Morgunblaðið - 06.12.2003, Síða 59

Morgunblaðið - 06.12.2003, Síða 59
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 2003 59 og hafði verið þar lengi. Maja var á sínum stað og hellti uppá kaffið og kom alltaf með eitthvað með því. „Hvað segir þú svo, elskan mín?“ sagði hún alltaf þegar við vorum komnar með kaffibollann. Við gátum spjallað um heima og geima og alltaf stutt í hláturinn. Eldhúsið hennar Maju var fullt af hlýju og húsið henn- ar allt. Þetta rauða yndislega hús sem henni þótti svo vænt um. Lítið hús en með fullt af herbergjum til að rúma alla gestina sem þar voru öll sumur. Stofan var full af blómstrandi blómum sem hún hugsaði svo und- urvel um. Hún var myndarleg hús- móðir svo aldrei sást blettur eða hrukka neins staðar. Maja hugsaði vel um allt hvort sem það voru dýr, blóm, fólk eða hús. Hún var kirkjuvörður og meðhjálp- ari í mörg ár og hugsaði jafnvel um kirkjuna og allt annað sem hún kom nærri. Hún Maja var sannkölluð hefðar- kona, vel klædd, grönn, dökkhærð, vel tilhöfð, fjörleg með einstaklega fallegt viðmót Hafði áhuga fyrir mönnum og málefnum. Það sumraði hjá mér þegar við Maja tókum okkur ferð á hendur og fórum niður á Hveravelli til að kaupa sumarblómin rétt fyrir 17. júní ár hvert. Hún valdi af kostgæfni hvert blóm. Hvað ætti að vera undir suð- urveggnum og hvað undir austur- veggnum. Hvað ætti að fara í kirkju- garðinn á leiði skyldfólksins sem hún hugsaði svo fallega um. Hún fylgdist með mér gróðursetja og ég henni. Þessar ferðir voru skemmtiferðir. Hlökkuðum til sumarsins sem í vændum var, allra gestanna sem við áttum von á og vorum léttar í skapi. Höfðum báðar gaman af því að setja niður blóm. María Þorsteinsdóttir ræktaði svo sannarlega garðinn sinn í þess orðs fyllstu merkingu. Hún átti fjöldann allan af vinum og ættingjum sem unnu henni fyrir þá yndislegu hlýju og óeigingjarna umhyggju sem hún sýndi samferðarmönnum sínum alla tíð. Það var fegurð sem birtist í sam- bandi hennar og bróður hennar hon- um Jóni Pétri sem lést fyrir nokkr- um árum. Þessi sysktkini iðuðu af lífsfjöri og manngæsku. Bjuggu saman, eignuðust hvorugt börn sjálf en áttu þó fullt af börnum sem höfðu þáð hjá þeim skjól, sumardvöl eða annan viðurgerning. Ég var svo lánsöm að fá um tíma að rækta garðinn hennar. Garðinn við æskuheimilið hennar, gamla bæ- inn í Reykjahlíð. Það gladdi mig óumræðanlega hvað henni þótti vænt um það að ég skyldi hugsa um þennan garð og hún þreyttist ekki á því að segja mér hvernig hann hafði verið. Yndislegasti blómagarður á Íslandi. Hún hafði yndi af því að sitja í þessum garði og drekka kaffi. Við stofnsettum kaffihús í því húsi sem hún ólst uppí, þar sem drukkið er í gömlu stofum þeirra öldnu Reyk- hlíðinga. Blómagarðurinn tilheyrði kaffihúsinu. Henni þótti líka alltaf jafngaman að koma inn í kaffihúsið. Í húsið sem hún ólst upp í og átti svo margar minningar frá. Í þessu húsi sem hún hafði dansað mikið og Jón Pétur bróðir hennar margoft stjórn- að marsinum. Hún var mikil fé- lagsvera enda alin upp í glaðværum hópi frændsystkina. Minningar um ungdómsárin leiddu alltaf fram bros á vör. Maja unni sveitinni sinni heitt. Minningar um það þegar við Maja stóðum á túninu hennar og dásöm- uðum fegurð sveitarinnar í brakandi frosti lýsta upp af tunglsljósinu, ylja um hjartarætur. Að kynnast fólki eins og henni Maju sem ann um- hverfi sínu svo mjög eins og hún gerði er góður og nytsamur skóli. Ástríðan og ástin sem í slíkri elsku felst er eitthvað sem vandfundið er á tímum græðgishyggjunar. Verð- mætin fólgin í kærleika. Dóttir mín spurði mig þegar við heyrðum lát Maju: „Ætli hún hafi lif- að skemmtilegu lífi?