Morgunblaðið - 19.11.2005, Side 59
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 2005 59
Til sölu Toyota Avensis, árg. 00,
ekinn 113 þús., 1800 vél, sjálfsk.
Sumar- og vetrard. Mjög góður
bíll. V. 800 þús. Sími 847 1782.
Toyota Doublecab 2,4 dísel
turbo árg. 1996. Ekin 238 þ. 33"
breyttur. Verð 500 þ. Engin skipti.
Uppl. 696 0874.
Vw Golf 1.4 Comfortline, árg.
'99 Ek. 44 þ. km, 3ja dyra, 5 gíra,
smur- og þjónustubók. Eins og
nýr. Mjög sparneytin. Svartur.
Gullfallegur. Verð 77o þús.
Upplýsingar í síma 661 9660.
Volvo S 40 05/03, 2 l vél, 136 hö.,
ek. 40 þús., leður, loftkæling,
vindskeið, cd, sjálfsk., cruise
control. Fallegur konubíll. (Verð
nýr kr. 2.760 þús.) Verð 2.030
þús., bein sala. S. 865 6663.
Toyota Corolla árg. '97, ek. 200
þús. km, til sölu, dökkblá, tjóna-
bíll. Þarfnast viðgerðar, seld á
vægu verði. Upplýsingar í síma
868 7144/865 7035.
Toyota Landcruiser 90 disel gx
08/'99, 3000 cc. slagrými. Bein-
skiptur, ek. 129 þús. Dráttarkúla,
CD, heilsársdekk. Verð 1.890 þús.
Sími 820 6263 eða 557 3481.
Toyota Landcruiser 80 VX
Diesel árg. '95, ek. 260 þús. km.
Bíll í sérflokki, þjónustubók, topp-
viðh. Ný super swamper 38".
Aukatankur. Verð 2,7 m. Ath.
skipti á ódýrari. S. 690 2577.
Hjólbarðar
Negld vetrardekk tilboð
4 stk. 175/70 R 13 + vinna
kr. 25.300.
Kaldasel ehf.,
Dalvegi 16b, 201 Kópavogi,
sími 544 4333.
Dekk og felgur undan Ford F150
árgerð '05, til sölu. 18" dekk og
felgur. 80.000 kr. S. 693 0802.
Ökukennsla
Ökukennsla Reykjavíkur ehf.
Ökukennsla akstursmat.
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '02,
863 7493/557 2493.
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza,
696 0042/566 6442.
Gylfi K. Sigurðsson
Suzuki Grand Vitara,
892 0002/568 9898.
Snorri Bjarnason
BMW 116i, nýr,
892 1451/557 4975.
Sverrir Björnsson
Volkswagen Passat, '05
892 4449/557 2940.
Vagn Gunnarsson
Mersedes Benz,
894 5200/565 2877.
Til sölu Volvo 740 GLE Station
árg. 1988, sjálfskiptur, vökvastýri,
rafknúnar rúður og speglar, læst
drif, hundagrind. Bíllinn er á 15
tommu álfelgum, einnig fylgja ný-
leg nagladekk og auka 14 tommu
álfelgur og dekk. Einnig fylgir
nettur NMT sími með handfrjáls-
um búnaði. Bíllinn er nýskoðaður.
Uppl. í síma 896 4924.
Til sölu Toyota Rav 4. Nýskráður
í apríl 2003, ek. 56.000, sjálfskipt-
ur, dráttarkrókur, spoiler, sumar-
og vetrardekk. Einn eigandi, vel
með farinn. Ásett verð 2.200.000.
Upplýsingar í síma 694 4414 og
557 1540.
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Dodge Ram 3500 Dually diesel
'05. Til sölu Dodge Ram 3500
Dually Cummins diesel 330 ha,
73% hljóðlátari, silfurgrár (nýr),
leður, cd, ryðfr. stigbretti o.m.fl.
Upplýsingar í síma 892 4163 og
ansa@internet.is .
FRÉTTIR
BLEIKA boðið í Gerðarsafni í
Kópavogi í lok september tókst vel
og er áætlað að ágóði Krabba-
meinsfélags Íslands verði rúmar
fjórar milljónir króna.
Bleika boðið var fjáröflunar-
kvöldverður, sem efnt var til að
frumkvæði Freistingar, klúbbs
matreiðslumanna og bakara, til
styrktar baráttunni gegn brjósta-
krabbameini undir heitinu Bleika
boðið. Nafnið tekur mið af Bleiku
slaufunni, árveknisátaki um
brjóstakrabbamein sem félagið hef-
ur staðið fyrir síðustu fimm ár í
samvinnu við Samhjálp kvenna,
Estée Lauder og fleiri aðila.
