Morgunblaðið - 01.10.2005, Page 46
46 LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Á VEGUM ríkisstjórnarinnar fer
nú fram stefnumótunarvinna um
framtíð heilbrigðisþjónustunnar.
Innan heilbrigðiskerfisins er einnig
stöðug gerjun og má
segja að þar sé allt á
stöðugri hreyfingu.
Umræðan um heil-
brigðisþjónustuna,
hér á landi sem ann-
ars staðar, er mjög
hagsmunatengd, enda
eru heilbrigðismál
einn stærsti út-
gjaldaliður hverrar
þjóðar. Þeir sem vilja
hagnast á heilbrigð-
isþjónustunni, bæði
fjármálamenn og ýms-
ar heilbrigðisstéttir,
þrýsta mjög á um að hún verði
markaðsvædd. Hafa þessir aðilar
haft talsverðan árangur af erfiði
sínu og hefur heilbrigðisþjónustan
smám saman verið að þokast inn á
markaðstorgið.
Þjóðhagslega og félagslega
skiptir okkur mjög miklu máli
hvernig til tekst um skipulag heil-
brigðisþjónustunnar og alla fram-
tíðarstefnumótun á þessu sviði og
er mikilvægt að byggt sé á þekk-
ingu og reynslu. Hagsmunaaðilar
mega ekki komast upp með að
þröngva fram breyt-
ingum sér í hag nema
þær séu sannanlega í
almannahag.
Erindi Dahlgrens
á bók
Fyrir nokkrum
mánuðum kom hingað
til lands á vegum
BSRB einn þekktasti
sérfræðingur á þessu
sviði í heiminum,
sænski prófessorinn
Göran Dahlgren.
Hann er handhafi
Norrænu lýðheilsuverðlaunanna;
hefur verið ráðgjafi sænskra
stjórnvalda um áratugaskeið, svo
og ríkisstjórna í ýmsum þróun-
arríkjum en er nú gestaprófessor
við háskólann í Liverpool í Eng-
landi.
Göran Dahlgren hélt erindi í
þessari Íslandsheimsókn sinni og
hefur það nú verið gefið út. Í er-
indinu lagði Dahlgren upp með að
fá fram hvort og hvernig val á
rekstrar- og fjármögnunarformi
hefði áhrif á möguleikana að ná eft-
irtöldum meginmarkmiðum heil-
brigðisþjónustunnar:
1. Að halda heildarútgjöldum til
heilbrigðismála innan raun-
hæfs fjárhagsramma hins op-
inbera.
2. Viðhalda samábyrgri fjár-
mögnun sem byggist á
greiðslugetu fólks án tillits til
umönnunarþarfa.
3. Gott aðgengi að þjónustu án
fjárhagslegra hindrana, svo
sem komugjalda, sem draga
úr möguleikum á að nýta sér
þjónustuna eftir þörfum.
4. Gott aðgengi án tillits til bú-
setu þannig að allir eigi kost á
góðri heilbrigðisþjónustu.
5. Biðtími eftir aðhlynningu
minnki og hverfi ef unnt er.
Að sjúklingur geti um-
svifalaust fengið aðhlynningu
ef heilsufar versnar alvarlega
á biðtíma.
6. Markmið heilbrigðisþjónust-
unnar stjórnist af þörfum íbú-
anna, þ.e. skipting fjármagns
milli mismunandi þátta, s.s.
fyrirbyggjandi aðgerða,
umönnunar og endurhæf-
ingar, sé á grundvelli þarfa.
7. Valfrelsi, þ.e. að einstaklingar
eigi góða möguleika á að velja
eða hafna þjónustuaðila.
8. Þróun og nýsköpun í heil-
brigðisþjónustu eflist.
9. Vinnuumhverfi og vinnuað-
staða í heilbrigðisþjónustunni
stuðli að góðri heilsu og vellíð-
an alls starfsfólks heilbrigð-
isþjónustunnar.
10. Heilbrigðisþjónustan byggist
á lýðræðislegum viðmið-
unum.
Einkareksturinn dýrari
Hér verða niðurstöður Da-
hlgrens ekki raktar í ítarlegu máli
en þær eru mjög afgerandi. Aukinn
einkarekstur eykur heildarkostnað
við þjónustuna. Einkarekstur eyk-
ur ekki framleiðni, gagnstætt því
sem iðulega er haldið fram. Þá kom
fram að athuganir sýndu að einka-
fjármögnun hefði aukið mest
greiðslubyrði þeirra sem byggju
við lökust kjör og þyrftu mesta
þjónustu, hún hefði mismunað fólki
eftir búsetu, ekki stytt biðtíma og
hún hefði grafið undan samfellu í
heilbrigðisþjónustunni. Skilyrði
lýðheilsustarfsemi hefðu jafnan
versnað með einkavæðingu, val-
frelsi hefði minnkað og dregið hefði
úr samfélagslegri ábyrgð þjón-
ustuaðila þegar einkaaðilar hefðu
yfirtekið rekstur sjúkrahúsa og
heilsugæslustöðva á opinberum
fjárlögum.
