Morgunblaðið - 23.12.2004, Side 41

Morgunblaðið - 23.12.2004, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. DESEMBER 2004 41 MINNINGAR Guðmundur var einn merkasti maður sem við höfum haft þann heiður að kynn- ast og munum við æv- inlega minnast hans með hlýju og söknuði. Það var í Nígaragúa árið 1972 sem leiðir okkar lágu saman, og hefur góð vinátta okkar í milli var- að síðan. Guðmundur tók okkur með til Íslands og fyrir það verð- um við ævinlega þakklát. Guðmundur var mikill sögumað- ur. Þegar að hann byrjaði að segja sögur var oft safnast saman í stof- unni til að hlýða á hann. Og sagði hann margar skemmtilegar sögur. Mér eru í minni jólin er hann settist við píanóið og spilaði jólalög og allir dönsuðu í kringum jólatréð í stofunni. Guðmundur kynnti okkur fyrir landi og þjóð, og ferðuðumst við með honum og fjölskyldu hans um landið. Við eigum margar minningar sem við munum varðveita í hjört- um okkar. Elsku fjölskylda, við vottum ykkur dýpstu samúð okkar. Megi guð vera með ykkur. Juanita og fjölskylda. Ótal sterkar minningar frá sam- starfi okkar Guðmundar E. Sig- valdasonar frá árinu 1984 og fram undir aldarlok blossa upp við fregnina af andláti hans. Tíminn einhvern veginn stöðvast og hann sem persóna og allt það sem við tókum þátt í saman á því við- burðaríka tímabili verður ljóslif- andi í huganum. Myndir frá eld- virkum svæðum víða um Evrópu, ráðstefnur, heimsóknir til Kína og Afríku, barátta við skrifstofubákn- ið í Brussel, samstarf við skemmti- legt fólk, og síðast en síst vinna við eldfjöll á Íslandi. Af miklu er að taka. Fyrstu kynni mín af Guðmundi voru, eftir á að hyggja, mjög dæmigerð fyrir hann. Ég hafði fal- ast eftir starfi hjá Norrænu eld- fjallastöðinni og þegar ég mætti í atvinnuviðtal til Guðmundar hafði ég reiknað með umræðu um ein- staka efnisatriði úr umsókn minni. En Guðmundur eyddi ekki miklum tíma í slíkt spjall, heldur spurði hvort ég vildi starfið og síðan var farið að ræða af kappi um þau verkefni sem þurfti að leysa. Ég komst að því seinna að hversdags- leg smáatriði voru ekki ofarlega á blaði hjá honum í starfi. Hann var stórhuga og kappsamur og sá hlut- ina í víðara samhengi en flestir aðrir. En Guðmundur var jafn- framt afar næmur og tilfinninga- ríkur maður og þegar vanda bar að höndum var gott að leita til hans. Hann rak Norrænu eldfjalla- stöðina af miklum metnaði og krafti og kom þessari litlu stofnun til vegs og virðingar, bæði hér á landi og ekki síður utan landstein- anna. Okkur sem störfuðum undir hans stjórn var teflt fram af mikl- um eldmóði, allt eftir starfsviði hvers og eins, og í raun var það helst meiri tími sem okkur skorti. Guðmundur var afar ritfær maður og með atorku sinni og dugnaði vann hann mikið starf fyrir íslensk jarðvísindi og nafn hans nýtur mikillar virðingar á því sviði víða um heim. Guðmundur E. Sigvaldason var sannarlega einn af fáum mönnum sem ég hef kynnst á lífsleiðinni GUÐMUNDUR SIGVALDASON ✝ Guðmundur Ern-ir Sigvaldason fæddist í Reykjavík 24. júlí 1932. Hann lést á Landspítala – háskólasjúkrahúsi í Fossvogi 15. desem- ber síðastliðinn og var útför hans gerð frá Dómkirkjunni 21. desember. sem ég lít