Morgunblaðið - 09.01.2005, Síða 28

Morgunblaðið - 09.01.2005, Síða 28
28 SUNNUDAGUR 9. JANÚAR 2005 MORGUNBLAÐIÐ Laugardaginn 29. mars 1947vaknaði Hekla eftir 102ára svefn og hóf að gjósakl. 6.22. Nokkru áður komjarðskjálftakippur, sem fannst um mestallt Suðurland. Rétt eftir kippinn sást gífurlegur gos- mökkur 27 km hár stíga upp af Heklu og var sem fjallstoppurinn lyftist. Við nokkrir laganemar ákváðum að halda þegar austur að Heklu. Kjartan Jónsson (1925–1990) hafði ráð á duglegum herjeppa af Ford-gerð, hinum besta grip og héldum við á honum austur. Lentum við að vísu öfugu megin við Heklu, þ.e. Þjórsárdalsmegin hjá Gauks- höfða, en þá vissum við ekki að rétt leið lá um Gunnarsholt að Næf- urholti. Hjá Gaukshöfða nötraði jörðin öll og skalf, og gosmökkurinn svo tignarlegur, að við héldum fljót- lega heim á leið, því það hvarflaði að okkur, að jörðin kynni að gleypa okkur, svo voru dunurnar ægilegar. Á Hellisheiði var þá aðeins ein- breiður vegur með útskotum hér og hvar. Lenti allt í öngþveiti á heið- inni, enginn vildi víkja fyrir öðrum og gekk Þorsteinn Scheving Thor- steinsson (1890–1971) lyfsali meðal ökumanna og reyndi að miðla mál- um, en ekki tókst að koma umferð- inni í sæmilegt horf, fyrr en lögregla var send austur. Kjartan her- jeppastjóri hafði ekki áhyggjur af þessu, ók utan vegarins í stórum hring utan um umferðarteppuna og við komumst í Mjólkurstöðina um kvöldið, þar sem „tískuböllin“ voru haldin á hverju laugardagskveldi. II. Laugardaginn 5. apríl 1947 hélt faðir minn, Sveinn M. Sveinsson, (1891–1951) með fjölskyldu sína austur að Heklu á tveim bílum, Willys-jeppanum R-4154, árgerð 1946, og Ford Mercury-bifreiðinni R-2294, fólksbifreið árgerð 1942. Voru sex manns í þessum bílum og var ekki fært nema á jeppum frá Selsundi að Næfurholti, svo við urð- um að troðast öll sex í jeppann síð- asta áfangann að Næfurholti. Hófst nú gangan að hraunstraumnum, sem valt fram heldur rólega, þannig að hættulaust var að skoða hann og á ég enn pappaspjald, sem ég kveikti í með Heklueldum. Yfir Næfurholtslæk þurfti að fara til þess að komast að Heklueldum, en á honum var mjó brú eða réttara sagt planki, ca 3"x9". Á heimleiðinni var mér falið að leiða hópinn, en fann ekki plankann yfir lækinn. Hljóp ég eftir lækjarbakkanum fram og til baka, en allt kom fyrir ekki, plank- ann fann ég ekki. Var mér hætt að lítast á blikuna, en loks fann ég plankann og leiðbeindi hópnum yfir. Studdi ég síðan móður mína, Soffíu Haraldsdóttur, (1902–1962) heim að Næfurholti, en Haraldur bróðir studdi móðursystur okkar, Guðrúnu Haralz, (1910–1983). Faðir minn Sveinn M. Sveinsson studdi aftur á móti Bergljótu systur mína (f. 1935). En svo var af móður minni dregið, að hún sagði, er sást til Næfurholts: „Ætli maður verði ekki úti við tún- garðinn eins og svo margur.“ En í jeppann komumst við og var nú ekið í átt að Selsundi, þar sem græni Mercury-bíllinn beið okkar. III. Nú hafði veður versnað til muna, frostið hert, kominn sandbylur, þannig að skyggni var afleitt. Sást illa fram á veginn, svo svartur var sandbylurinn. Þegar ég hafði ekið góða stund í átt að Selsundi, segir faðir minn við mig: „Leifur minn, ertu nú alveg viss um að þú sért á veginum?