Morgunblaðið - 06.12.2003, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 06.12.2003, Qupperneq 10
FRÉTTIR 10 LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ ALÞINGI samþykkti í gær fjárlög fyrir árið 2004. Er þar gert ráð fyrir ríflega 6,7 milljarða króna tekjuaf- gangi ríkissjóðs. Fjárlagafrumvarp- ið var samþykkt samhljóða með 32 atkvæðum þingmanna stjórnar- flokkanna. Þingmenn stjórnarand- stöðunnar sátu hjá. Áður en at- kvæðagreiðsla fór fram um frumvarpið voru allar breytingartil- lögur stjórnarandstöðunnar felldar, nema ein tillaga þingmanna Sam- fylkingarinnar um að 10,8 milljónum verði varið til uppbyggingar sí- menntunarstöðva. Geir H. Haarde fjármálaráðherra sagði við lokaatkvæðagreiðsluna að í meðförum þingsins hefði tekjuaf- gangur ríkissjóðs, skv. frumvarpinu, aukist um þrjú til fjögur hundruð milljónir. Hann sagði að sú niður- staða væri mikilvæg með tilliti til þeirra gríðarlegu verkefna sem framundan væru í hagstjórninni. „Ríkisstjórnin og þingmeirihlutinn eru staðráðin í því að sýna fyllstu ábyrgð við það mikla verkefni.“ Einar Már Sigurðarson, þingmað- ur Samfylkingarinnar, var ekki eins sáttur við frumvarpið. Hann sagði að fjárlög næsta árs yrðu í framtíð- inni kölluð fjárlög svikanna. Hann sagði að með frumvarpinu væri samkomulagið við Öryrkjabandalag Íslands svikið, þar væru skattar hækkaðir og vaxtabætur lækkaðar. Með frumvarpinu væru m.ö.o. ekki verið að efna kosningaloforðin. Jón Bjarnason, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, tók í sama streng. Hann sagði að fjárlögin bæru vitni um svikin kosningaloforð. „Aðhaldsað- gerðir bitna fyrst og fremst á þeim sem síst skyldi; á barnafólki, sjúk- lingum, öryrkjum, atvinnulausum og öðrum þeim sem hafa lægstar tekjur.“ Hann sagði að eina skatt- breytingin sem gerð væri í frum- varpinu væri lækkun hátekjuskatts- ins. Skattajólapakki Þá sagði Guðjón A. Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, að með fjárlögunum væri mótuð sú stefna ríkisstjórnarflokkanna að færa þjóðinni sérstakan skattajóla- pakka. „Hann inniheldur nýjar álög- ur á fólkið í landinu en ekki skatta- lækkanir eins og ríkisstjórnar- flokkarnir boðuðu þjóðinni þegar kosið var til þings á síðastliðnu vori. Ríkisstjórnin telur sig hafa fundið breiðu bökin og verkin sýna raun- stefnuna í skattamálum. Loforðin eru gleymd.“ Guðni Ágústsson, landbúnaðar- ráðherra og varaformaður Fram- sóknarflokksins, sagði á hinn bóginn að stjórnarandstaðan hefði orðið sér til skammar upp á hvern dag í fjár- lagaumræðunni í haust. „Samfylk- ingin hefur klæðst nýjum flokks- búningi saumuðum af Gróu á Leiti og gert málflutning Gróu á Leiti að sínum. Allt eru svik og heiðarlegir menn eru bornir þungum sökum. Þjóðin veit að Jón Kristjánsson seg- ir satt. Hann er maður orðsins. Ég segi við forsvarsmenn Öryrkja- bandalagsins: Guð fyrirgefi ykkur. Þið vitið ekki hvað þið eruð að gjöra.“ Guðni sagðist auk þess fordæma málflutning stjórnarandstöðunnar sem ekki fagnaði og viðurkenndi að verið væri að landa stærstu kjara- bót öryrkja í áratugi hækkun ör- orkubóta úr 2,8 milljörðum í 3,8 milljarða eða um 37%. Stjórnarandstaðan segir fjárlögin bera vitni um svikin kosningaloforð Gert ráð fyrir 6,7 millj- arða króna tekjuafgangi Landbúnaðarráðherra segir Gróu á Leiti hafa saumað búning Samfylkingar Þingfundur hefst kl. 10 í dag. Eft- irfarandi mál eru á dagskrá: 1. Umferðarlög. 