Morgunblaðið - 06.12.2003, Blaðsíða 82

Morgunblaðið - 06.12.2003, Blaðsíða 82
DAGBÓK 82 LAUGARDAGUR 6. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Fréttir Bókatíðindi 2003. Númer laugardagsins 6. desember er 097614. Mæðrastyrksnefnd Kópavogs, Fannborg 5. Fatamóttaka og fataút- hlutun þriðjudaga kl. 13–18 og fimmtudaga kl. 15–18, sími 867 7551. Mannamót Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Félags- heimilið Hraunsel er opið alla virka daga frá kl. 9–16. Gjábakki, Fannborg 8. Laufabrauðsgerð eldra fólks verður í dag, byrj- að verður að skera út kl. 14, um kl. 17 spilar skólahljómsveit Kópa- vogs, kaffistofan opin. Fólk er hvatt til að hafa með sér skurðbretti og hnífa og ílát undir kök- urnar, laufa- brauðskökur verða seldar á kostn- aðarverði. Allir vel- komnir. Gönguklúbbur Hana- nú. Morgunganga kl. 10 laugardagsmorgna frá Gjábakka. Krumma- kaffi kl. 9. Sjálfsbjörg, félag fatlaðra á höf- uðborgarsvæðinu, Há- túni 12, jólahlutavelta og kaffisala, opið frá kl. 14–17. Kvenfélag Kópavogs Hamraborg 10, 2. hæð heldur sinn árlega jóla- basar í dag, laugardag, kl. 14. Heitt súkkulaði og vöfflur til sölu. Gigtarfélagið. Leikfimi alla daga vikunnar. Létt leikfimi, bakleik- fimi karla, vefjagigt- arhópar, jóga, vatns- þjálfun. Einn ókeypis prufutími fyrir þá sem vilja. Uppl. á skrifstofu GÍ, s. 530 3600. GA-Samtök spilafíkla, Fundarskrá: Þriðjud.: Kl. 18.15, Seltjarnar- neskirkja, Seltjarn- arnes. Miðvikud.: Kl. 18, Digranesvegur 12, Kópavogur og Egils- staðakirkja, Egils- stöðum. Fimmtud.: Kl. 20.30, Síðumúla 3–5, Reykjavík. Föstud.: Kl. 20, Víðistaðakirkja, Hafnarfirði. Laugard.: Kl. 10.30, Kirkja Óháða safnaðarins, Reykjavík og Glerárkirkja, Ak- ureyri. Kl. 19.15 Selja- vegur 2, Reykjavík. Neyðarsími: 698 3888. Samtök þolenda kyn- ferðislegs ofbeldis, fundir mánudaga kl. 20 að Sólvallagötu 12. Stuðst er við 12 spora kerfi AA-samtakanna. Oa samtökin. Átröskun / Matarfíkn / Ofát. Fundir alla daga. Upp- lýsingar á www.oa.is og síma 878 1178. Ásatrúarfélagið, Grandagarði 8. Opið hús alla laugardaga frá kl. 14. Kattholt. Flóamark- aður í Kattholti, Stang- arhyl 2, er opinn þriðjud. og fimmtud. frá kl. 14–17. Leið 10 og 110 ganga að Kattholti. Fífan Dalsmára 5 í Kópavogi, tart- anbrautir eru opnar al- mennu göngufólki og gönguhópum frá kl.10– 11.30 alla virka daga. Blóðbankabíllinn. Ferðir blóðbankabíls- ins: sjá www.blodbank- inn.is. Minningarkort Minningarkort Hvíta- bandsins fást í Kirkju- húsinu, Laugavegi 31, s. 562 1581 og hjá Kristínu Gísladóttur, s. 551 7193 og Elínu Snorradóttur, s. 561 5622. Minningarkort Sjúkra- liðafélags Íslands eru send frá skrifstofunni, Grensásvegi 16, Reykjavík. Opið virka daga kl. 9–17. S. 553 9494. Minningarkort Vina- félags Sjúkrahúss Reykjavíkur eru af- greidd í s. 525 1000 gegn heimsendingu gíróseðils. Minningarkort Breið- firðingafélagsins, eru til sölu hjá Sveini Sig- urjónssyni s. 555 0383 eða 899 1161. Minningarkort Kven- félagsins Hringsins í Hafnarfirði. Minning- arsjóður í vörslu kven- félagsins Hringsins í