Félagar í Freistingu sáu um mat-
reiðslu, útskriftarnemar í fram-
reiðslu við Hótel- og matvælaskól-
ann í Menntaskólanum í Kópavogi
sáu um framreiðslu, skólinn lánaði
tæki og borðbúnað. Kópavogsbær
styrkti verkefnið með láni á hús-
næði, framleiðendur og innflytj-
endur matvæla og veitinga gáfu
vörur og tónlistarmenn og
skemmtikraftar gáfu vinnu sína
eins og allir aðrir.
Í frétt frá Krabbameinsfélaginu
segir að félagið meti mikils þennan
stuðning og vilji koma á framfæri
þakklæti til allra sem gerðu mögu-
legt að Bleika boðið tækist eins vel
og raun bar vitni. Stefnt er að því
að hliðstæður hátíðarkvöldverður
verði árviss atburður til stuðnings
baráttunni gegn brjóstakrabba-
meini.
Morgunblaðið/Ómar
Hluti hópsins sem sá um matreiðslu og framreiðslu í Bleika boðinu, ásamt fulltrúum frá Krabbameinsfélaginu.
Aftari röð, frá vinstri: Sigmar Pétursson, Smári V. Sæbjörnsson, Guðjón Kristjánsson, Rúnar Þór Rúnarsson, Ottó
Magnússon, Bárður Guðlaugsson og Guðrún Hildur Eyjólfsdóttir. Fremri röð: Þorbjörn Ólafsson, Halldóra Jóna
Guðmundsdóttir, Sigurður Gunnlaugsson, markaðsstjóri Krabbameinsfélagsins, Guðrún Agnarsdóttir, forstjóri
Krabbameinsfélagsins, Sigurlaug Jóhannsdóttir, Elísabet Þorvarðardóttir og Evert Ingjaldsson.
Ágóði af Bleika boðinu var um 4 milljónir
KÓPAVOGSDEILD Rauða kross
Íslands og Mæðrastyrksnefnd
Kópavogs munu starfa saman að
neyðaraðstoð við bágstadda ein-
staklinga og fjölskyldur fyrir jólin.
Mæðrastyrksnefnd Kópavogs ann-
ast úthlutun á matarstyrkjum til
fjölskyldna í neyð með stuðningi
frá Kópavogsdeild Rauða krossins
sem nýverið afhenti Mæðrastyrks-
nefnd styrk að upphæð 500 þús-
und krónur. Kópavogsdeild Rauða
krossins getur einnig haft milli-
göngu um að koma umsóknum um
aðstoð til Mæðrastyrksnefndar.
Í desember munu sjálfboðaliðar
Kópavogsdeildar aðstoða Mæðra-
styrksnefnd Kópavogs við úthlut-
anir á matarstyrkjum og fatnaði
til Kópavogsbúa. Mæðrastyrks-
nefnd sér um að úthluta fatnaði til
þeirra sem þurfa á þriðjudögum
kl. 16–18 í Fannborg 5. Rauði
kross Íslands úthlutar fatnaði á
miðvikudögum kl. 9–14 í fata-
flokkunarstöðinni í Gjótuhrauni 7
í Hafnarfirði. Kópavogsdeild hvet-
ur fyrirtæki, stofnanir, félaga-
samtök og einstaklinga til að
leggja Mæðrastyrksnefnd Kópa-
vogs lið í aðstoðinni við þurfandi
fyrir jólin.
Fulltrúar Kópavogsdeildar Rauða krossins og Mæðrastyrksnefndar Kópa-
vogs við afhendingu styrksins.
Samstarf um aðstoð við
fjölskyldur í Kópavogi
UM MIÐJAN mánuðinn rann út
skráningarfrestur vegna borg-
aralegrar fermingar vorið 2006.
Aldrei hafa fleiri ungmenni skráð
sig eða 118. Í fyrstu borgaralegu
fermingunni hér á landi sem haldin
var árið 1989 fermdust 16 ungmenni
og síðastliðið vor fermdust 93 ung-
menni borgaralega.
„Áður en fermingarathöfnin fer
fram vorið 2006 sækja ungmennin
vandað námskeið þar sem fjallað er
um ýmislegt gagnlegt fyrir ungt fólk
s.s. gagnrýna hugsun, siðfræði, sam-
skipti, fordóma, vímuefnavarnir svo
fátt eitt sé nefnt,“ segir m.a. í frétta-
tilkynningu. Stjórn Siðmenntar sem
stendur fyrir borgaralegum ferm-
ingum hefur merkt aukinn áhuga á
starfsemi félagsins að undanförnu
sem ekki síst endurspeglast í aukn-
um þátttakendafjölda í borgaralegri
fermingu og auknum fyrirspurnum
um aðrar borgaralegar athafnir.