Göran Dahlgren segir í sam-
antekt í lok bæklingsins að „mark-
aðsvæðing heilbrigðisþjónustunnar
auki frekar vanda hennar en hitt.
Því ber að miðla þessari niðurstöðu
til þeirra sem hafa áhuga á að ræða
þessi mál. Þá ætti að vera aukinn
möguleiki á að fjalla gagnrýnið og
með lýðræðislegum hætti um til-
lögur sem draga úr eða útrýma
mörgum þeim vandamálum sem nú
einkenna … heilbrigðisþjónustu.“
Veljum hagkvæmasta kostinn
Það er hrikaleg tilhugsun að
einkavæðing velferðarþjónust-
unnar skuli keyrð áfram í nánast
blindri trú á markaðslausnir þegar
reynslan ætti að beina okkur í
þveröfuga átt. Nú heyrast þær
raddir að áhugi sé á því innan rík-
isstjórnarinnar og stjórnarmeiri-
hlutans að nýtt hátæknisjúkrahús í
Reykjavík eigi að vera einkarekið.
Áhugamenn um slíkt hafa vísað til
St. Göran-sjúkrahússins í Stokk-
hólmi, sem afhent var einkaaðilum.
Hafa þeir haldið því fram að þar
hafi tekist vel til. Dahlgren sýnir
hins vegar fram á það á skilmerki-
legan hátt að svo var ekki: „Einka-
væðing rekstursins í þessu sjúkra-
húsi sem fjármagnað er með
opinberu fé hefur … verið … skatt-
greiðendum dýr.“
Það er samfélaginu mjög mik-
ilvægt hagsmunamál að knýja þá
sem krefjast einkavæðingar til að
taka þátt í málefnalegri umræðu
sem byggist á þekkingu og reynslu.
Ég hvet menn til að kynna sér
erindi Dahlgrens sem er fáanlegt
hjá BSRB, auk þess sem það er að-
gengilegt á heimasíðu samtakanna.
Heilbrigðisþjónusta verði skipu-
lögð af þekkingu og reynslu
Ögmundur Jónasson fjallar um
framtíð velferðarþjónustunnar ’…að knýja þá semkrefjast einkavæðingar
til að taka þátt í mál-
efnalegri umræðu sem
byggist á þekkingu og
reynslu.‘
Ögmundur Jónasson
Höfundur er alþingismaður og
formaður BSRB.
TENGLAR
..............................................
www.bsrb.is.
FJÖLSKYLDUHÁTÍ‹ Í BREI‹HOLTI
Laugardaginn 1. október, kl. 14.00, göngugötunni Mjódd.
Í TILEFNI AF OPNUN fiJÓNUSTUMI‹STÖ‹VAR BREI‹HOLTS
Á fiJÓNUSTUMI‹STÖ‹INNI
Í fiÍNU HVERFI!
Hrund
sérkennslurá›gjafi
Ragnar
framkvæmdastjóri
firáinn
frístundará›gjafi
Hákon
sálfræ›ingur
fijónustumi›stö› Vesturbæjar, Vesturgar›ur - Hjarðarhaga 45-47 • fijónustumi›stö› Mi›borgar og Hlí›a - Skúlagötu 21 • fijónustumi›stö› Laugardals og Háaleitis - Síðumúla 39
fijónustumi›stö› Grafarvogs og Kjalarness, Mi›gar›ur - Langarima 21 • fijónustumi›stö› Brei›holts - Álfabakka 12 • fijónustumi›stö› Árbæjar - Bæjarhálsi 1
Hjá símaveri Reykjavíkurborgar, 4 11 11 11, fær› flú allar uppl‡singar um fljónustu og starfsemi borgarinnar og samband vi› flá starfsmenn sem flú flarft a› ná í.
Ávarp borgarstjóra
Söngur leikskólabarna
Lögreglukórinn
Kynning á grunnskólum hverfisins
Selma Björnsdóttir syngur
Vinabandið, hljómsveit eldri borgara í Breiðholti leikur
Kassaklifur, danssýning, taekwondo, veitingar ofl. ofl.
www.reykjavik.is
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
KALDAKINN 24 - OPIÐ HÚS
Opið hús í dag, laugardag,
milli kl. 14.00 og 17.00.
Fríða býður ykkur velkomin.
Sérlega björt og falleg 80 fm 3ja herbergja risíbúð
í þríbýli. Sérinngangur. Frábært útsýni. Róleg og
góð staðsetning. Verð 15,9 millj.
Lækjargata 8
Suðurlandsbraut 32 mbl.is
smáauglýsingar
Fréttir á SMS