Morgunblaðið - 19.11.2005, Síða 61
Friðar- og mann-
réttindaráðstefna
ungs fólks
FRIÐAR- og mannréttinda-
ráðstefna ungs fólks verður haldin
í dag, laugardaginn 19. nóvember,
í Ráðhúsi Reykjavíkur. Ráðstefnan
hefst kl. 14 og lýkur 17.30. Að-
gangur er ókeypis.
Ráðstefnan er sett upp í
tengslum við sýninguna „Gandhi,
King, Ikeda:
Friður fyrir komandi kynslóðir“
sem nú er í Ráðhúsinu. Yfirskrift
ráðstefnunnar er: „Áhrifamáttur
einstaklingsins til að breyta heim-
inum“. Þar verður reynt að svara
spurningunni „hvað getur ungt
fólk lagt að mörkum til mannrétt-
inda- og friðarmála á 21. öldinni
sem einstaklingar?“ segir í frétta-
tilkynningu.
Amnesty International, Rauði
kross Íslands, UNICEF, Samstarfs-
hópur friðarhreyfinga, Samtökin
’78 og Soka Gakkai International
á Íslandi fjalla um störf sín í þágu
friðar og mannréttinda. Einnig
munu Alþjóðahúsið, Blátt áfram,
CISV, Dýraverndarsamtök Íslands,
og Geðhjálp kynna starfsemi sína.
Hörður Torfason, Skjöldur Ey-
fjörð, Ólafur Magnús Torfason,
Chris Foster og Bára Grímsdóttir
flytja tónlist á milli atriða. Allir
eru velkomnir á meðan húsrúm
leyfir.
Nánari upplýsingar er að finna
á www.simnet.is/meistarar/
radstefna
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 2005 61
FRÉTTIR
SJÓMANNADAGSRÁÐ, Íslands-
banki og Húsvirki hafa undirritað
samning um byggingu og fjár-
mögnun 24 leiguíbúða við Hrafn-
istu í Reykjavík. Íbúðirnar eru ætl-
aðar fólki 60 ára og eldra, en mikil
eftirspurn er eftir leiguíbúðum í
grennd við dvalar- og hjúkrunar-
heimili aldraðra.
Húsvirki sér um framkvæmdina
sem Íslandsbanki fjármagnar á
byggingartíma með láni upp að 500
milljónum króna. Íslandsbanki og
Sjómannadagsráð hafa áður átt
farsælt samstarf um fjármögnun á
fasteignum fyrir félagið, segir í
fréttatilkynningu.
Um er að ræða 2.450 fermetra
hús á fjórum hæðum með kjallara.
Innangengt verður úr húsinu inn á
Hrafnistu í Reykjavík, þar sem íbú-
arnir geta keypt sér margvíslega
þjónustu.
Íbúðirnar eru frá 73 fermetrum
upp í 112 fermetra, að meðtalinni
sameign. Þær verða búnar neyð-
arhnöppum sem eru beintengdir
við Hrafnistu, sem veitir íbúum
leiguíbúðanna alla nauðsynlega
bráðaþjónustu.
Byggingaframkvæmdir eru þeg-
ar hafnar og stefnt er að því að hús-
ið verði fullbyggt og íbúðirnar til-
búnar í lok mars árið 2007.
Teiknistofa Halldórs Guðmunds-
sonar teiknaði húsið en VSÓ ráð-
gjöf sá um verkfræðilega hönnun
þess.
Tuttugu og fjórar
nýjar leiguíbúðir við
Hrafnistu í Reykjavík
Á FERÐ sinni kringum hnöttinn á
30 dögum, sem nýlega er lokið með
þátttöku rúmlega 40 manns, hafði
staðið til að allur hópurinn yrði við-
staddur opnun nýja þjóðleikshúss-
ins í Bangkok, en opnunin frestað-
ist um einn dag, svo að afþakka
varð boðið, sem var hið höfðingleg-
asta.
Vegna sérstakra vináttutengsla
hefur boðið nú verið framlengt til 1.
febrúar á næsta ári, en þá verður
annar hópur á vegum Heims-
kringlu; Ferðaklúbbs Ingólf Guð-
brandssonar og Heimsferða stadd-
ur í borginni á ferð sinni um landið
og nágrannaríki. Sýna Taílending-
ar gestunum virðingu með þessu
boði, sem jafnframt er viðurkenn-
ing til Ingólfs Guðbrandssonar,
sem haldið hefur úti menningar-
ferðum til Taílands í meira en 20 ár.
Þess má einnig minnast, að nú hef-
ur vegabréfsáritun fyrir íslenska
ferðamenn verið aflétt í Taílandi.
