Morgunblaðið - 06.12.2003, Side 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 2003 9
FORSVARSMENN kristinna trú-
félaga, sem standa utan þjóðkirkj-
unnar, komu saman til fundar á
fimmtudag þar sem rætt var um
stöðu þessara trúfélaga gagnvart
ríki og þjóðkirkjunni og um þá
mismunun og óréttlæti sem þau
búa við, að því er Hjörtur Magni
Jóhannsson fríkirkjuprestur segir í
samtali við Morgunblaðið.
„Þessi mál hafa komið til um-
ræðu áður á okkar vettvangi.
Menn voru nokkuð sammála um að
þessi trúfélög búa alls ekki við
jafnræði gagnvart þjóðkirkjunni,
sem ég kalla ríkiskirkju. Þjóð-
kirkjan fær einn og hálfan milljarð
króna umfram sinn lýðræðislega
hlut og ef miðað er við höfðatölu.
Ég vil kalla þetta ókristilegt fyr-
irkomulag og eru allir sammála
um að það sé ekki hægt að búa við
þessa stöðu og að verði eitthvað
gera,“ segir hann.
Á fundinn mættu fulltrúar átta
trúfélaga en hann var haldinn í
safnaðarheimili Fríkirkjunnar.
Hjörtur Magni segir að ákveðið
hafi verið að forsvarsmenn trú-
félaganna komi saman aftur til að
halda umræðunni áfram og að
kannað verði hvaða leiðir eru fær-
ar til að breyta þessu ástandi.
Þörf á leiðréttingu
„Við teljum mikla þörf á að við
skoðum þessi mál og fáum leiðrétt-
ingu á þeim,“ segir Hjörtur Magni
Jóhannsson.
Forsvarsmenn kristinna trúfélaga utan þjóðkirkjunnar
Morgunblaðið/Eggert
Forsvarsmennirnir: Standandi f.v. Friðrik Schram, Íslensku kristskirkjunni, Hjörtur Magni Jóhannsson, Fríkirkj-
unni í Reykjavík, og Högni Valsson, Veginum. Við borðið sitja f.v. Hreiðar Örn Stefánsson, Fríkirkjunni, Vörður
Traustason, Hvítasunnusöfnuðinum, Jón Þór Eyjólfsson, Klettinum, og Gunnar Þorsteinsson, Krossinum.
Segja trúfélögin búa
við mismunun og óréttlæti
FARÞEGUM um Flugstöð
Leifs Eiríkssonar á Keflavík-
urflugvelli fjölgaði um rúmlega
26% í nóvembermánuði miðað
við sama tíma í fyrra, úr tæp-
lega 71 þúsund farþegum árið
2002 í rúmlega 89 þúsund far-
þega nú.
Þyngst vegur fjölgun far-
þega til og frá Íslandi sem er
rúmlega 28% milli ára, en far-
þegum sem millilenda hér á
landi á leið yfir Norður-Atl-
antshafið fjölgaði engu að síð-
ur um 15% á sama tíma.
Nóvember er sá mánuður
ársins þar sem fjölgun farþega
hefur verið hlutfallslega mest
milli ára.
Alls hefur farþegum um
Flugstöð Leifs Eiríkssonar því
fjölgaði um tæplega 12% það
sem af er árinu miðað við
sama tíma árið 2002, eða úr
rúmlega 1.157 þúsund farþeg-
um í rúmlega 1.291 þúsund
farþega.
Mikil
fjölgun
farþega í
Leifsstöð
Eddufelli 2,
s. 557 1730
Bæjarlind 6,
s. 554 7030.
Opið mán–fös. frá kl. 10-18 Laugardag frá kl. 10-17
Glæsilegt
úrval af
sparifatnaði
Fallegar
jólagjafir
Gjafakort
Sendum
í póstkröfu
Glæsilegur
hátíðarfatnaður
samkvæmisbuxur og toppar
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið í dag frá kl. 10-18
J
ó
la
g
ja
fi
r
Náttkjóll
Verð 3.500
Náttföt
Verð 5.900
Sloppur
Verð 5.400
Náttföt
Verð 5.900
Undirfataverslun,
Síðumúla 3
s. 553 7355
Opið mán.- fös. kl. 11-18
lau. kl. 11-18
Telpnasloppar
6-12 ára
Verð 3.600
Telpnanáttföt
6-12 ára
Verð 3.900
S O K K A B U X U R
Hverfisgata 6 Símí 562 2862
Opið virka daga frá kl. 11-18, laugardaga kl. 11-15.
Sigurstjarnan, Suðurlandsbraut 50 (bláu húsin), sími 588 4545.
50% afsláttur
6 manna kaffistell - ekta gylling
Neðst við Dunhaga, sími 562 2230
Opið í dag til kl. 18
20% afsláttur
af völdum vörum
Heitt á könnunni!
Mikið úrval
Þýsk jakkaföt, stakir jakkar og buxur
Opið sunnudag frá kl. 13-18
Laugavegi 34, sími 551 4301
Augustsilk
Augustsilk
Opið í dag frá kl. 12-17 í Síðumúla 35 – 3. hæð
Silkipeysur - heildsöluverð
Peysusett, rúllukraga- og stuttermapeysur, v-hálsmálspeysur.
Pashminur og organzadúkar.
Nýtt! 100% handofið Dupion silki.
Þrír litir. Kr. 2400 pr. m.
Náttúrukremin frá Natures Gate.
Engin kort www.laxmann.com