Morgunblaðið - 03.08.2002, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 03.08.2002, Blaðsíða 62
FÓLK Í FRÉTTUM 62 LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 2002 MORGUNBLAÐIÐ Stökkpallur til Portúgals 27. ágúst, 3. og 10. september Gistista›ur gefinn upp 2 dögum fyrir brottför. Möguleiki er a› fram- lengja dvöl. Skelltu flér í sólina - njóttu heitra sólardaga á gullnum ströndum í Portúgal. * Innifali›: Flug, flugvallarskattar, gisting, fer›ir til og frá flugvelli og íslensk fararstjórn. kr. *48.467 m.v. 2 fullor›na og 2 börn í viku Ver›: Nánari fer›atilhögun á www.urvalutsyn.is Lágmúla 4: 585 4000 • Hlí›asmára: 585 4100 • Keflavík: 420 6000 Akureyri: 460 0600 • Selfossi: 482 1666 • og hjá umbo›smönnum um land allt www.urvalutsyn.is Úrval-Úts‡n Betri fer›ir – betra frí ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S U RV 1 84 47 08 /2 00 2 kr. *59.900 m.v. 2 fullor›na í viku Ver›: JAKOB Frímann Magnússon er einn liðsmanna hljómsveitar allra landsmanna, Stuðmanna. Þrátt fyrir talsverðan lífaldur sveitarinn- ar slá þau hvergi slöku við og munu láta gamminn geisa í Galtalækjarskógi um verslunar- mannahelgina. Það er nóg að gera hjá Stuðmönnum sem endranær en hvernig skyldi Jak- ob Frímann hafa það í dag þrátt fyrir annríkið? Mér líður alveg einstaklega vel í sjálfum mér, þakka þér fyrir. Hvað ertu með í vösunum? Kalifornísk fjölvítamín sem ég ætla að sporðrenna með hádeg- ismatnum. Er mjólkurglasið hálftómt eða hálffullt? Ég drekk ekki mjólk. Ef þú værir ekki tónlist- armaður hvað vildirðu þá helst vera? Myndlistarmaður með grafíska hönnun og tölvumyndvinnslu sem sérsvið. Hefurðu tárast í bíói? Oftlega, ég er óttalega meyr eins og öll mín fjölskylda. Hverjir voru fyrstu tónleikarnir sem þú fórst á? Það voru gríðarlega skemmtilegir og eftirminnilegir tónleikar með Hljómsveit Svavars Gests í Nýja Bíói á Akureyri sirka árið 1963. Þau sómahjónin Svavar Gests og Ellý Vilhjálms ásamt Ragnari Bjarnasyni, Magnúsi Ingimars- syni, Reyni Jónassyni og fleiri af- burðamönnum fóru þarna aldeilis á kostum. Hvaða leikari fer mest í taugarnar á þér? Enginn sérstakur. Hins vegar finnst mér uppskrúfaður og til- gerðarlegur leikstíll fremur óskemmtilegur og tek undir með fjórmenningunum frá Liverpool sem sungu „Act naturally“. Hver er þinn helsti veikleiki? Það hefur stundum verið sagt um mig að ég ætlist til of mikils, bæði af sjálfum mér og öðrum. Það kann rétt að vera. Finndu fimm orð sem lýsa per- sónuleika þínum vel. Á björtu nótunum kemur mér í hug bjartsýni, glaðværð, umburð- arlyndi, hrifnæmi en jafnframt óttaleg óþolinmæði þegar svo ber undir. Bítlarnir eða Stones? Bítlar í barnæsku, Stones eftir það. Jagger er flottastur. Hver var síðasta bók sem þú last tvisvar? Furstinn eftir Macchiavelli. Hvaða lag kveikir blossann? „Black Market“ eftir Joseph Zaw- inul. Hvaða plötu keyptirðu síðast? Splunkunýja plötu með kornungri djasssöngkonu sem heitir Norah Jones og Arif Mardin stjórnaði upptökum fyr- ir. Hvert er þitt mesta prakkarastrik? Það var reyndar ekki hugsað sem prakkarastrik, en á afskekktu sveitahóteli fyrir mörgum árum sátu Stuðmenn að sumbli og til að spara mér sporin kastað ég vatni í tóma kampavínsflösku sem ég fann í herberginu. Ónefndur, en nokkuð þorstlátur, Stuðmaður kom þar aðvífandi síðar um nóttina, greip flöskuna traustataki og kneifaði hraust- lega úr henni áður en nokkur fékk rönd við reist. Honum varð sem betur fer ekkert meint af blessuðum. Hver er furðulegasti matur sem þú hefur bragðað? Ætli það hafi ekki verið réttur samansettur úr krókódíla- og kengúrukjöti sem ég bragðaði á áströlskum matsölustað í Lund- únum fyrir mörgum árum. Sú reynsla styrkti mig allnokkuð í trúnni á grænmetisfæði. Kalifornísk fjölvítamín og piss í flösku SOS SPURT & SVARAÐ Jakob Frímann Magnússon ingu en fólk gerir sér almennt grein fyrir. Plötur af þessu tagi vekja at- hygli á listamönnunum og eru þar að auki heiður fyrir þá. Þessi plata vekur til dæmis athygli á lagahöfndinum Hallbirni en lítil áhersla hefur verið lögð á hann hingað til,“ segir Diddi. „Lögin eru gerbreytt frá upp- runalegri mynd þótt þetta séu að sjálfsögðu enn sömu lögin.