Að sögn sérfróðra er nýja leik-
húsið Siam Niramat í fremstu röð í
heiminum hvað snertir búnað og
leiksviðstækni. Sýningin þykir sú
litríkasta, sem getur að líta nokkurs
staðar, enda hafa fremstu leikhús-
menn heimsins lagt hönd að verki.
Sögupersónur birtast jafnt svíf-
andi utan úr geimnum sem á jörðu
niðri, segir í fréttatilkynningu.
Aðgangur fyrir íslensku gestina
verður ókeypis að þessu sinni. Með-
al annars sem ber upp á í ferðinni er
heimsókn á hinar frægu blómahá-
tíðir Norður-Taílands, í Chiang Mai
og Chiang Rai. Og Hinn gullni þrí-
hyrningur á landamærum Taí-
lands, Laos og Myanmar (Burma).
Ferðasaga nýafstaðinnar hnatt-
reisu Heimskringlu/Heimsferða
verður sögð í breiðtjaldsmyndum
Gunnars V. Andréssonar ljósmynd-
ara í sal 1 í Háskólabíói í dag, laug-
ardag 19. nóvember, kl. 13.15.
Hægt er að kaupa aðgöngumiða frá
kl. 12.30.
Myndasýning úr hnattreisu Heimskringlu/Heimsferða
Hópi Íslendinga boðið í
nýtt þjóðleikhús Taílands
Lýst eftir vitnum
LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir eft-
ir vitnum að ákeyrslu og afstungu á
bifreiðastæðinu við KB banka í
Mjódd 16. nóvember um kl. 16.30.
Dökkblárri VW Golf eða Polo fólks-
bifreið var ekið inn á stæðið en svo
virðist sem ökumaður hennar hafi
misst stjórn á bifreiðinni með þeim
afleiðingum að hún rann á rauða
Toyota-bifreið, sem stóð kyrr og
mannlaus á stæðinu, sem við það
kastaðist á gráa Peugeot-bifreið
sem einnig var kyrrstæð. Ökumað-
ur ók hins vegar á brott. Þeir sem
geta gefið frekari upplýsingar eru
beðnir að snúa sér til umferðar-
deildar lögreglunnar í Reykjavík.
Sýning á léttvín-
um í Smáralind
MATUR og léttvín af ýmsu tagi
verða kynnt á Vínsýningunni 2005 í
Vetrargarðinum í Smáralind um
helgina, þar sem helstu vínbirgjar
landsins koma saman.
Vínþjónasamtök Íslands og
ÁTVR standa fyrir sýningunni.
Hægt verður að smakka á mat með
vínunum, kynnast helstu nýjungum
og aukahlutum og almennt fá betri
innsýn í heim vínsins, segir í frétta-
tilkynningu.
Gestir sýningarinnar fá einnig að
fylgjast með spennandi keppni milli
vínklúbba ásamt því að eiga mögu-
leika á að leysa sjálfir skemmti-
legar þrautir þar sem þeir snjöll-
ustu geta unnið til verðlauna, segir
í fréttatilkynningu.
Miðaverð er 1.000 kr. og innifalið
í miðaverði er eitt vínglas (á meðan
birgðir endast). 20 ára aldurs-
takmark er inn á sýninguna, en hún
er opin frá kl. 13–18 laugardag og
sunnudag.
Yfirlýsing Samtaka um betri byggð
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi yfirlýsing Samtaka um
betri byggð:
„Samtök um betri byggð lýsa yf-
ir furðu á orðum, sem höfð eru eft-
ir Degi B. Eggertssyni borgarfull-
trúa í grein á bls. 11 í
Morgunblaðinu mánudaginn 14.11.
2005. Í umfjöllun um færslu Hring-
brautar, sem Samtök um betri
byggð og fjölmargir aðrir telja með
verstu skipulagsmistökum í
Reykjavík fyrr og síðar, er haft eft-
ir Degi:
„Auk þess gerir útfærsla Hring-
brautar ráð fyrir því að hægt sé að
byggja yfir hana þegar byggð rís í
Vatnsmýri.“
Samtökin óska þess hér með að
Dagur geri grein fyrir því hvað
hann á við. Eins og hver maður
getur skilið með því að skoða
verksummerkin við Vatnsmýrina
er ekki mögulegt að byggja 6 m há-
an og 30 m breiðan stokk yfir götu,
sem er lögð í yfirborð landsins.