“ Þetta varð mér umhugsunarefni. Hvað er skemmti- legt líf? Ég veit allavega að Maja fór ekki varhluta af erfiðleikum og mót- læti lífsins, missti meðal annars systkini sín ung. Hún giftist ekki og eignaðist ekki börn eins og hana hef- ur eflaust langað til. Hún ferðaðist ekki um heimshöfin. Aldrei heyrði ég hana kvarta eða syrgja horfna tíð eða drauma sem ekki rættust. Hún kunni að njóta alls þess smáa og stóra sem lífið hefur uppá að bjóða. Hún kunni að elska náungann eins og sjálfan sig. Hún unni hænunum sínum, heimalningunum, blómunum, kirkjunni, kvenfélaginu, sveitinni sinni og samferðamönnunum. Hún var fögur fyrirmynd fyrir okkur öll. Fyrirmynd sem okkur vantar oft til að vísa veginn. Hugur minn reikar til laufa- brauðsgerðarinnar þegar hún kom til okkar og breiddi út kökur eins og forkur með hvíta fallega svuntu og glettið brosið. Alltaf boðin og búin. Á þessari aðventu sem nú fer í hönd „breiðir hún út“ í nýjum heimkynn- um og verður eflaust í hópi margra frændsystkina sinna úr gamla Reykjahlíðarbænum, kannski það verði marserað. Ég er þakklát fyrir öll kvöldin sem ég sat og drakk með henni kaffi í þessu hlýja eldhúsi þar sem hver hlutur átti sína sögu. Þar sem við gátum skrafað og hlegið þótt 38 ár væru á milli okkar og tíminn flaug þar til enn einn dagur var að kveldi kominn. Þakklát fyrir hvað hún var alltaf góð við stelpurnar mínar, Þur- íði og Ástríði. Þakklát fyrir allt sem ég lærði af henni. Fari hún í friði. María Rúriksdóttir. „Viltu ekki bita með mér, Matti minn?“ Ég þáði það, minnugur veit- inganna hjá Dísu í Meiri-Tungu. Mig grunaði ekki, að ég var um það bil að fara að borða einhverja sérstæðustu og bestu máltíð, sem ég hef fengið. Ragnar seildist undir kojuna og tók fram vandaðan trékassa, svokallaða skrínu, en í henni var maturinn. Hann tók upp hangikjöt, saltkjöt, harðfisk, svið, smjör, kæfu, brauð og ótal margt annað. Svo tók hann upp vasahnífinn og skar sneiðar og rétti mér. Þetta var heimaverkaður ís- lenskur sveitamatur, eins og hús- freyjur hafa nestað bændur sína með í fjallferðir á liðnum öldum. Og við sátum þarna í hinni „nóttlausu voraldar veröld“ og horfðum út á vatnið glitrandi í kvöldsólinni borð- andi skrínukostinn. Ég átti þarna ógleymanlega stund með Ragnari frænda. Ég geymi hana í minning- unni. Þar fyrir utan hafði þessi mál- tíð varanleg áhrif á það, hvernig ég hef nestað mig í fjallaferðir síðan. Lífið heldur áfram, hluti af því er dauðinn. Dísa lést fyrir 9 árum og varð öllum harmdauði, sem þekktu hana, en þeim þó mest sem þótti vænst um hana. Ragnar lét útbúa af henni málverk, sem hann hafði hjá sér í litla húsinu, sem hann byggði norðan við gamla bæjarstæðið í Meiri-Tungu. Ég kom þangað nokkrum sinnum að heimsækja hann og alltaf var gestrisni og vin- áttan sú sama. Kaffibrauðið var að vísu annað. Í