Hafnarfirði. Minning- arkortin fást nú í Lyfj- um og heilsu, versl- unarmiðstöðinni Firði í Hafnarfirði. Kortið kostar kr. 500. Minningarkort, Félags eldri borgara Selfossi. eru afgreidd á skrifstof- unni Grænumörk 5, miðvikudaga kl. 13–15. Einnig hjá Guðmundi Geir í Grænumörk 5, s. 482 1134, og versl- uninni Írisi í Miðgarði. Slysavarnafélagið Landsbjörg, Stang- arhyl 1, 110 Reykjavík. S. 570 5900. Fax: 570 5901. Netfang: slysavarnafelag- id@landsbjorg.is Minningarkort Rauða kross Íslands eru seld í sölubúðum Kvenna- deildar RRKÍ á sjúkra- húsum og á skrifstofu Reykjavíkurdeildar, Fákafeni 11, s. 568 8188. Styrktarfélag krabba- meinssjúkra barna. Minningarkort eru af- greidd í s. 588 7555 og 588 7559 á skrifstofu- tíma. Í dag er laugardagur 6. desem- ber, 340. dagur ársins 2003, Niku- lásmessa. Orð dagsins: Ef ein- hver þykist hafa öðlast þekkingu á einhverju, þá þekkir hann enn ekki eins og þekkja ber. (I.Kor. 8, 2.)     Ari Edwald, fram-kvæmdastjóri Sam- taka atvinnulífsins, fjallar í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi um frumvarp fjármálaráðherra um breytingar á réttindum og skyldum ríkisstarfs- manna. „Rík ástæða er til að hrósa fjármálaráð- herra fyrir þetta frum- varp,“ segir Ari. Hann bendir á að opinberir starfsmenn hafi ýmis réttindi umfram fólk á al- mennum vinnumarkaði, t.d. á sviðum lífeyris-, or- lofs- og veikindaréttar, auk uppsagnarverndar.     Umframréttindi op-inberra starfsmanna hafa óneitanlega áhrif á hinn almenna vinnumark- að. Kemur það meðal annars fram í auknum kröfum á hendur fyr- irtækjum á almennum markaði og í litlu flæði fólks milli opinbera og al- menna vinnumarkaðar- ins. Margir stjórnendur hjá hinu opinbera hafa kvart- að yfir því hamlandi starfsumhverfi sem þeir búa við, ekki síst hvað varðar uppsagnir og ráðningar. Þessi viðhorf komu skýrt fram á ráð- stefnu Félags forstöðu- manna og Stofnunar stjórnsýslufræða í mars sl. Ríkisútvarpið hafði eftir einum forstöðu- manni ríkisstofnunar að það væri nokkurn veginn útilokað að segja upp starfsfólki og eftir öðrum að það væri meiriháttar mál. Ríkið hefur enda ítrekað beðið lægri hlut í dómsmálum um gildi áminninga og uppsagna, og forstöðumenn rík- isstofnana hafa í kjölfarið ekki treyst sér til að segja upp starfsfólki, jafnvel þótt það standi sig ekki í starfi.“     Ari segir að lengi velhafi verið vísað til þess að laun opinberra starfsmanna væru lægri en gerðist á almenna vinnumarkaðnum. „Í ljósi þess að laun hjá hinu op- inbera hafa hækkað mik- ið á undanförnum árum, jafnvel áratugum, og mun meira en á almennum vinnumarkaði, hafa sér- kjör opinberra starfs- manna varðandi uppsagn- arvernd annars vegar og lífeyrisréttindi hins vegar stungið sífellt meira í augun,“ skrifar hann. „Staðreyndin er sú að ekki er unnt að jafna kjör annarra landsmanna við þessi réttindi opinberra starfsmanna, auk þess sem það myndi hafa nei- kvæð áhrif á hagvöxt og þar með lífskjör þegar upp er staðið, að reyra efnahagslífið í fjötra ósveigjanlegs vinnumark- aðar ... Jöfnun getur því ekki átt sér stað nema með því að dregið verði úr sérkjörunum, þannig að allur vinnumarkaður- inn búi við sambærilegar reglur. Frumvarp fjár- málaráðherra felur í sér skref í þá átt, í átt að eins- leitari vinnumarkaði á Ís- landi, og á ráðherrann sem fyrr segir skilið hrós fyrir.