“ Þau Magga Stína og Diddi eru nokkuð sammála um hlut Hallbjarnar í íslenskri tónlistarsögu og hvað ein- kennir tónlist hans fyrst og fremst. Magga Stína segist hafa verið mik- ill aðdáandi Hallbjarnar alla tíð. „Hann er einn af þessum tónlist- armönnum sem nálgast tónlistina sína á það heiðarlegum nótum að það er aðdáunarvert,“ segir Magga Stína og Diddi tekur undir: „Hann er mjög einlægur í því sem hann er að gera og stundum næstum barnslega einlægur. Fyrir vikið gefur hann kannski færi á sér en hann er einn af þessum örfáu tónlist- armönnum sem einlægnin einkennir. Hann á stærstan þátt í því að halda nafni kántrýtónlistar á lofti hér á landi,“ segir hann. „Hann gegnir því viðamikla hlut- verki að vera maðurinn sem sgir allt- af satt,“ segir Magga Stína einnig. Diddi segir samstarf fjögurra manna sveitarinnar Krókódílarnir hafa gengið vonum framar en þeim var stefnt saman einungis til gerðar plötunnar. Diddi segist alls ekki úti- loka að þeir félagar muni halda sam- starfi áfram og bætir við að þeim hafi borist beiðnir um að spila. „Það sýnir kannski helst eft- irspurnina eftir kántrýhljómsveit hér á landi,“ segir hann að lokum. Óðplata til heiðurs Hallbirni Hjartarsyni komin út Kúrekinn einlægi HALLBJÖRN Hjartarson, eða kúreka norðursins, þarf trúlega ekki að kynna fyrir nokkum Íslendingi, enda þar á ferð þekktasti kúreki sem land- ið hefur alið. Nú hafa aðdá- endur hans og aðrir tónlist- armenn tekið höndum saman og gefið út óðplötu til heiðurs Hall- birni. Þar eru saman komin ellefu lög úr smiðju Hallbjarnar í nýjum útsetningum. Söngvararnir sem lögin flytja koma úr öllum áttum og nægir að nefna nöfn KK, Magnúsar Eiríks- sonar, Möggu Stínu, Margrétar Eir- ar, Helga Björnssonar, Dr. Gunna og Hreims Heim- issonar til að glöggva sig á fjölbreytileika þeirra. Friðþjófur Sigurðsson, Diddi, er bassaleikari hljómsveitarinnar Krókódílarnir sem sér um undirleik á plötunni en hann sá jafnframt um útgáfu plötunnar sem gef- in er út af Eddu. Diddi segir söngvarana á plötunni spila stóra rullu og bætir við að val á þeim við lögin hafi verið fremur auðvelt. „Ég valdi söngvarana með tilliti til útsetning- anna og á flestum stöðum kom enginn annar til greina en sá sem flutti lagið að lokum,“ seigir Diddi og bætir við að lögin sem Magga Stína og KK flytji séu góð dæmi um það. Diddi segir söluna á plötunni hafa gegnið vonum framar og segir að- standendur mjög ánægða með viðtök- urnar þar sem hún virðist rjúka út. „Óðplötur hafa miklu meiri þýð- Magga Stína er ein þeirra fjölmörgu listamanna sem votta Hallbirni Hjartarsyni virðingu sína á hljómplötunni Kúrekinn, sem út kom fyrir stuttu á vegum Eddu – miðlunar og útgáfu. birta@mbl.is Samningurinn (The Contract) Spennumynd Bandaríkin 1999. Myndform VHS. (95 mín.) Bönnuð innan 16 ára. Leikstjórn Stephen Monroe. Aðalhlutverk Jeff Fahey, Camilla Roos, Amy Weber. SÖGUÞRÁÐURINN er býsna smellinn í þessari annars ósköp lítilfjörlegu spennumynd. Vansæl kona dettur í það á bar, opnar sig við huldumann sem punktar niður á munnþurrku alla þá sem hún segir hafa reynst sér illa og lætur hana, rænulitla, undirrita ein- hvern „samn- ing“. Áður en hún vaknar í félagsskap timburmanna daginn eftir eru aðilarnir á list- anum, eigin- maðurinn, besta vinkonan, yfirmaðurinn, farnir að týna töl- unni einn af öðrum. Þokkalega frumleg hugmynd í annarrs sífellt hugmyndasnauðari bransa. Verst hvað úrvinnslan er metnaðarlítil, leikurinn dapur og fléttulausnir klisjukenndar. Skarphéðinn Guðmundsson Myndbönd Samið af sér
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.