um sem liðið hafa frá því að Leð- urblökumaðurinn lét lífið í DKR til að við hin gætum lifað sómasam- lega (kannast einhver við þetta?) hefur Bandaríkjunum hrakað veru- lega. Allt er fínt og fágað, það vant- ar ekki en í raun er hugsanakúg- unin alger og fólkinu haldið í skefjum með ömurlegri afþreyingu á skjánum. Vondu karlarnir sjá sér leik á borði til að hrinda sínum út- smognu og blóðugu áætlunum í framkvæmd. Við það getur Leð- urblökumaðurinn ekki unað og rís, svo að segja upp frá dauðum, til að leiðrétta það sem honum tókst ekki síðast. Hamagangur í öskjunni fylgir. Frásagnarmáti Millers er það sem ég átti erfiðast með að kyngja. Endalausar klippimyndir fylla síð- urnar og persónufjöldinn er slíkur að erfitt er að fá botn í framvind- una; sagan er ekki nógu hnitmiðuð. Miller vísar af miklum móð í mann- kynssögu ofurhetjanna frá DC (út- gáfufyrirtækið sem gefur út Ofur- mennið, Leðurblökumanninn, Flash, Green Lantern og fleiri frægar hetjur) og einungis fyrir hörðustu myndasögunerði að skilja allar vísanirnar. Miller er líka full hástemmdur. Lesandanum finnst að hverri síðu ætti að fylgja hljóð- brot úr Carmina Burana eða frá Wagner til að undirstrika drama- tíkina. Mætti kalla þetta óþarfa mikilfengleika; bestu sögurnar eru oft þær sem ná að koma dramanu á framfæri án flugeldasýninga frá Hjálparsveit skáta. Hæst glymur í tómri tunnu. Margar af þeim hlið- arsögum sem hann byrjar á ná ekki fullum botni og að lokum verður DK2 bara venjulegt (reyndar óvenju ruglingslegt) ofurhetjuæv- intýri þrátt fyrir allar væntingarn- ar og tilraunir til að gera söguna að einhverju stærra og meira. Þar liggur reyndar styrkur DK2 einnig því þrátt fyrir ofantalda meinbugi þá er DK2 frábær ofurhetjusaga. Það sem kemur henni í koll er samanburðurinn við fyrirrennarann. Ofurmennið, sem Leðurblökumaðurinn tekur hér aftur í bakaríið, hefur sjaldan verið glæsilegra og þá sérstaklega þegar það hefur séð villu síns vegar. Það er kærkomið að sjá margar eldri hetjur eins og The Atom eiga góða endurkomu og ofurlúðinn Captain Marvel fær loksins uppreisn æru á glæsilegustu opnu bókarinnar. Eins og áður sagði eru teikningarnar og litunin framúr- skarandi. The Dark Knight Strikes Again er vel þess virði að skoða ef litið er fram hjá óþarflega plássfrekum meiningum Millers um lífið og til- veruna og rembingnum til að gera eitthvað jafn frábært og DKR. Já, skáldgyðjan lætur ekki að sér hæða. MYNDASAGA VIKUNNAR Ofurfeðgin. Leðurblöku- maðurinn snýr aftur, aftur Myndasaga vikunnar er The Dark Knight Strikes Again eftir Frank Miller og Lynn Varley. DC Comics gefur út, 2002. Bækurnar fást í myndasöguversluninni Nexus og kostar hver um sig um 1000 krónur. Heimir Snorrason
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.