Morgunblaðið - 06.04.2003, Blaðsíða 37
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. APRÍL 2003 37
Á SÍÐUSTU 12 árum hafa
nokkrir tugir einstaklinga og/eða
fyrirtæki þeirra orðið svo svellandi
rík að dæmi eru vart til um slíkt í
sögu þjóðarinnar þótt allur sam-
anburður sé afstæður í þeim efn-
um. Manni verður orðs vant þegar
einstaklingur flytur hingað suður
frá Akureyri með þrjá milljarða og
forviða þegar sú skýring er gefin
að hann hafi verið svo duglegur
síðustu 15 árin. Annar einstakling-
ur rífur heilt einbýlishús til
grunna þar sem hann nær ekki
samkomulagi við erfingja arkitekts
hússins um breytingar á því. Gerð-
ir eru samningar um starfslok og
bónusa upp á tugi milljóna við
karlmenn sem höfðu vel yfir tíu
milljónir í árstekjur. Svona mætti
lengi telja. Orðið milljarðamæring-
ur dugir ekki, nær er að tala um
margmilljarðamæringa. Þetta er
afsprengi kvótakerfisins en fleira
kemur til eins og fjármálabrall á
þröngum mörkuðum fárra inn-
vígðra. Þegar allt kemur til alls
verður ört vaxandi misskipting
lífsgæða og viðvarandi fátækt rak-
in til stefnu síðustu ríkisstjórna.
Alþýða manna hefur setið eftir og
er lítill gaumur gefinn af stjórn-
völdum.
Velferð fyrir alla
Nýverið birti Alþýðusamband
Íslands vandaða úttekt á áherslum
og framtíðarsýn sinni í velferð-
armálum. Sambandið á heiður skil-
inn fyrir framlag sitt. Ég get út
frá áratuga reynslu minni sem lög-
maður ýmissa stéttarfélaga tekið
heils hugar undir áherslur ASÍ og
þær falla mæta vel að stefnu
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs í velferðarmálum.
Vert er að vekja athygli á fleiri
brýnum málefnum. Af nógu er að
taka. Til að mynda þarf að leggja
verulega aukið fé til umönnunar og
uppeldis barna, tryggja ókeypis
leikskóla sem órofa hluta skóla-
kerfisins og íþrótta- og tómstunda-
starfs. Leggja verður grunn að
starfsöryggi launamanna, binda
enda á núverandi kerfi geðþótta-
uppsagna, auka rétt í veikinda- og
slysaforföllum og hækka verulega
skyldutryggingar launamanna
samkvæmt kjarasamningum.
Koma þarf í veg fyrir mismunun
vegna aldurs og endurhæfa erf-
iðisvinnufólk á miðjum aldri, gerist
þess þörf, til nýrra starfa þannig
að tryggt sé að starfsorka þeirra
nýtist þar til lífeyrisaldri er náð.
Þá er afar brýnt að koma á raun-
verulegu launajafnrétti og atvinnu-
lýðræði.
Til viðbótar þörfum tillögum
ASÍ í húsnæðismálum er vert að
huga að því að lífeyrissjóðir komi
myndarlega að fjárfestingu í fé-
lagslegu húsnæði og byggi og eigi
að fullu eða að hluta til leigu-,
hlutdeildar- og búseturéttaríbúðir.
Lífeyrissjóðir eru gerðir upp með
3,5% ávöxtun sem á að nægja til
að þeir standi við skuldbindingar
sínar. Trygg ávöxtun í félagslegu
íbúðarhúsnæði fellur betur að upp-
runa og tilgangi lífeyrissjóða en
erlend áhættufjárfesting eða þátt-
taka í valdabaráttu um banka og
önnur stórfyrirtæki. Fjölmörg
önnur velferðarmál bíða úrlausnar.
Jöfnuður eða
frekari misskipting
Nú hafa stjórnarflokkarnir boð-
að stórfelldar skattalækkanir, 15
til 20 milljarða. Fyrir mér er það
eins og að pissa í skóinn sinn tíu
mínútur fyrir kosningar eftir 8 til
12 ára stjórnarsetu. Er það trú-
verðugt, er þeim treystandi? Og
það sem verra er, þessi loforð eru
fyrst og síðast stíluð upp á hina
efnameiri og eru ávísun á að vel-
ferðarmál muni áfram sitja á hak-
anum og misskiptingin vaxi enn.
Það gagnast ekki börnum og ung-
mennum að lækka erfðafjárskatt.
Láglaunafólk, lífeyrisþegar, ör-
yrkjar og atvinnulausir njóta ekki
góðs af niðurfellingu hátekju-
skatts. Er ekki nær að jafna lífs-
kjörin með réttlátu tekjujafnandi
skattakerfi, taka upp þrepaskiptan
tekjuskatt og hækka skattleysis-
mörk í tekju- og eignarskatti? Það
veitir ekki af þessum milljörðum í
fátæktarmálin, í húsnæðismálin, í
tryggingamálin og önnur velferð-
armál þannig að framtíðarsýn ASÍ
geti orðið að veruleika. Má ég þá
fremur biðja um verkalýðssinnaða
velferðarstjórn í anda stefnu
vinstri-grænna í stað sífelldrar
umhyggju fyrir hinum ríku.
Verkalýðshreyfingin
og velferðarstjórn
Eftir Atla
Gíslason
„Þegar allt
kemur til
alls verður
ört vaxandi
misskipting
og viðvarandi fátækt
rakin til stefnu síðustu
ríkisstjórna. Alþýða
manna hefur setið eftir
og er lítill gaumur gef-
inn …“
Höfundur er hæstaréttarlögmaður
og skipar 2. sætið á lista VG í
Reykjavík norður.