“ Ég svara því játandi, en segist ætla að fara út úr bílnum, líta í kringum mig, þannig að ég sé al- veg viss. Stóð þá jeppinn á gilbrún, ekki brattri, svo ég bakkaði og fór yfir á rétta slóð. Sagði föður mínum að um tvær slóðir væri að ræða, ég hefði valið nýja. Þessu sagði ég eng- um manni frá í aldarfjórðung, enda farþegar mínir í bráðri lífshættu. Þegar að Selsundi kom fóru þau öll fimm yfir í Mercury-bílinn, Har- aldur bróðir ók honum með hina fjóra farþega áleiðis til Reykjavíkur, en ég geystist áfram á jeppanum, því nú bar ég ekki ábyrgð á neinum nema sjálfum mér. Náði til Reykja- víkur á síðasta bensíndropanum og jeppinn nokkrum stuðdempurum slappari en í upphafi ferðar því Hellisheiði var eitt holusafn. Tekið skal fram að ökuskírteini mitt var aðeins tveggja mánaða gamalt þeg- ar þetta var, útgefið 5. febrúar 1947. IV. Þriðjudaginn 8. apríl 1947 sigldi ég til Kaupmannahafnar með dr. Alexandrine, skipi D.F.D.S. Meðal farþega sem ég man eftir voru: Fel- ix Jónsson, yfirtollvörður (1895– 1978); Gunnar Gunnarsson, er rak Nýju efnalaugina (1898–1963), Rán- argötu 9, Rvík; Guðjón Guðjónsson, skólastjóri frá Hafnarfirði (1892– 1971); Sigurður H. Sigurðsson (1874–1948), fyrrv. kaupmaður á Blönduósi; Jón Örn Ingvarsson, vél- stjóri (1919–1995); Baldur, ungur maður úr Fljótsdalshéraði, á leið í skógræktarnám í Khöfn; tugir ungra kvenna sem voru að fara til náms í grautarskólum, mest til Sorö. Við hrepptum afar slæmt veður frá Reykjavík til Færeyja, svo mat- arlystin var ekki mikil, enda mat- urinn á 1. farrými vondur og þjón- arnir sóðalegir, m.a. lak svitinn af skalla yfirþjónsins ofan í asparg- ussúpuna, svo menn voru fljótir frá matarborði við slíka þjónustu. „Drottningin“ var afar slæmt sjó- skip, enda hafði ég kynnst henni vorið 1937 á leiðinni til Akureyrar, svo mér kom ekki á óvart veltingur hennar, þannig að maður vissi varla hvað var upp eða niður í káetunni. Í Torshavn var löng viðstaða, 2½ sól- arhringur, því heildsalar í Reykjavík sendu óseljanlegar vörur í stórum stíl til Færeyja, vörur sem landinn leit ekki við. Björn Ólafsson (1885– 1974) viðskiptaráðherra um langt skeið, nefndi þessar vörur „hillu- vanar“ og ættu kaupmenn að þakka fyrir að koma þeim út til Færeyja. Við Baldur notuðum tækifærið og fengum okkur að borða á hafnarkrá í Torshavn, kjötbollur, sem var góð tilbreyting frá hinum vonda kosti um borð í skipinu. Ég hafði komið til Færeyja áður, í stúdentaferð árið 1946, er haldið var upp á 100 ára af- mæli M.R. og við hundruðustu stúd- entarnir frá þeim merka skóla. Þá heimsóttum við heiðurshjónin Jó- hannes Patursson, (1866–1946) kóngsbónda í Kirkjubæ, og hina ís- lensku konu hans, Guðnýju Eiríks- dóttur (1872–1950) frá Karlsskála. Dönsuðu þau fyrir okkur þjóðdansa og buðu okkur upp á skerpikjöt og pilsner. Heimsóknin að Kirkjubæ var alveg ógleymanleg. V. Um borð í Drottningunni var fest upp daglega tilkynning um líðan Kristjáns konungs X. Lá hann fár- sjúkur í höll sinni Amalienborg með kolbrand (holdfúa) sem hann fékk upp úr fótbroti, er hann féll af baki hesti sínum. Stóðst það á endum að hann dó fjórum dögum eftir að við komum til Kaupmannahafnar, dán- ardægur 20. apríl 1947. Skömmu síðar var mikil athöfn við Christ- iansborg, af svölum hússins var til- kynnt í hátalara: „Kong Christian den tiende er död, kong Frederik den niende leve“. Þar með tók Frið- rik IX (1899–1972) við völdum, en hann hafði þó tekið við völdum tíma- bundið í veikindum föður síns árin 1942–43. Ég missti af þessari at- höfn, þar sem ég átti viðtalstíma hjá Baron von Haxthausen, yfirlækni á Minningar frá árinu 1947 Eftir Leif Sveinsson Greinarhöfundur við jeppann R-4154. Öldin okkar 1931—1950 Gosmökkurinn fyrsta gosdaginn 1947. The Eruption of Hekla, Reykjavík MXMLXXVI, H.F. Leiftur Heklugosið á þriðja degi séð frá Leirubakkagrundum, með hesta á beit. Mynd Halldórs E. Arnþórssonar í bók GE frá Miðdal Heklugosið 1947. Ljósmynd/Páll Jónsson Sigurður Þórarinsson við Heklugíga veturinn 1948.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.