stað brauðsins góða voru nú bakaríiskökur, en Ragnar bætti það upp með glaðværð sinni og hjartahlýju. Hann sagði mér einu sinni, að úr húsinu væri fallegasta fjallasýn í heimi. Alveg frá Selja- landsmúla og upp í Borgarfjörð. Og eftir að hafa athugað málið betur held ég að þetta sé rétt hjá honum. Eitt sinn fyrir 5 til 6 árum komum við hjónin til hans í litla húsið, eins og ég kallaði það. Ragnar bauð okk- ur strax kaffi. Hann sagði okkur, að hann væri að bíða eftir Sæmundi tengdasyni sínum og ætluðu þeir saman inn í Veiðivötn. Þá var Ragn- ar líklega 82-83 ára gamall. Meðan Ragnar var frammi í eldhúsi hnippti konan mín í mig og segir: „Sjáðu hvað er þarna í sófanum.“ Jú, þarna í sófanum lá göngustafur hins aldna höfðingja og hjá honum einn ullar- sokkur og ekki leyndi það sér, hvað í honum var! Við brostum og mér hlýnaði í hjartaræturnar. Ekki er langt síðan Raggi frændi fór síðast á fjöll. Það var líklega í fyrrahaust, að ég hringdi í hann og hann sagði mér, að hann væri nýkominn innan úr Jökulgili. Hafði hann farið þangað með Sæmundi tengdasyni sínum. Það var hrein unun að heyra hann tala um þetta ferðalag. Hann var svo glaður yfir því að geta látið gamlan draum rætast, en hann hafði ekki komið þangað inneftir fyrr. Síðast sá ég Ragnar 19. nóvember síðastlið- inn, mánuði áður en hann hefði orðið níræður. Ég heimsótti hann á elli- heimilið á Hellu. Þá var honum farið að hraka, en þó var jákvæðnin og bjartsýnin söm og áður. Þegar ég spurði hann, hvernig hann hefði það, sagðist hann hafa það ágætt og brosti. Ég var ekki alveg viss um hvort hann þekkti mig. Ég sat hjá honum svolitla stund. Við sögðum ekkert. Þetta minnti á vorkvöldið forðum í Veiðivötnum. Fyrir utan gluggann var það nú köld vetrarsólin sem skein á yfirborð Ytri Rangár, þar sem hún streymdi hjá á leið sinni til hafs. Ég kvaddi og gekk svo út í heiðríkjuna og við mér blasti þessi óviðjafnanlegi fjallahringur í allri sinni dýrð, núna hvítur. Ég settist upp í bílinn og keyrði fram hjá vega- mótum að Litlu-Tungu og síðan að vegamótum Meiri-Tungu. Ég gerði mér grein fyrir því, að líklega mundi ég ekki sjá Ragga frænda aftur á lífi og sú varð raunin. Blessuð sé minning Ragnars Mar- teinssonar. Ég og fjölskylda mín sendum frændfólki okkar, afkomendum Dísu og Ragnars, innilegar samúðar- kveðjur. Guð veri ávallt með ykkur öllum. Marteinn Guðjónsson. ✝ Vilhelm Mars-elíus Ágústsson fæddist í Siglufirði 17. mars 1921. Hann lést í Sjúkrahúsi Siglufjarðar 1. des- ember síðastliðinn. Foreldrar hans voru Steinþóra Barðadótt- ir og Ágúst Einar Sæby. Vilhelm var fjórða barnið í röð fimm systkina sem voru: Aldís Björg, lát- in, Guðrún Hafdís, látin, Andrés, látinn, og Barði Guðmund- ur. Hinn 25. september 1943 kvænt- ist Vilhelm Kristveigu Skúladótt- ur frá Hólsgerði í Köldu-Kinn í Suður-Þingeyjarsýslu, f. 29. mars 1923. Börn þeirra eru: 1) Stein- þóra, f. 1943, gift Atla Benedikts- syni. Dætur þeirra eru Álfheiður, Kristveig og Þóra. 2) Ágúst Einar, f. 1946, kvæntur Hildi Egils- dóttur. Dóttir þeirra er Hafdís Hrönn. 