Morgunblaðið - 06.12.2003, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 06.12.2003, Qupperneq 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 2003 11 Vetrartilboð Herrar Vetrarjakkar 22.990. Nú 18.390 Ullarjakkar 24.990. Nú 19.990 Kringlunni - Sími 581 2300 Dömur Vaxjakkar 24.990. Nú 19.990 Ullarkápur 22.290. Nú 17.890 20% afsláttur NÝTT KORTATÍMABIL Smáralind og Laugavegi Töskur • Samkvæmisveski Dömu- og herrahanskar Dömu- og herraseðlaveski Nýja fallega heimilisvaran Ávaxtakrukkurnar eru komnar Jólagjafir í Drangey Magnús Ólafsson ljósmyndari „Magnús var ljósmyndari Reykjavíkur og hann veitti okkur fjölþættari sýn á Reykjavík heldur en aðrir ljósmyndarar.“ Inga Lára Baldvinsdóttir, Magnús Ólafsson og framlag hans til íslenskrar ljósmyndunar, 2000. „...grein Eiríks um ljósmyndarann og heim hans heyrir til tíðinda í íslenskri menningarrýni. ... Hann dregur saman ólíka þræði tilvísana og kenninga, undirbyggir hugmyndir sínar jafnt á vísunum í Gröndal, Barthes og Sontag, og spinnur úr listavel skrifaðan vef.“ Einar Falur Ingólfsson, Mbl. „...tvímælalaust einn merkasti þátttakandinn í íslenskri ljósmyndasögu“ Einar Falur Ingólfsson, Mbl. Yfir 100 myndir af gömlu Reykjavík er að finna í bókinni ásamt vönduðum greinum á íslensku og ensku eftir Eirík Guðmundsson útvarpsmann og Guðmund Ingólfsson ljósmyndara. Kringlunni 8-12, sími 553 3600, www.olympia.is Herranáttföt með stuttum og síðum skálmum. BREYTINGARTILLÖGUR þing- manna úr stjórnarandstöðunni, sem fólu í sér að um 500 milljónum yrði bætt við útgjaldahlið fjárlagafrum- varpsins til að hækka lífeyri öryrkja, voru felldar í atkvæðagreiðslu á Al- þingi í gær. Voru þær felldar með 32 atkvæðum stjórnarliða gegn 28 at- kvæðum stjórnarandstæðinga að viðhöfðu nafnakalli. Fjölmargir ör- yrkjar voru á þingpöllunum og fylgdust með atkvæðagreiðslunum. Tillögurnar voru tvær; annars vegar tillaga Jóns Bjarnasonar, þingmanns Vinstrihreyfingarinnar –græns framboðs, um 500 milljóna króna framlag vegna lífeyris öryrkja til viðbótar þeim eina milljarði sem ráð var gert fyrir í frumvarpinu. Og hins vegar tillaga þriggja þingmanna Samfylkingarinnar, með Helga Hjörvar í broddi fylkingar og tveggja þingmanna Frjálslynda flokksins um 528,8 milljóna króna framlag vegna lífeyris öryrkja. Sögðu flutningsmenn tillagnanna að með þeim ætti að uppfylla sam- komulag ríkisstjórnarinnar frá því í mars sl. við Öryrkjabandalag Ís- lands, en í samkomulaginu er kveðið á um hækkun grunnlífeyris öryrkja. Fyrst voru greidd atkvæði um síð- arnefndu tillöguna, þar sem hún fól í sér hærri upphæð. Var hún felld með 32 atkvæðum stjórnarliða gegn 28 atkvæðum stjórnarandstæðinga. Til- laga Jóns hlaut sömu örlög; hún var felld með 32 atkvæðum gegn 28. Síð- ar um daginn var fjárlagafrumvarpið sjálft afgreitt sem lög frá Alþingi. Þar er fjárheimild fyrir einum millj- arði vegna fyrrgreinds samkomu- lags við öryrkja. Alþingi á hins vegar eftir að afgreiða sjálft frumvarpið um breytingu á lögum um almanna- tryggingar, þar sem lögð er til hækkun á grunnlífeyri öryrkja. Ekki kynnt sem kosningaloforð Margir þingmenn gerðu grein fyr- ir atkvæðum sínum um breytingar- tillögurnar. Jón Bjarnason, Vinstri grænum, sagði að þjóðin hefði glaðst í mars sl. þegar tilkynnt hefði verið um samkomulag milli ríkisstjórnar- innar og Öryrkjabandalags Íslands. Í samkomulaginu hefði komið fram að bæta skyldi kjör öryrkja, sérstak- lega þeirra sem yngri væru. „Sam- komulagið var kynnt með stolti,“ sagði hann, „en það var ekki kynnt eins og það væri liður í kosningabar- áttu Framsóknarflokksins“. Og áfram hélt hann: „Nú við þriðju um- ræðu fjárlaga á að svíkja öryrkja um 500 milljónir króna. Það á að standa við orð sín. Það á að standa við gerða samninga. Orð skulu standa.