Stjórn Siðmenntar telur mikilvægt
að þeir félagsmenn Siðmenntar sem
standa utan trúfélaga fái að greiða
svokölluð sóknargjöld sín sem nú
renna til Háskóla Íslands til félags-
ins svo þeir geti notið sambæri-
legrar þjónustu og fólk sem tilheyrir
trúfélögum.
Margir skrá sig í
borgaralega
fermingu
SKRÁNING er hafin varðandi
jólastyrk frá Hjálpræðishern-
um. Þeim sem þurfa á styrk að
halda er bent á að fara á Hjálp-
ræðisherinn Kirkjustræti 2 og
fylla út umsókn. Úthlutun fer
svo fram laugardaginn 17. des-
ember.
Þeir sem ætla að borða á
Hjálpræðishernum á aðfanga-
dag eru líka beðnir um að skrá
sig, sú skráning er á Hjálpræð-
ishernum eða í síma 561 3203.
Jólastyrkur
Hjálpræðis-
hersins
JÓLAKORT Geðhjálpar í ár eru af
stærðinni 12,3 x 17 cm og eru til
sölu á skrifstofu Geðhjálpar, Tún-
götu 7, Reykjavík. Í boði eru kort
án texta sem og með prentuðum
texta. Höfundur myndarinnar í ár
er Guðný Svava Strandberg, mynd-
listarmaður og kennari við sam-
starfsverkefni Geðhjálpar og Fjöl-
menntar um menntun- og starfs-
endurhæfingu fólks með geð-
raskanir. Jafnframt þessu eru í boði
kort frá fyrri árum. Frekari upplýs-
ingar eru veittar á skrifstofu Geð-
hjálpar, Túngötu 7, 101 Reykjavík
og hægt er að senda fyrirspurnir/
pantanir á netfangið: ged-
hjalp@gedhjalp.is
Jólakort Geð-
hjálpar komið út
JÓLAKORT Hjartaheilla eru komin
út. Kortin eru seld í Hagkaups-
verslunum, verslunum Lyfju og hjá
aðildarfélögum Hjartaheilla um
land allt. Kortin eru prýdd myndum
eftir myndlistarkonuna Gunnellu.
Þetta eru fallegar stemnings-
myndir og afar jólalegar og voru
málaðar árið 2003, segir í frétta-
tilkynningu. Gagnrýnandi New
York Times heillaðist af myndum
Gunnellu, en „hænurnar“ hennar
Gunnellu eru myndskreyting í
barnabók sem nú er á lista New
York Times yfir 10 best mynd-
skreyttu barnabækur árið 2005.
Jólakortin eru seld tíu saman í
pakka. Hægt er að styrkja sam-
tökin með kaupum á jólakortum í
öllum Hagkaupsverslunum, í útibú-
um Lyfja um land allt og einnig er
hægt að kaupa kortin á skrifstofu
Hjartaheilla í Síðumúla 6. Deildir
Hjartaheilla um land allt munu
einnig annast sölu á kortunum. Sala
jólakorta er ein mikilvægasta
tekjulind Hjartaheilla. Einnig eru í
boði merkimiðar fyrir þessi jól og
eru þeir í stíl við kortin.
Jólakort Hjarta-
heilla komin út
HINN 10. nóvember 2005 barst
Skipulagsstofnun tillaga Alta og
Stróks ehf. að matsáætlun vegna
mats á umhverfisáhrifum efnistöku
í Hrossadal í landi Miðdals í Mos-
fellsbæ.
Allir hafa rétt til að kynna sér til-
löguna og leggja fram athugasemd-
ir. Hægt er að nálgast tillögu að
matsáætlun á heimasíðu Alta:
www.alta.is
Athugasemdir skulu vera skrif-
legar og berast eigi síðar en 28. nóv-
ember 2005 til Skipulagsstofnunar,
Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Þar
fást ennfremur nánari upplýsingar
um mat á umhverfisáhrifum.
Skipulagsstofnun hefur leitað
umsagnar Mosfellsbæjar, Forn-
leifaverndar ríkisins, Heilbrigðis-
eftirlits Kjósarsvæðis, Landsnets,
Orkuveitu Reykjavíkur, Umhverfis-
stofnunar og Vegagerðarinnar.
Stefnt er að því að ákvörðun
Skipulagsstofnunar um tillögu
framkvæmdaraðila að matsáætlun
muni liggja fyrir 28. nóvember
2005.
Efnistaka
metin
í Hrossadal