3) Sigurveig Jakobína, f. 1955, gift Ólafi Ólafssyni. Dætur þeirra eru Rannveig Rós og Halla Ósk. 4) Auður, f. 1959, gift Steingrími Sigfús- syni, þau skildu. Börn þeirra eru Vil- helm Björn og Birna. Vilhelm bjó alla ævi á Siglufirði. Hann vann almenn verkamanna- störf bæði til sjós og lands. Vilhelm vann lengi sem netagerðarmaður en síðustu ár starfsævi sinnar vann hann hjá SR á Siglufirði. Útför Vilhelms fer fram frá Siglufjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Vegir skiptast. – Allt fer ýmsar leiðir inn á fyrirheitsins lönd. Einum lífið arma breiðir, öðrum dauðinn réttir hönd. Einum flutt er árdagskveðja, öðrum sungið dánarlag, allt þó saman knýtt sem keðja, krossför ein með sama brag. Veikt og sterkt í streng er undið, stórt og smátt er saman bundið. (Einar Ben.) Með þessum orðum skáldsins kveðjum við föður okkar. Blessuð sé minnig hans. Steinþóra, Ágúst, Jakobína og Auður. Baráttu Villa afa fyrir lífinu er lokið. Síðan í apríl árið 2000 hefur hann dvalið á Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar og notið þar einstakr- ar umönnunar. Minningar okkar um afa eru margar og góðar. Í huga okkar er hann trausti maðurinn sem alltaf var hægt að reiða sig á og jafn- framt sá ljúfi og góði þar sem hann mátti vart heyra það er for- eldrarnir siðuðu okkur. Annað- hvort sagði hann afi okkar hug sinn allan eða þagði, hjá honum var ekkert hálfkák. Afi sá alla tíð til þess að okkur systkinin vanhagaði ekki um neitt, hvorki veraldlegt né andlegt. Hann lagði áherslu á það við okk- ur að vera heiðarleg og sjálfum okkur samkvæm. Ekki síður lagði hann áherslu á dugnað og að leggja þyrfti hart að sér til að ná settum markmiðum hvort heldur var í námi eða áhugamálum. Hann vissi af eigin reynslu að það yrði að hafa fyrir hlutunum en samt finnst okkur það ofurlítil mótsögn þar sem hann mátti aldrei af því vita að okkur vanhagaði um nokk- urn skapaðan hlut. Ferðir okkar systkinanna á Sigló eru margar þar sem afi fór með okkur á bryggjuna til að bleyta öngul eða í skógræktina með nesti. Manna best skildi hann að þegar á skógræktarsvæðið kom vildum við komast sem næst Leyningsánni þar sem við gátum sullað, vaðið og skvett. Við erum þakklát og stolt af afa okkar. Blessuð sé minning hans. Vilhelm og Birna. Okkur systurnar langar til að minnast afa í nokkrum orðum. Minningarnar eru margar og góð- ar og það er gott fyrir sálina að rifja þær upp. Það var alltaf svo gaman að koma til afa og ömmu í Háveginn, vel tekið á móti okkur, mikilvægt fólk komið í heimsókn. Að fá að vera nokkra daga einn hjá þeim, það voru forréttindi. Bíða úti eftir afa og sjá þegar hann kom gang- andi með brúsann sinn og boxið í netinu, hlaupa á móti honum og fá að stinga litlu hendinni sinni í stóra hlýja lófann hans. Oft var tekið í spil og afi passaði vel upp á að sigurinn lenti réttum megin. Þegar amma spurði hvernig stæði á sigurgöngu okkar, svöruðum við því til að afi fengi bara svona léleg spil. Afi mat fjölskylduböndin mikils, það fundum við barnabörnin og sáum t.d. í samskiptum hans og systkina hans. Þau voru svo náin og góðir vinir og gættu hvert ann- ars vel. Amma var stóra ástin hans, hann talaði um „hana“ með áherslu og bliki í augum og sagði að það elskuðu hana allir. Siglufjörður var besti staður- inn, það fannst afa. Hann fæddist þar, ólst upp, stofnaði fjölskyldu með þingeyskri dís og átti þar sína ævidaga. Afi vann