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Stararimi 33 - einbýli
OPIÐ Í DAG
Glæsilegt og vel byggt 161 fm bjálkahús á einni hæð með sér-
standandi 28 fm bílskúr. 4 svefnherbergi. Stór afgirt verönd, stór
fallegur gróinn garður. Mjög auðvelt að bæta við 12 fm sólstofu.
Hlýlegt hús á góðum stað.
Sigurður og Aðalheiður taka á móti gestum í dag frá kl. 14-17.
V. 23,9 m. Áhv. 10,5 m. 6037
nybyggingar.is
valholl.is
Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast.
www.valholl.is
Opið virka daga frá kl. 9-17.30.
Logafold 151 - nýlegt parhús
Í einkasölu fallegt ca 160 fm par-
hús, hæð + ris, og vandaður bíl-
skúr á frábærum stað innarlega í
lokaðri götu skammt frá Folda-
skóla og verslmiðst. í Hverafold.
Falleg ræktuð lóð með suðurver-
önd. Hiti í stéttum og bílaplani. 3-
4 svefnherb. Gott skipulag.
Guðrún og Hreinn taka á móti
gestum í dag frá kl. 17-19.
V. 19,9 m. Áhv. 7,65 m.
Frostafold 28 - íbúð 0301
Falleg 3ja herbergja ca 100 fm
íbúð á 3. hæð (efstu) í fallegu litlu
fjölb. á fráb. stað. Parket. Flísa-
lagt baðherb. Suðaustursvalir.
Mjög gott skipulag.
Olga og Gunnar taka á móti
gestum í dag frá kl. 14-16.
V. 12,5 m. Áhv. 5,9 m. byggsj.
Fannborg 9 - íbúð 0401
Falleg arkitektahönnuð ca 90 fm
3ja herbergja endaíbúð í suður á
3. hæð (efstu) í góðu nýl. stand-
settu fjölb. á frábærum útsýnis-
stað í miðbæ Kópav. Öll þjón-
usta, verslanir, sundlaug o.fl. í
göngufæri. Vandaðar innr., park-
et, flísar, halogen. Frábærar ca
20 fm suðvestursvalir. Útsýni
glæsilegt til austurs, suðurs og
vesturs.
Fanney sýnir áhugasömum
í dag frá kl. 14-16.
V. 12,3 m. 6152
Heiðarhjalli 29 - Kópavogi
Í einkasölu stórglæsileg 120 fm
miðhæð í vönduðu þríbýlishúsi á
fráb. stað í suðurhluta Kópav.,
ásamt 24 fm bílskúr. Sérsmíðað-
ar glæsil. innr. Parket og náttúru-
steinn. Stórar suðvestursvalir,
stórbrotið útsýni. Þvottaherb. í
íbúð. Sérinngangur og allt sér.
Eign í algjörum sérflokki.
Karl og Sigríður taka á móti
gestum í dag frá kl. 17-19.
Áhv. húsbr. 8,4 m.
Verð 19,7 m. 1506
Opið mán.-fim. frá kl. 9–18, fös. frá kl. 9-17
Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033
Fallegt og mjög vandað einbýli, ca 298
fm, ásamt sérstandandi 28 fm bílskúr
með gryfju. Ca 100 fm rými á jarðhæð
hússins má auðveldlega breyta í séríbúð
með sérinngangi. Á miðhæð og í risi er
mjög góð íbúð með 5 svefnherb. og
stofum á hvorri hæð. Fallegur garður.
Eingöngu skoðuð skipti á minni eignum.
Verð 27,9 m. Nánari uppl. á Borgum eða
hjá Ægi í síma 896 8030.
JÓRUSEL 18 - EIGNASKIPTI
Fjölnisvegur - Þingholtin
Vandað um 400 fm einbýlishús auk 24 fm bílskúrs. Á 1. hæð eru
m.a. fjórar samliggjandi stofur með útgangi í garð til suðurs. Arinn
í stofum. Á 2. hæð eru m.a. fimm rúmgóð herbergi og nýlega
standsett baðherbergi með hita í gólfi. Nuddbaðkar og flísalagður
sturtuklefi. Ca 40 fm svalir eru út af hjónaherbergi. Mikið útsýni.
Sérinngangur er í kjallara en þar eru tvö herbergi og baðherbergi
(einnig innangengt). Manngengt risloft er yfir húsinu sem býður
upp á mikla möguleika. Stór afgirtur garður til suðurs og hellulögð
verönd. Um er að ræða eign í algjörum sérflokki.
Nánari upplýsingar um húsið veitir Magnea Sverrisdóttir
fasteignasali í síma 861 8511.
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4. SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri, lögg. fasteignasali.
Stórglæsileg 5 herb.138 fm endaíbúð með sérinngangi á 3. hæð, íb.
0301, í nýlegu lyftuhúsi. Íbúðin er afar vönduð í alla staði og skiptist í
forstofu, stórar saml. stofur, rúmgott eldhús m. vönd. tækjum, 3 herb.,
stórt flísalagt baðherb. auk þvottaherb. og geymslu. Sérsmíðaðar inn-
rétt. og massívt parket á gólfum. Gluggar í þrjár áttir. Glæsilegt útsýni af
suðursvölum að jökli og út á sjóinn. Tvö sér bílastæði í bílageymslu og
geymsla í kj. Stutt í alla þjónustu. EIGN SEM VERT ER AÐ SKOÐA.
Verð 26,0 millj.
Íbúðin verður til sýnis í dag, sunnudag, frá kl. 14-16
Verið velkomin.
Garðatorg 7 -Garðabæ.
Opið hús frá kl. 14-16
ATVINNA
mbl.is