Morgunblaðið - 19.11.2005, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 2005 27
MINNSTAÐUR
LANDIÐ
Sauðárkrókur | Vörumiðlun ehf. á
Sauðárkróki hefur tekið í notkun
nýja og glæsilega 540 fermetra að-
stöðu við Eyrarveg 21. Af því tilefni
lögðu fjölmargir leið sína á Eyrina,
til þess að skoða fyrirtækið og árna
eigendunum heilla.
Í stuttu spjalli við Magnús Svav-
arsson framkvæmdastjóra kom
fram að flutningafyrirtækið Vöru-
miðlun var stofnað hinn 1. maí 1996,
en þá sameinuðust í eitt fyrirtæki
Vöruflutningar Magnúsar Svav-
arssonar, sem höfðu þá starfað í tæp
tuttugu ár, og flutningadeild Kaup-
félags Skagfirðinga, sem starfrækt
hafði verið um áratuga skeið. Var
allur reksturinn fluttur að Borg-
arflöt 5 þar sem Vöruflutningar
Magnúsar voru til húsa. Það var síð-
an árið 2004 sem Vörumiðlunin
keypti fyrirtækin Húnaleið á Skaga-
strönd og Tvistinn á Blönduósi, og
annast nú alla flutninga til áð-
urnefndra þriggja staða.
Vel staðsettir á Eyrinni
Fyrir nákvæmlega einu ári hófust
framkvæmdir við byggingu aðstöðu-
húss á hinu nýja athafnasvæði fyr-
irtækisins við Eyrarveg 21, en þá
hafði farið fram mikil vinna við lóð-
ina sem er rúmlega 5 þúsund fer-
metrar að stærð.
Magnús sagði að fyrirtækið gerði
nú út 30 bíla af ýmsum stærðum, þar
af væru 17 stórir bílar en hinir not-
aðir til smærri flutninga, og væri af-
kastageta þessara tækja um 400
tonn á dag og starfsmenn væru 35.
Gerði hann ráð fyrir að velta fyr-
irtækisins á þessu ári mundi verða
um 4 til 500 milljónir.
Þá sagði Magnús að mikil hagræð-
ing væri að því að vera kominn á
Eyrarsvæðið, sem væri mjög vel
staðsett í bænum með tilliti til veg-
tengingar, og mundi enn batna með
tilkomu nýrrar aðkomu frá norðri,
en ekki væri minna um vert að í
rúmgóðu aðstöðuhúsinu yrði öll af-
greiðsla og meðhöndlun vörunnar
þægilegri og betri. Þá mun öll skipa-
afgreiðsla sem er á vegum kaup-
félagsins verða á sama stað svo sem
verið hefur. Magnús sagði að fyr-
irtækið hefði verið í örum vexti, ekki
síst eftir að strandsiglingar hefðu
verið aflagðar, allur bílafloti fyr-
irtækisins hefði verið endurnýjaður
og nú væri góður tími til að ná vel ut-
an um reksturinn og koma honum í
þann farveg sem ætlað er.
Ný aðstaða Vörumiðlunar ehf. á Eyrinni á Sauðárkóki
Morgunblaðið/Björn Björnsson
Afgreiðsla Magnús Svavarsson framkvæmdastjóri í nýja vöruhúsinu.
Bætir meðhöndlun og
afgreiðslu vörunnar
Eftir Björn Björnsson
Ölfus | Hesta- og vörusýningin
Skeifnasprettur verður haldin í
Ölfushöll í dag. Dagskráin hefst
klukkan 13 og stendur fram á
nótt.
Á sýningunni verða hestatengd-
ar sýningar af ýmsu tagi, meðal
annars sölusýning á hestum, reið-
sýning, tísku- og vörukynningar,
hestahnykkingar, heitjárningar og
kynning á Meistaradeildinni, sem
mun fara í gang eftir áramótin.
Sölusýningin er öllum opin en
nauðsynlegt er að skrá þau fyr-
irfram.
Skeifnasprettur
í Ölfushöllinni
Seyðisfjörður | Viðbrögð við alvar-
legu slysi um borð í ferju verða æfð
á Seyðisfirði í dag, laugardag. Fjöl-
margir taka þátt í æfingunni og und-
irbúningi hennar.
Líkt verður eftir því að ferjan Sky
Princess sé lögst að bryggju og af-
ferming að hefjast, að því er fram
kemur í fréttatilkynningu. Það verð-
ur sprenging í gaseldavél í húsbíl á
bílaþilfari og talsverður eldur kvikn-
ar sem breiðist hratt út, farþegar
fyllast skelfingu og reyna að ryðjast
frá borði, margir troðast undir auk
þess sem allmargir sem á bíla-
þilfarinu voru eru slasaðir og í mik-
illi hættu vegna elds og reyks.
Undanfarin misseri hefur verið
unnið að gerð viðbragðsáætlunar
vegna atburða af þessu tagi á Seyð-
isfirði eða á hafinu þar nálægt. Ætl-
unin er að láta reyna á virkni áætl-
unarinnar með þessari æfingu.
Að æfingunni standa almanna-
varnanefnd Seyðisfjarðar og við-
bragðsaðilar á Austurlandi og víðar.
Æfa viðbrögð
við ferjuslysi
Ingólfur Margeirsson fékk heilablóðfall fyrir fáum árum og fjallar
í þessari bók um baráttu sína við að öðlast bata á nýjan leik.
Afmörkuð stund er mögnuð frásögn af alvarlegum veikindum
og einstakri baráttu úr faðmi dauðans til lífsins.
Afmörkuð stund er einstök lesning og mikil uppörvun öllum þeim sem
lent hafa í alvarlegum skakkaföllum í lífinu. Bókin fjallar á góðu og
auðskiljanlegu máli um hverfulleika lífsins og átök við brigðula tilveru.
Lifandi og sönn frásögn eins og
Ingólfi Margeirssyni er einum lagið
Áhrifamikil og sönn
Þórður Kjartansson er traustur embættismaður sem skyndilega kastar öllu frá sér og
heldur á vit ævintýranna. Í bríaríi greinir hann frá viðkvæmu hneykslismáli sem
skekur efstu lög þjóðfélagsins og allt fer í bál og brand.
Bráðfyndin og hörkuspennandi samtímasaga!
„... óþægilega sönn. En sannleikurinn er sagna fyndnastur ... Eiríki ... ferst vel
að fjalla um samskipti karla og kvenna enda þarf líklega stjórnmálafræðing í
verkið ... Sérstaklega er fyndið þegar hann lýsir lífinu í Stjórnarráðinu ...“
– Valur Gunnarsson, Sirkus 11. nóv.
Kraftmikil frumraun!
Bækur við allra hæfi
Nýjasta bók Ians Rankin um lögreglumanninn John Rebus.
Hér rannsakar Rebus morð á ólöglegum innflytjanda og dregst
inn í heim kúgunar og ofbeldis.
Enn einn snilldarkrimminn frá Ian Rankin!
Besta bók Rankins til þessa og það segir þó nokkuð!
– Observer
Rankin á sér engan jafningja þegar kemur að því að afhjúpa
fordóma, hræðslu og fáfræði.
– Good Book Guide
SKRUDDA
Eyjarslóð 9 - 101 Reykjavík
s. 552 8866 - skrudda@skrudda.is
www.skrudda.is
Snilldartaktar!