Morgunblaðið - 06.04.2003, Blaðsíða 31
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. APRÍL 2003 31
LISTASAFN Árnesinga tekur til
starfa í nýju húsnæði að Aust-
urmörk 21 í Hveragerði í maí, þar
sem áður var Listaskálinn í Hvera-
gerði, þegar opnuð verður sýning á
verkum Kristjáns Davíðssonar og
Þórs Vigfússonar. Birna Kristjáns-
dóttir, forstöðumaður safnsins, seg-
ir þetta mikil tímamót í starfsemi
þess og rík ástæða sé til að horfa
björtum augum til framtíðar.
„Þetta er mjög stórt skref fyrir
safnið. Skálinn er um helmingi
stærri en húsnæðið sem við vorum
í áður og svo munum við örugglega
njóta góðs af nálægðinni við borg-
ina. Ég fagna því að Héraðsnefnd
Árnesinga hafi tekið þessa ákvörð-
un. Þetta mun efla safnið til
muna.“
Birna segir að flutningar hafi
tekið lengri tíma en ráð var fyrir
gert í upphafi. „Til þess liggja
fyrst og fremst tvær ástæður. Í
fyrsta lagi þurftum við að ráðast í
talsverðar breytingar á húsinu.
Það var upphaflega hugsað sem
gallerí og því þurfti að sníða það
að þörfum safnsins. Safn og gallerí
er nefnilega tvennt ólíkt. Í öðru
lagi fóru fram sveitarstjórnarkosn-
ingar á síðasta ári og það segir sig
sjálft að nýtt fólk þarf tíma til að
setja sig inn í málin. En þegar upp
er staðið hafa allir sem að þessu
máli koma verið því til sóma.“
Byggt undir list
Einar Hákonarson listmálari
byggði Listaskálann árið 1996 og
rak hann um tíma með sérstakri
áherslu á málverkasýningar. Und-
anfarin ár hefur húsið staðið autt.
Að áliti Birnu er það fagnaðar-
efni að hús sem byggt var undir
list verði áfram notað í því skyni.
„Auðvitað vonuðust menn alltaf til
þess að það gæti orðið. Það er því
tvöföld ástæða til að gleðjast.“
Birna segir skálann hafa verið í
ágætu ásigkomulagi. „Húsið var
reyndar aldrei fullklárað á sínum
tíma. Það var líka gerð fagleg út-
tekt á ástandi hússins með tilliti til
jarðskjálftanna í júní 2000 og það
sem kom verst út þar voru sprung-
ur í gólfi. Af þessum þáttum hefur
hins vegar hlotist óverulegur
kostnaður.“
Birna segir kostnað vegna breyt-
inganna ekki liggja fyrir enda sé
þeim ekki að fullu lokið. „Við mun-
um upplýsa um kostnaðinn þegar
hann liggur fyrir síðar á þessu ári.
Það er ekki óeðlilegt að verkefni af
þessu tagi kosti peninga en ég leyfi
mér að fullyrða að við erum ekki
að tala um óeðlilegar upphæðir.“
Birna segir framkvæmdir hafa
gengið vel og samstarf allra aðila
verið einstaklega gott. Nefnir hún
þar sérstaklega Héraðsnefnd Ár-
nesinga, bæjaryfirvöld í Hvera-
gerði, verkfræðiskrifstofu Suður-
lands og arkitektastofuna Glámu-
Kím. „Þetta fólk á allt heiður skil-
ið.“
Listasafn Árnesinga opnað í Hveragerði
Mun efla safnið til muna
NÝSTOFNAÐUR blásaraoktett,
Hnúkaþeyr, heldur tónleika í Dóm-
kirkjunni kl. 17 í dag, sunnudag.
Fyrr á öldum voru blásarar eins-
konar popptónlistarmenn með sín
ómsterku hljóðfæri, léku á mark-
aðstorgum, í hallargarðinum, blésu
til veiða eða hátíðar.
Og enn gefst færi á að hlýða á
þýða tóna því átta blásarar halda
tónleika með yfirskriftinni Blásið
til sumars. Blásaraoktettinn skipa
Ármann Helgason og Rúnar Ósk-
arsson á klarinett, Eydís Franzdótt-
ir og Peter Tompkins á óbó, Anna
Sigurbjörnsdóttir og Ella Vala Ár-
mannsdóttir á horn, Darri Mikaels-
son og Kristín Mjöll Jakobsdóttir á
fagott.
Á efnisskrá eru oktettar fyrir tvö
óbó, tvö klarinett, tvö horn og tvö
fagott eftir klassísku tónskáldin
Johan Nepomuk Hummel og Lud-
vig van Beethoven, einnig oktett
frá síðustu öld eftir breska tón-
skáldið Gordon Jacob.
Tónleikarnir eru styrktir af
Reykjavíkurborg og mennta-
málaráðuneytinu. Aðgangur er
ókeypis.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Blásaraoktettinn Hnúkaþeyr: Ár-
mann Helgason, Eydís Franzdóttir,
Kristín Mjöll Jakobsdóttir, Ella
Vala Ármannsdóttir, Rúnar Ósk-
arsson og Anna Sigurbjörnsdóttir.
Fjarverandi voru þeir Peter
Tompkins og Darri Mikaelsson er
ljósmyndari tók mynd af hópnum
fyrir framan Dómkirkjuna.
Hnúkaþeyr
blæs til
sumars
Alltaf á
þriðjudögum
Laugavegi 87
Sími 511 2004
www.dunogfidur.is
Heimsferðir bjóða nú ótrúlegt tilboð á síðustu
sætunum til Budapest þann 5. maí í beinu flugi til þessarar heillandi
borgar sem er að verða einn vinsælasti borgaráfangastaður Íslendinga.
Fararstjórar Heimsferða bjóða þér
spennandi kynnisferðir og þú velur
um úrval góðra hótel í hjarta borg-
arinnar. Vorið er komið í Budapest
og þetta er fegursti tími ársins til að
kynnast þessarri fögru borg.
Vikuferð til
Budapest
5. maí
frá kr. 36.550
Skógarhlíð 18, sími 595 1000.
www.heimsferdir.is
Verð kr. 59.950
Flug og gisting í viku, Tulip Inn, 7 nætur
með morgunmat, m.v. 2 í herbergi.
Ferðir til og frá flugvelli, kr. 1.800.
Verð kr. 36.550
Flugsæti til Budapest, út 5. maí, heim 12.
maí. Flug og skattar per mann.
Síðustu sætin
Munið Mastercard
ferðaávísunina