á sem minn „mentor“ og það voru mikil forréttindi að fá að kynnast honum. Við Þórgunnur sendum Dóru og allri fjölskyldunni okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Hörður Halldórsson. Í annað sinn á þessu ári kveðja ís- lenskir jarðvísinda- menn einn forystu- manna sinna á liðinni öld. Snemma ársins lést Guðmundur Pálmason, sem í áratugi stýrði jarðhitadeild Orkustofnunar og nú, Guðmundur Sigvaldason, fyrrum forstöðumað- ur Norrænu eldfjallastöðvarinnar. Íslenskir jarðvísindamenn voru fáir og aðstaða þeirra fábrotin uns kom fram yfir 1970 er mikið upp- byggingarskeið hófst. Jarðvísindi við Háskóla Íslands voru stórefld, Jarðhitadeild Orkustofnunar varð að miðstöð hagnýtra jarðvísinda- rannsókna og Norræna eldfjalla- stöðin var sett á stofn. Henni var ætlað að vera norræn miðstöð í rannsóknum og þjálfun í eldfjalla- fræðum enda kostuð að mestu af Norrænu ráðherranefndinni og yf- ir henni var samnorræn stjórn. Guðmundur Sigvaldason var valinn til að veita stofnuninni forstöðu. Undir staðfastri stjórn hans varð hún að alþjóðlega viðurkenndri vísindastofnun sem veitti erlend- um jarðfræðingum aðgang að þeirri miklu tilraunastofu í jarð- fræði sem Ísland er. Þar var byggð upp góð aðstaða til rann- sókna þar sem fjöldi ungra nor- rænna jarðfræðinga hlaut þjálfun í eldfjallafræði. Eftir að Guðmundur lét af störfum forstöðumanns árið 1998 hélt hann áfram vísindastörf- um við stofnunina. Á þessu ári var Norræna eld- fjallastöðin sameinuð jarðvísinda- starfsemi Háskóla Íslands í nýja stóra akademíska rannsóknastofn- un, Jarðvísindastofnun háskólans. Innan hennar lifir Norræna eld- fjallastöðin áfram sem norrænt eldfjallasetur með stuðningi Nor- rænu ráðherranefndarinnar. Stjórn eldfjallastöðvarinnar varð að norrænni verkefnanefnd, sem hefur umsjón með eldfjallasetrinu. Jafnframt flutti stofnunin í Öskju, nýja náttúrufræðihúsið í Vatns- mýrinni. Þar starfaði Guðmundur Sigvaldson að rannsóknum sínum síðustu mánuði. Fyrir hönd norrænu verkefna- nefndarinnar flytjum við aðstand- endum og samstarfsmönnum Guð- mundar okkar dýpstu samúðar- kveðjur jafnframt því sem við þökkum hið mikla og árangursríka framlag Guðmundar Sigvaldasonar til norrænna jarðvísinda. Ólafur G. Flóvenz, Sten-Åke Elming. Ég kynntist Guðmundi E. Sig- valdasyni fyrst árið 1967 þegar ég var í framhaldsnámi í jarðefnaefni. Þá starfaði Guðmundur við Rann- sóknastofnun iðnaðarins. Hann bauð mér aðstöðu við þá stofnun til að vinna að efnagreiningum vegna náms míns sem ég þáði. Í námi sínu við Háskólann í Gött- ingen og síðar við Bandarísku jarðfræðastofnunina og Rann- sóknastofnun iðnaðarins hafði Guðmundur sinnt jarðhitarann- sóknum. Á Íslandi mætti hann tak- mörkuðum skilningi á þessum rannsóknum og var því í auknum mæli að snúa sér að eldfjalla- og bergfræði, einmitt þegar ég kynnt- ist honum fyrst. Meðan ég hafði aðstöðu á Rann- sóknastofnun iðnaðarins eyddi Guðmundur miklum tíma í að að- stoða mig. Síðar, eða árið 1978, eftir að Norræna eldfjallastöðin hafði verið sett á fót, en Guð- mundur veitti henni forstöðu frá upphafi í 25 ár, lágu leiðir okkar saman að nýju í Jarðfræðahúsi þegar ég réðst til Háskóla