2. Greiðslur Atvinnuleysistrygginga- sjóðs vegna fiskvinnslufólks. 3. Almannatryggingar. TRYGGVI Gunnarsson var end- urkjörinn umboðsmaður Alþing- is til næstu fjögurra ára í skrif- legri atkvæðagreiðslu á Alþingi í gær. Hlaut hann 59 atkvæði. Jón Steinar Gunnlaugsson forseti Alþingis, eftir að atkvæði höfðu verið talin. Tryggvi var fyrst kjörinn um- boðsmaður Alþingis til fjögurra ára á fundi Alþingis hinn 4. nóv- ember 1999. hæstaréttarlögmaður hlaut eitt atkvæði. „Ég lýsi því Tryggva Gunnarsson réttkjörinn umboðs- mann Alþingis til næstu fjögurra ár og óska honum velfarnarðar í starfi,“ sagði Halldór Blöndal, Morgunblaðið/Jim Smart Atkvæðum safnað: Þingmenn greiddu atkvæði skriflega um umboðsmann Alþingis. Tryggvi Gunnarsson endurkjörinn Í MÁLI Sturlu Böðvarssonar sam- gönguráðherra á Alþingi í gær kom fram að til álita gæti komið að lækka virðisaukaskatt á veggjaldi í Hvalfjarðargöngunum úr 14% í 7% þegar virðisaukaskatt- kerfið yrði endurskoðað á kjör- tímabilinu. Lét ráðherra þessi um- mæli falla í umræðu utan dagskrár um veggjald í Hvalfjarðargöngum. Jóhann Ársælsson, þingmaður Samfylkingarinnar, var málshefj- andi umræðunnar. Sturla Böðv- arsson var til andsvara. Jóhann sagði að veggjald gang- anna þætti hátt. Kæmi það ekki síst niður á íbúum Vesturlands sem þyrftu að sækja skóla og vinnu á höfuðborgarsvæðinu. Spurði hann m.a. að því hvort rétt væri að ríkið tæki yfir rekstur ganganna og eins hvort eðlilegt væri að ríkið hefði tekjur af göngunum með virð- isaukaskatti. Þeir þingmenn úr stjórnarandstöðu sem einnig tóku þátt í umræðunum sögðu m.a. að veggjaldið væri í raun enn einn landsbyggðarskatturinn. Viðræður við stjórn Spalar Samgönguráðherra greindi m.a. frá því að í byrjun þessa árs hefði verið farið yfir það í ráðuneytinu hvort áframhaldandi vöxtur um- ferðar um göngin gæfi tilefni til þess að Spölur hf. lækkaði veggja- ldið ennfrekar. Kvaðst hann með hliðsjón af því hafa óskað eftir við- ræðum við stjórn Spalar og í kjöl- farið skipað sérstakan viðræðuhóp til að ræða við Spöl um lækkun gjalda. Niðurstaða þeirra viðræðna hefði á hinn bóginn verið sú að Spölur hefði ekki talið næg skil- yrði til að lækka veggjald í göng- unum. Ráðherra kvaðst þó myndu halda áfram viðræðum við Spöl um það hvaða leiðir væru færar til að lækka veggjaldið. Á hinn bóginn kæmi ekki til greina að taka til þess fjármuni úr ríkissjóði. Í máli ráðherra kom einnig fram að upp úr áramótum væri að vænta tillagna frá starfshópi sem hann hefði skipað og fjallaði um framtíðarstefnu í gjaldtöku vegna fjármögnunar samgöngu- mannvirkja. „Ef við ætlum að halda áfram uppbyggingu sam- göngukerfisins hér á landi með sama hraða og hingað til á næstu árum verðum við að halda opnum möguleikum á sérstakri fjár- mögnun verkefna sem rúmast ekki í samgönguáætlun. Sundabraut og áform um brýr og jarðgöng eru dæmi um stór verkefni sem rúmast ekki með viðunandi hætti innan núverandi tekjumöguleika sam- gönguáætlunar. Því verður fleira að koma til ef okkur á að takast þessi uppbygging. Í því ljósi er mjög varhugavert að henda einka- fjármögnunarforminu fyrir róða með því að ríkið yfirtaki og greiði niður [veg]gjaldið.