ýmis störf til sjós og lands, hann var hörku- duglegur og taldi ekki eftir sér erfiðið. Eftir að afi og amma hættu að vinna komu þau stundum í heim- sókn til barna sinna og það voru góðir tímar. Sérstaklega vorum við systur spenntar ef þau ætluðu að koma um jólin því það gerði þau ennþá skemmtilegri. Afi var traustur og heiðarlegur maður sem við kveðjum nú með söknuði og þökkum fyrir að hafa fengið að njóta umhyggju hans og góðmennsku. Álfheiður, Kristveig og Þóra. Elsku afi, nú hefur þú loks feng- ið þann frið sem þú þráðir og líður vonandi vel á þeim stað sem þú ert nú á. Þótt þú hafir verið veikur síðustu árin munum við skotturn- ar þínar vel eftir þér áður en þú varðst veikur. Villi afi á Sigló var alltaf svo skemmtilegur og vildi allt fyrir okkur gera; bera okkur á háhesti, draga okkur í snjónum í þvotta- bala eða fara með okkur í búðina. Það þurfti ekki nema eitt orð og ætíð var svarið já já góan mín og haldið af stað með bros á vör. Við systurnar munum vel eftir því þegar þið amma voruð um tíma hjá Auði og fjölskyldu í Drápuhlíð 2. Þennan tíma komum við syst- urnar nokkrum sinnum í borgar- ferð með mömmu og pabba. Þá var mesta sportið að fá að fara einn hring með strætó. Þá stóð nú ekki á afa að drífa sig með skott- urnar sínar og yfirleitt var amma tekin með, sama hvernig viðraði. Ekki má gleyma spilamennsk- unni! Ósjaldan voruð þið amma fengin til að spila við okkur syst- urnar þegar við komum í heim- sókn. Á meðan allir hinir spiluðu af hörku og gáfu ekkert eftir sást þú nú alltaf til þess að yngsta skottið fengi að vinna nokkrum sinnum. Svona varstu alltaf jafn mikill barnakarl, vildir alltaf fá að heyra af okkur, hvað við værum að gera og hvort allt gengi nú ekki vel. Það var aldrei neitt of mikið eða gott fyrir öll skottin þín, þú hafðir alltaf tíma til þess að sinna þeim. Ég fel í forsjá þína, Guð faðir, sálu mína, því nú er komin nótt. Um ljósið lát mig dreyma og ljúfa engla geyma öll börnin þín, svo blundi rótt. (M. Joch.) Elsku afi, takk fyrir allt. Þínar skottur úr Eyjum, Rannveig Rós og Halla Ósk. VILHELM ÁGÚSTSSON MORGUNBLAÐIÐ birtir afmælis- og minningargreinar endur- gjaldslaust alla daga vikunnar. Greinunum má skila í tölvupósti (net- fangið er minning@mbl.is - svar er sent sjálfvirkt um leið og grein hefur borist) eða á disklingi og þarf útprentun þá að fylgja. Nauðsyn- legt er að tilgreina símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnusíma og heimasíma). Tekið er á móti afmælis- og minningargreinum á 1. hæð í húsi Morgunblaðsins, Kringlunni 1 í Reykjavík, og á skrifstofu Morgunblaðsins Kaupvangsstræti 1 á Akureyri. Ekki er tekið við handskrifuðum greinum. Minningargreinum þarf að fylgja formáli með upplýsingum um hvar og hvenær sá sem fjallað er um er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin verð- ur gerð og klukkan hvað. Ef birta á minningargrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr. Ef út- för er á sunnudegi, mánudegi eða þriðjudegi þurfa greinarnar að ber- ast fyrir hádegi á föstudegi. Berist greinar hins vegar ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist á réttum tíma. Birting afmælis- og minningargreina
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.