“ Helgi Hjörvar, Samfylkingu, sagði að samkomulagið við Öryrkjabanda- lagið hefði verið gert í mars sl. þegar ríkisstjórnin hefði róið lífróður rétt fyrir kosningar. Hann sagði að Tryggingastofnun ríkisins hefði þeg- ar reiknað út kostnað samkomulags- ins og í ljós hefði komið að það kost- aði 528,8 milljónum meira en fram kæmi í fjárlagafrumvarpinu. „Við þennan samning á að standa eins og samninga um kjör fólks yfirleitt,“ sagði hann og benti jafnframt á að hér væri um ævikjör þeirra öryrkja að tefla sem ekki væru vinnufærir. Að lokum sagði Helgi: „Þess vegna segi ég já, virðulegi forseti, [við breytingartillögunni] um leið og ég bið hæstvirta ríkisstjórn að gera það nú á aðventunni Guði til dýrðar að vitna ekki til varnar sér í heilaga ritningu.“ Vísaði hann þar til um- mæla Guðna Ágústssonar landbún- aðarráðherra, í annarri atkvæða- greiðslu, nokkru fyrr, er tengdist fjárlagafrumvarpinu, en þar sagði ráðherra m.a. : „Ég segi við forsvars- menn Öryrkjabandalagsins: Guð fyrirgefi ykkur. Þið vitið ekki hvað þið eruð að gjöra.“ Almenningur greiðir milljarðinn Þingmenn stjórnarandstöðunnar sem þátt tóku í umræðunni ítrekuðu að orð ættu að standa og Guðjón A. Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, sagði að hann hefði lært það við gerð kjarasamninga í 25 ár að menn stæðu við orð sín eða leituðu samkomulags um breytingar ef út af myndi bregða. „Sú aðferð sem hér er notuð til að gera einhliða breytingar af hálfu ríkisvaldsins er fordæma- laus að mínu mati.“ Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, lagði á hinn bóginn áherslu á að í fjárlagafrum- varpinu væri gert ráð fyrir einum milljarði til að aldurstengja örorku- bætur í samræmi við það samkomu- lag sem gert var við öryrkja í mars. „Réttindabarátta öryrkja mun halda áfram og það er ákvæði um það í greinargerð frumvarpsins sem lagt hefur verið fram að þetta mál verði yfirfarið á miðju næsta ári,“ útskýrði hann. Hjálmar Árnason, þingflokksfor- maður Framsóknarflokksins, tók upp hanskann fyrir heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, og sagði að það væri hálfdapurlegt að hlýða á hvern stjórnarandstæðinginn á fæt- ur öðrum, koma upp í ræðustól og sakfella heilbrigðisráðherra um ómerkilegheit, brigsli, lygar og svik. „Þeir sem hafa kynnst stjórnmála- manninum Jóni Kristjánssyni og manneskjunni Jóni Kristjánssyni vita að þeir sem svo tala dæma sig sjálfir.“ Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, benti á að einn milljarður þýddi um eitt hundrað þúsund kr. á hvern einasta öryrkja í landinu á næsta ári eða um 8.000 kr. á hvern einasta öryrkja í hverjum mánuði. „Þetta kostar skattgreið- endur 4.000 kr. á mann – hvern ein- asta Íslending – eða sextán þúsund krónur á fjögurra manna fjöl- skyldu.“ Hann sagði að það væri nefnilega ekki ríkisstjórnin sem greiddi milljarðinn heldur almenn- ingur í landinu. Breytingartillögur um 500 milljónir til öryrkja felldar Stjórnarandstæðingar segja að orð skuli standa Morgunblaðið/Jim Smart Fylgst með: Þingmenn hlýða á atkvæðaskýringar í gær. ALÞINGI samþykkti í gær beiðni þess efnis að dómsmálaráðherra leggi fram á Alþingi skýrslu um af- drif útlendinga sem sótt hafa um hæli á Íslandi síðastliðin átta ár. Jó- hann Ársælsson, þingmaður Sam- fylkingarinnar, var fyrsti flutnings- maður skýrslubeiðnarinnar. Óskað er eftir því að í skýrslunni verði m.a. gerð grein fyrir fjölda hælisleitenda hvert ár, þjóðerni, aldri, kyni, hjúskaparstöðu og menntun. Ráðherra skili skýrslu um hælisleitendur ♦ ♦ ♦ ATVINNA mbl.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.