Morgunblaðið - 06.04.2003, Síða 58
58 SUNNUDAGUR 6. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÞAÐ er með réttu ótrúlegt aðsvartþungarokkssveit sékomin á mála hjá einustærsta útgáfufyrirtæki
heims. Cradle of Filth er nú með
sömu yfirmenn og Celine Dion og
Shakira (hin „sanna“ tónlist djöfuls-
ins að mati Dani!).
Cradle of Filth er reyndar ekkert
venjulegt svartþungarokksband.
Sveitin er bresk (en flestir svart-
þungarokkarar koma frá Skandinav-
íu) og hafa þróað tónlist sína inn á
poppvænni lendur í gegnum árin.
Garg og geðveiki eru á undanhaldi – í
stað þess eru komnar epískar rokk-
sinfóníur, undir áhrifum frá hinum
melódísku Iron Maiden og hryllings-
myndatónlist. Gotneskur æv-
intýrablær leikur um nýjustu verk
sveitarinnar og er Damnation and a
Day metnaðarfyllsta útfærslan á
honum til þessa.
Hinn mjög svo jaðarbundni svart-
þungarokksgeiri, sem hóf að
„blómstra“ upp úr ’90, hefur verið
vettvangur fyrir margt af því fersk-
asta og frumlegasta sem almennt
hefur verið gert í þungarokki und-
anfarin ár. Þeir allra hörðustu hlæja
reyndar að Cradle … og segja þá
markaðshórur. En ég efast ekki um
að Dani og félagar hlæi nú hæst
allra.
Fyrst og fremst afþreying
Jæja Dani … Sony gerir samning
við ykkur en þið gerið engar mála-
miðlanir hvað list ykkar varðar.
Hvernig gengur það upp?
„Það sem heillaði okkur við þenn-
an samning var að sá sem talaði við
okkur var alls ekki að þykjast skilja
okkur, hvað þá að hann væri hrifinn
af tónlistinni. Hann vissi það eitt að
við seldum plötur. Við urðum mjög
hrifnir af þessu hreinskipta viðhorfi.
Þetta veitir okkur tækifæri til að
fara lengra með okkar pælingar því
að nú erum við komnir með góðan,
fjárhagslegan bakhjarl. Ég myndi
reyndar segja að við værum nú þeg-
ar búnir að ná öllu því sem við höfð-
um metnað til að gera. Nú getum við
farið að víkka sjóndeildarhringinn
frekar og nú höfum við líka efni á að
vinna lengur að tónlistinni. Núna er-
um við líka með heila sinfóníu og kór
með í för. Tækifærin til að gera flotta
hluti eru almennt orðin fleiri.“
Cradle of Filth á Sony? Er þetta
tákn um að heimurinn sé að verða
„hryllilegri“?
„Tjaa …tónlistin okkar snýst um
afþreyingu fyrst og fremst. Hún er
alls ekki pólitísk og við erum langt í
frá einhverjir djöfladýrkendur – tón-
list er bara leið til að túlka veru-
leikann í kringum sig. Ég þori ekki
að segja til um þennan aukna áhuga
stórra fyrirtækja á tónlist sem er á
jaðrinum. Það sem er aftur á móti
hryllilegt eru allar þessar stráka-
sveitir sem er verið að dæla út úr
þessum fyrirtækjum!“
Hverju þakkar þú þennan góða ár-
angur?
„Við höfum alltaf sett okkur ný
markmið sem við höfum stefnt að.
Með hverri plötu höfum við tekið eitt
skref fram á við. Síðan hefur þetta
líka verið mikil vinna. Ég fór í fyrsta
Cradle of Filth gefa út Damnation and a Day
Frá vöggu til grafar
Dani Filth, leiðtogi Cradle of Filth, segir
Arnari Eggert Thoroddsen frá því hvernig
vinsælasta svartþungarokkssveit heims
seldi sálu sína til Sony með bros á vör.
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.15.
Sýnd kl. 8. Sýnd 6.
Sýnd kl. 10. Sýnd kl. 4.
Jackie Chan og Owen Wilson eru mættir
aftur ferskari en nokkru sinni fyrr í
geggjaðri grínspennumynd.
Miðasala opnar kl. 13.30 HUGSAÐU STÓRT
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
SV. MBL
HK DV
ÓHT Rás 2 Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 1.40, 3.45 og 5.50.
Sýnd kl. 8 og 10.20. B.i. 16.
Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30.
kl. 8.
Eingöngu í LÚXUSSAL kl. 5.30 og 10.30. B.i.12
Eingöngu í LÚXUSSAL kl. 2. B.i.12
Radíó X
Kvikmyndir.com
6 ÓSKARSVERÐLAUN M.A.BESTA MYNDIN
Þeir líta bara út
eins og löggur!
Grínið er farið í gang
með tveimur geggjuð-
um - Steve Zahn og
Martin Lawrence!
i lí
i l !
í i f i í
i j
i !
Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.20.
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10. B.i. 12.
Jackie Chan og Owen Wilson eru mættir
aftur ferskari en nokkru sinni fyrr í
geggjaðri grínspennumynd.