“ STAKSTEINAR Fjármálaráðherra hrósað Víkverji skrifar... Inn um bréfalúguna hjá Vík-verja datt í vikunni auglýs- ingabæklingur frá leik- fangaverzlun, sem var í snatri fjarlægður af dyramottunni og stungið á vísan stað, þar sem smáfólkið á heimilinu sér hann ekki. Víkverji dró hann hins veg- ar upp í fyrrakvöld og fór að blaða í honum í leit að hugmynd að jólagjöf handa yngri dóttur sinni, tveggja ára orkubolta með óseðjandi hreyfi- og fram- kvæmdaþörf – Víkverji var t.d. á höttunum eftir hoppdýnu, verk- færakassa eða einhvers konar klif- urbúnaði fyrir þá stuttu. x x x Skrifara þótti hins vegar athygl-isvert að sjá hvernig börnum og leikföngum var stillt saman á síðum bæklingsins; óhætt er að segja að sú uppstilling endurspegli mjög hin svokölluðu hefðbundnu kynhlutverk í heimi hinna fullorðnu. Auðvitað er það t.d. stelpa, sem ýtir á undan sér glæsilegum ræstivagni með ellefu aukahlutum. Hefur einhver séð karlmann eiga við svoleiðis græju? Stelpur eru jafnframt allsráðandi í ríki smábarnabrúða, dúkkukerra, pela, snuða, skiptiborða og bleyju- taskna – enda kemur umönnun smá- barna karlmönnum ekki við. Þegar flett er upp á eldhústækjunum er það sömuleiðis stelpa, sem stýrir leikfangahrærivél styrkri hendi eins og eðlilegt verður að teljast, en strákur föndrar við drykkjarvél, enda karlmannsverk að blanda drykk handa gestum. x x x Ekkert leikfanga-framkvæmda-stjóraskrifborð er í bækl- ingnum, en ef svo hefði verið verður að gera ráð fyrir að þar hefði setið lítill vatnsgreiddur drengur. Lítilli stúlku er hins vegar trúað fyrir hlutverki í við- skiptalífinu með því að stilla henni upp við leikfangabúð- arkassa. Strákur fær hins vegar útrás fyrir framkvæmdagleðina við teikni- og byggingaborðið og að sjálfsögðu eru strákar líka allsráðandi á síðunni með sleð- unum, snjóbrettunum og hinu dótinu, sem krefst kjarks, úti- veru og hreyfingar. Sums staðar eru kynin auðvitað jöfn; þau fá t.d. bæði að keyra leik- fangabíl, enda er löngu viðurkennt að konur geta náð bílprófi rétt eins og karlar. Strákar annast hins vegar trommu- og gítarleik, ef marka má bæklinginn, en stúlkurnar syngja í míkrófón, alveg eins og hjá Írafári og hinum alvörupoppsveitunum. x x x Þess má loks geta að Víkverji fannhina fullkomnu jólagjöf handa dóttur sinni; háværa leikfanga- vélsög, sem sú stutta verður án efa hæstánægð með. Ekki seinna vænna að byrja að helga sig börnum og heimili. Svar frá Strætó bs. „FARÞEGI“ skrifaði um „Strætó sem ekki stoppar“ í Velvakanda föstudaginn 28. nóvember sl. Í bréfinu kemur fram að viðkomandi hafi verið að koma frá Glæsibæ á sunnu- dagskvöldi, en hann og annar farþegi hugðust taka leið 6 á mótum Miklubraut- ar og Grensásvegar. Vagn- inn hafi komið að biðstöð- inni, en haldið áfram án þess að stöðva. Við hjá Strætó bs. hörm- um