Íslands. Þá bauð Guðmundur mér að nýta rannsóknaraðstöðu Norrænu eld- fjallastöðvarinnar eftir því sem ég þurfti. Þetta boð Guðmundar sem og fyrri aðstoð hefur skipt sköpun fyrir þær rannsóknir sem ég hef alla tíð unnið að á sviði jarðefna- fræði jarðhita. Ég á Guðmundi þannig mikið að þakka fyrir þá að- stoð og velvild sem hann hefur jafnan sýnt mér. Guðmundur E. Sigvaldason hef- ur alla tíð verið trúr rannsóknum í jarðvísindum á Íslandi og eftir hann liggur mikið brautryðjenda- starf. Hann barðist af elju fyrir uppbyggingu aðstöðu til rann- sókna á Norrænu eldfjallastöðinni og hélt þannig um stjórnartaum- ana að starfsfólk stöðvarinnar gat og átti að helga sig rannsóknum. Því miður eru viðhorf Guðmundar til rannsókna enn undantekningin en ekki reglan í íslensku þjóð- félagi. Hann hlúði að rannsóknum í samræmi við upphaflega merk- ingu orðsins, þ.e. kerfisbundinni leit að nýrri þekkingu með raun- vísindalegum aðferðum og í hans augum var það kristalklárt að þeirri leit verður ekki sinnt nema til komi tækjakostur til mælinga. Nú þarf að halda merki Guðmund- ar á lofti í þessum efnum. Norræna eldfjallstöðin var lögð niður hinn 1. júlí 2004. Um leið var sett á fót ný Jarðvísindastofnun við Háskóla Íslands, en í þessari nýju stofnun var sameinuð starf- semi Norrænu eldfjallastöðvarinn- ar og jarðvísinda við Háskóla Ís- lands. Þetta er stór stofnun með yfir 50 starfsmenn. Þeirrar stofn- unar bíða stór verkefni og framtíð rannsókna í jarðvísindum á Íslandi hvílir mikið á þeirri stofnun. Hina nýja jarðvísindastofnun þarf á eld- hugum að halda eins og Guðmundi E. Sigvaldsyni ef hún á að vaxa og dafna til farsældar fyrir þjóð, nýt- ingu auðlinda okkar og verndun umhverfisins. Með Guðmundi E. Sigvaldasyni er fallinn frá einn af brautryðj- endum í rannsóknum í jarðfræði á Íslandi en jafnframt góður vinur og faðir stórrar fjölskyldu. Ég votta fjölskyldu hans mína dýpstu samúð. Stefán Arnórsson. Fallinn er frá Guðmundur Ernir Sigvaldason, sem var í áraraðir einn helsti og þekktasti eldfjalla- og jarðefnafræðingur landsins. Eftir nám í Þýskalandi í lok sjötta áratugarins vann Guðmundur hjá Rannsóknastofnun iðnaðarins og um tíma einnig í Mið-Ameríku á vegum Sameinuðu þjóðanna. Á þeim tíma stundaði hann einkum jarðhitarannsóknir hér heima, í Nicaragua og víðar. Áhugi hans færðist síðar yfir í jarðefnafræði og eldfjallafræði. Hann var for- stöðumaður Norrænu eldfjalla- stöðvarinnar frá upphafi 1973 til ársins 1998. Hann tók virkan þátt í margvíslegu alþjóðlegu samstarfi, sérstaklega í tengslum við vöktun eldfjalla. Alla tíð frá því að hann fór með Sigurði Þórarinssyni í Öskju árið 1961, til að fylgjast með gosinu það ár, voru Dyngjufjöll, Askja og norðurgosbeltið honum sérlega hugleikin. Með harðfylgni og miklum metnaði tókst honum að byggja upp rannsóknastofnun með alþjóð- lega viðurkenningu, stofnun sem hefur gegnt lykilhlutverki í rann- sóknum á eldvirkni á Íslandi, sem og annars staðar. Ásamt því hefur hann leiðbeint fjölda norrænna jarðfræðinga og kynnt fyrir þeim undraveröld eldfjallanna. Metnað- ur hans kom meðal annars fram í því að alltaf skyldi stefnt að birt- ingu niðurstaðna rannsókna í