“ Áfram rætt við Spöl um lækkun veggjalds HLYNUR Hallsson, varaþing- maður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, hefur lagt fram á Alþingi þingsályktunartillögu um að Íslendingum beri að leggja sitt af mörkum í baráttu gegn vígvæð- ingu himingeimsins. Í tillögunni er m.a. lagt til að ríkisstjórninni verði falið að beita sér fyrir og styðja á alþjóðavettvangi bann við geim- vopnum þar sem miðað verði við að allar rannsóknir og tilraunir, sem tengjast hernaði í himingeimnum, verði tafarlaust stöðvaðar. Enn- fremur að hvers konar hernaðar- umsvif og vopnakerfi til nota í him- ingeimnum verð bönnuð. Í greinargerð segir að ríkis- stjórn Bandaríkjanna hafi á síðasta ári sagt formlega upp ABM-samn- ingnum um takmörkun eldflauga- varna. Ástæðan hafi verið sú að Bandaríkjastjórn sætti sig ekki við takmarkanir samningsins þar sem hún hafði í hyggju að hefja tilraun- ir á geimgagneldflaugakerfi sem unnið hefur verið að um áratuga- skeið. Af þessum sökum sé nauð- synlegt að Alþingi álykti um þessi mál. Tillaga um bann við geimvopnum ALÞINGI samþykkti í gær samtals tæplega 30 milljóna króna auka- fjárveitingu til stjórnmálaflokkanna á Alþingi. Tillaga þess efnis var flutt af þeim Davíð Oddssyni, formanni Sjálfstæðisflokks, Össuri Skarphéð- inssyni, formanni Samfylkingarinn- ar, Guðna Ágústssyni, varafor- manni Framsóknarflokksins, Ögmundi Jónassyni, þingflokksfor- manni Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs og Guðjóni A. Kristjánssyni, formanni Frjálslynda flokksins. Með samþykktinni hækkar fram- lag til sérfræðilegrar aðstoðar fyrir þingflokka um 4,6 milljónir frá því sem gert var ráð fyrir í fjárlaga- frumvarpinu í haust, þ.e. úr 50,4 milljónum í 55 milljónir. Framlag til stjórnmálaflokka með hliðsjón af nýrri kjördæmaskipan og breyttum aðstæðum þingmanna af þeim sök- um hækkar um fimm milljónir eða úr 35 milljónum í 40 milljónir og styrkur til stjórnmálaflokka hækk- ar um 20 milljónir eða úr 180 millj- ónum í 200 milljónir. Þeim styrk er úthlutað til flokkanna í hlutfalli við atkvæðamagn þeirra í síðustu þing- kosningum. Aukafjárveiting til stjórnmálaflokkanna AUK fjárlaga næsta árs voru sex lög samþykkt á Alþingi í gær. Má þar m.a. nefna lög um að einkaleyfi Happdrættis Háskóla Íslands og lög um tryggingagjald. Skv. síðarnefndu lögunum mun ríkissjóður hverfa frá endurgreiðslu hluta af trygginga- gjaldi til atvinnurekenda vegna við- bótarlífeyrissparnaðar launþega Sjö ný lög frá Alþingi ÁRNI Magnússon félagsmála- ráðherra segir að engin ákvörð- un hafi verið tekin um annað en að leggja fram frumvarp til breytingar á lögum á þann veg að atvinnuleysisbætur verði ekki greiddar fyrstu þrjá dag- ana í atvinnuleysi. Hann segir að fyrr í vetur hafi ríkisstjórnin ákveðið að leggja fram þessar breytingar; málið hafi verið kynnt í þingflokkum stjórnar- flokkanna og það sé nú í sínum höndum. „Það hefur engin ákvörðun verið tekin um annað en að leggja málið fram,“ ítrek- ar hann. Málið var upphaflega kynnt í frumvarpi til fjárlaga árið 2004, en þar segir að gert sé ráð fyrir að útgjöld Atvinnuleysistrygg- ingasjóðs lækki um 170 milljón- ir kr. vegna umræddra breyt- inga. Aðspurður segir ráðherra allar líkur á því að frumvarpið verði lagt fram í næstu viku. Áður verður það lagt fyrir þing- flokka stjórnarflokkanna. Ákvörð- unin stendur óhögguð Skerðing atvinnuleysisbóta
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.