atvikið og biðjumst vel- virðingar á því. Við viljum fullvissa alla farþega okkar og viðskiptavini okkar um, að hafi slíkt gerst hafi það verið óviljaverk. Í þessu sambandi viljum við árétta mikilvægi þess að farþegar sem bíða á bið- stöðvum okkar gefi vagn- stjóra aðvífandi vagns merki um að hann hyggist taka sér far, svo það fari ekki milli mála. Vera kann að vagnstjórinn í þessu um- rædda tilviki hafi talið að farþegarnir hafi ekki ætlað að taka sér far með vagn- inum, án þess að mat sé lagt á það. Laufey E. Sólveigardótt- ir skrifar bréf til Velvak- anda sem birtist miðviku- daginn 3. desember sl. Þar kemur fram að syni hennar hafi verið vísað úr strætisvagni fyrir það að hafa fæturna uppi á sætinu fyrir framan. Fram kemur í bréfinu að sonur Laufeyjar er heyrn- arskertur, og því hafi hann ekki heyrt aðfinnslur og að- varanir vagnstjórans. Jafn- framt kemur fram að hann hafi beðið á biðstöðinni eft- ir næsta vagni, en þá hafi 2–3 vagnar ekið framhjá, „hafa líklega verið beðnir um það“ eins og segir í nið- urlagi bréfsins. Vegna þessa atviks vilj- um við hjá Strætó bs. taka skýrt fram, að ekkert slíkt viðgengst hér, þ.e. að gefa fyrirmæli um að hunsa til- tekna farþega. Við leggjum áherslu á það við vagn- stjóra okkar að tryggja að vel sé gengið um strætis- vagnana. Því miður virða ekki allir farþegar tilmæli um góða umgengni, og þá reynist stöku sinnum nauð- synlegt að grípa til þess að vísa viðkomandi úr vagnin- um. Í þessu tilviki býst ég við að vagnstjórinn hafi ekki vitað um heyrnarskerðingu unga mannsins, og e.t.v. hefur hann því verið rekinn úr vagninum án þess að fá sanngjarna viðvörun. Sé það tilvikið biðjumst við velvirðingar á því. Með kveðju frá Strætó bs., Ásgeir Eiríksson, framkvæmdastjóri. Engin bókatíðindi ÉG er mjög ósátt við póst- dreifingu Íslandspósts. Þeir áttu að sjá um að dreifa Bókatíðindum en ég hef ekki fengið Bókatíðind- in enn 2. desember en ég bý við Grensásveg. Guðrún. Dýrahald Köttur fæst gefins MISTÝ er grá og hvít smá- vaxin læða, eins árs, ljúf og góð innikisa sem þarfnast nýs heimilis vegna flutn- inga. Búið er að orma- hreinsa hana, fylgihlutir, kattakassi, matardallar, rúm, matur og sandur fylgja. Ef einhver er svo góður að vilja taka hana að sér þá eru allar upplýsingar gefnar í síma 694 8225. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn LÁRÉTT 1 bráðdrepandi, 8 aflýsing, 9 vann ull, 10 reið, 11 venja, 13 hitt, 15 fáni, 18 ósoðið, 21 fákur, 22 metta, 23 bjórnum, 24 nokkuð langur. LÓÐRÉTT 2 heyvinnutæki, 3 sóar, 4 nafnbætur, 5 að baki, 6 höf- uð, 7 ró, 12 ótta, 14 þegar, 15 vatnsfall, 16 dáið, 17 sindur, 18 alda, 19 málm- inum, 20 strengur. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 fersk, 4 starf, 7 túlka, 8 erfir, 9 kóf, 11 keim, 13 frið, 14 ógæfa, 15 vott, 17 römm, 20 óða, 22 tómar, 23 undar, 24 risar, 25 nemur. Lóðrétt: 1 fátæk, 2 rölti, 3 klak, 4 stef, 5 aðför, 6 fáráð, 10 óværð, 12 mót, 13 far, 15 vitur, 16 Tómas, 18 öndum, 19 mær- ir, 20 órar, 21 auðn. Krossgáta 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.