al- þjóðlegum ritrýndum tímaritum, annað væri tímasóun. Hann var duglegur við að greiða götu þeirra sem stóðu sig vel og hvetja þá til dáða. Guðmundur var skemmtilegur í samræðum og átti ætíð í handrað- anum margar góðar sögur af svað- ilförum, sem flestar tengdust eld- gosum, bæði hér heima sem og einnig á ólíklegustu stöðum er- lendis. Hann var litríkur maður og gæddur miklum persónutöfrum. Hann átti auðvelt með að heilla fólk og sannfæra þegar þurfti við, var ákveðinn í skoðunum og lét ógjarnan í minni pokann. Jarðfræðingar Náttúrufræði- stofnunar Íslands hafa flestir notið samstarfs eða leiðsagnar Guð- mundar á löngum ferli hans og þökkum við honum ánægjulega samfylgd og mikið og gott lífs- starf. Við færum fjölskyldu Guð- mundar innilegar samúðarkveðjur. Jarðfræðingar Náttúru- fræðistofnunar Íslands. Genginn er góður vinur um ald- ur fram. Elstur okkar að árum en yngstur í anda. Elskaði hina stór- brotnu íslensku náttúru. Elskaði einnig umfjöllun skálda um nátt- úru annarra landa. Söng ljóð þeirra, spilaði lögin, hyllingu til lífs og fegurðar. Einstakur vís- indamaður, ávallt forvitinn um hið innsta eðli hlutanna. Reiðubúinn að berjast og verja sköpunarverk- ið. Hylling Kristjáns Albertssonar ort til Jóh. Kjarval á hér vel við. Eign sinni sló á auðnir lands og tinda, uppsprettuhrjóstur dýpstu jarðarlinda, landvættahallir söltum yfir sævi, svölum í blævi. Tónkviða Íslands lék í lofti háu, lyfti sér fleyg mót himinveldi bláu. Hraunmosans hvísl og engjateigsins ómar. Úthafsins hljómar. Landvættur sjálfur síðast mun hann líða svart inn í bergið, þar sem vinir bíða, Ísalands gömlu ginheilögu vættir, goðheima ættir. Þá mun í sölum rammislagur rymja, reiðarslög dynja, hátt í trumbum glymja, gulllúðrar þeyttir, gígjur allar hljóma, glitbjörgin óma. Bú með oss allt til heimsins hinstu tíða, hervæddur jötunn. Gakk með oss til stríða mest þegar geysa ættir illra fjanda Íslandi að granda. Kærir vinir, skólasysturnar í saumaklúbbnum og makar þeirra þakka gefandi samveru á liðnum árum. Innilegustu samúðarkveðjur til Dóru, Guðnýjar Þóru og ann- arra ættingja. Guðríður, Helga, Jóhanna, Lilja, Sigríður M., Sigríður J., Sigrún og makar. Það er staldrað við og horft um öxl. Fyrirmynd sem mótað hefur hug og starf er horfin á braut. Röð minningabrota rennur fyrir hug- skotum. Minningabrot um vísinda- mann sem horft hefur verið til og mótað hefur jarðvísindarannsóknir um langa hríð. Jarðvísindamann í forystu ekki einungis heima heldur einnig erlendis, leiðtogi í alþjóð- legu samfélagi eldfjallafræðinga. Fyrsta minningarbrot eru svip- myndir í sjónvarpi sem vöktu áhuga á jarðvísindum og eldfjöll- um og voru hvatning til náms á þeim vettvangi. Þegar námi lauk fyrir 12 árum voru forréttindi að koma til starfa á Norrænu eld- fjallastöðinni undir stjórn Guð- mundar. Þar reyndist hann einstök fyrirmynd og hvatning til dáða í rannsóknum, ekki síst vegna hinn- ar miklu alþjóðlegu tengsla sem hann hafði. Örlög höguðu því til að ég tók við starfi Guðmundar sem forstöðumaður Norrænu eldfjalla- stöðvarinnar árið 1999. Í rann- sóknahópi þar sem hver maður er mikilvægur var það sérlega ánægjulegt að Guðmundur var þar alla tíð með okkur, þrátt fyrir að hann léti af störfum sem forstöðu- maður. Fráfall Guðmundar bar að þegar fjölmenn ráðstefna jarðvís- indamanna fór fram í Bandaríkj- unum. Virðing manna á starfi Guð- mundar og vinátta margra kom þar bersýnilega í ljós. Samstarfs- aðilar víða um heim biðja fyrir samúðarkveðjur til fjölskyldunnar. Starfsemi Norrænu eldfjallastöðv- arinnar hefur nú sameinast HÍ og flutt í Öskju, náttúrufræðahús Há- skólans. Glaðbeitt bros Guðmund- ar í Öskju á haustmánuðum er síð- asta minningarbrotið sem geymt verður. Það fer vel að húsnæðið beri heiti þess eldfjalls sem Guð- mundur unni öðrum fremur. Askja í Dyngjufjöllum og eldgosið mikla árið 1875 voru óþrjótandi upp- spretta rannsókna sem Guðmund- ur hafði sérstakt dálæti á. Þar hef- ur síðasti rannsóknaleiðangur Guðmundar nú verið farinn. Það er staldrað við og horft fram á veginn. Fyrirmynd og hvatning til framsækni í jarðvís- indarannsóknum mun fylgja inn í ókomna framtíð. Hugheilar sam- úðarkveðjur til fjölskyldu og að- standenda. Freysteinn Sigmundsson. Nú kveð ég vin minn og vel- gjörðarmann, Guðmund. Leiðir okkar lágu fyrst saman í Finnlandi ’86. Þá var verið að selflytja ráð- stefnugesti á norrænni ráðstefnu frá gistihúsum í veislu finnsku jarðfræðastofnunarinnar, sem fagnaði aldar afmæli. Ekki óraði mig fyrir því þá að samferðamaður minn í þessum rútubíl ætti eftir að verða örlagavaldur í mínu lífi. Síð- ar sama sumar kom Guðmundur og bauð mér starfa hjá Norrænu eldfjallastöðinni, sem aðstoðar- manni og lærlingi. Rannsóknir Guðmundar beindust að Öskju í Ódáðahrauni. En Guðmundur hafði um árabil stundað rannsókn- ir þar sem þátt í eilífri baráttu eld- fjallafræðingsins til að skilja duttl- unga eldfjallanna. Guðmundur var kátur og spenntur dagana fyrir brottför vegna tilhlökkunar um væntanlega Öskjuvist. Með hverj- um kílómetra sem við komum nær Öskju lyftist á honum brún og glaðværð elnaði. Með okkur í för var finnskur nemi og tveir kól- umbískir jarðfræðingar, sem Guð- mundur hafði tekið í læri eftir miklar hörmungar þar í landi tengdar eldgosi í Nevado del Ruiz. Það var fallegt að koma í Öskju í blíðskaparveðri og heiðríkju. Guð- mundur dreif okkur strax á fjöll, beint upp Öskjufjallgarð austan- verðan. Hann fór stórum og naut að miðla af þekkingu sinni um jarðfræði á leiðinni. Augnablikið var stórfenglegt, er Guðmundur stóð stoltur með okkur lærisvein- unum á Öskjubrún, í stafalogni með Öskjuvatn og fjallahringinn sem kórónu í kring. Hér átti Guð- mundur heima. Hvar yfir legi hvelfast fjöll hvers tíma eygðir svörð. Hörð en mjúk í eigin mjöll hér ómar mest þín jörð. Gapa gjárnar, jörð mér drjúp gjalls, skal hnita dreif. Rám þau voru, regin djúp hvers raust, þann morgun kleyf. Reyndur miðill, ræktir þel og skyldur æðri mennta. Alltaf skildir, alltaf vel. Djúp er sú mín renta. Á erfiðum stundum fjarri heima- landinu mínu reyndist Guðmundur mér ávallt vel, hvatti til dáða við fræðileg viðfangsefni sem og í líf- inu. Ég þakka þér Guðmundur Ernir Sigvaldason samfylgdina og votta eftirlifandi aðstandendum innilega samúð mína. Ármann Höskuldsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.