Samtök um betri byggð börðust í
6 ár gegn áformum Vegagerðarinn-
ar um færslu Hringbrautar. Sam-
tökin lögðu fram fjölmargar tillög-
ur, áskoranir, greinargerðir,
rökstudd erindi og kostnaðarmat
máli sínu til stuðnings, t.d. um
Hringbraut bæði í opnum og lok-
uðum stokki, tillögur að niðurfell-
ingu gömlu Hringbrautar, tillögu
að mislægum gatnamótum við Bú-
staðaveg og mat á verðmæti lands-
ins, sem nú er farið í súginn. Engin
viðbrögð komu frá neinum hinna 15
kjörnu fulltrúa í Ráðhúsi Reykja-
víkur.
Samtök um betri byggð stóðu
fyrir 2 borgarafundum í Ráðhúsi
Reykjavíkur um færslu Hring-
brautar í von um að þannig næðu
kjósendur í Reykjavík tali af kjörn-
um fulltrúum sínum við pallborðið.
Í hvorugt skiptið mætti nokkur
borgarfulltrúi.
Þó Hringbrautarklúðrið ætti að
vera ráðamönnum víti til varnaðar
eru nú í uppsiglingu stórfelld
skipulagsmistök, sýnu verri, við
hönnun Sundabrautar. Þar virðast
15 borgarfulltrúar ætla að fórna
hagsmunum Reykvíkinga, allir sem
einn, með því að samþykkja lakan
valkost samgönguráðherra um
þverun Kleppsvíkur í leið III, val-
kost sem er óhagstæður fyrir sam-
félagið, umhverfið, umferðina og
þróun miðborgarinnar.“
Ingibjörg Sólrún
með Dagsbrún-
arfyrirlestur
BÓKASAFN Dagsbrúnar og
ReykjavíkurAkademían í samstarfi
við Eflingu – stéttarfélag boða til
hins árlega Dagsbrúnarfyrirlesturs í
dag, laugardaginn 19. nóvember.
Fyrirlesari verður Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, formaður Samfylking-
arinnar. Erindi sitt nefnir hún: Ís-
lenskt launafólk á tímum alþjóða-
væðingar. Fyrirlesturinn hefst kl. 15
í ReykjavíkurAkademíunni, 4. hæð,
JL húsinu, Hringbraut 121, Reykja-
vík.
Í fréttatilkynningu segir: „Í fyr-
irlestrinum verður fjallað um hnatt-
væðinguna og þróun hennar. Fjallað
verður um efnahagslegt og pólitískt
vald alþjóðlegra viðskiptablokka á
tímum hnattvæðingar og áhrif
þeirra á stefnumótun og umræðu á
vettvangi stjórnmálanna. Rætt verð-
ur um nýfrjálshyggjuna sem af-
sprengi viðskiptalegra hagsmuna
stórfyrirtækjanna og hvernig hún
hefur vegið að jöfnuði og jafnrétti
milli þjóða og innan þjóða. Þá verður
fjallað um hvernig hægt sé að bregð-
ast við þessari þróun og nýta hnatt-
væðinguna í þágu launafólks og
þeirra sem eiga undir högg að sækja
í heiminum í dag.“
Að loknum fyrirlestri verður gest-
um boðið að skoða Bókasafn Dags-
brúnar og þiggja þar léttar veit-
ingar. Allir eru velkomnir meðan
húsrúm leyfir.
KARLAKÓRINN Lóuþrælar og
Sönghópurinn Sandlóur í Húna-
þingi vestra halda söngskemmtun í
Fella- og Hólakirkju í dag, laug-
ardaginn 19. nóvember kl. 16.
Stjórnandi Lóuþræla er Guð-
mundur St. Sigurðsson og undir-
leikarar Elínborg Sigurgeirsdóttir
og Þorvaldur Pálsson.
Karlakórinn Lóuþrælar er 20 ára
á þessu ári, og hefur kórinn haldið
á árinu nokkra hljómleika á
Hvammstanga og í nágranna-
byggðum. Kórfélagar eru um 30.
Efnisskrá tónleikanna er fjöl-
breytt og höfðar til allra aldurs-
hópa. Aðgangseyrir er 2.000 kr., en
ókeypis er fyrir ungmenni til og
með 14 ára.
Lóuþrælar
og Sandlóur
syngja
SALA er hafin á jólakortum Styrkt-
arfélags vangefinna. Í ár prýðir mynd-
in „Jól“ eftir Stefán Sigvalda Krist-
insson kortin. Þau fást stök án texta á
85 kr. stk. og einnig 6 í búnti á 500 kr.
Allur ágóði af sölu jólakortanna fer
til að bæta þjónustu við þroskahefta.
Félagið fékk nýlega úthlutað lóð undir
nýtt sambýli fyrir mikið fatlaða ein-
staklinga, sem brýn þörf er á að reisa.
Munu byggingarframkvæmdir hefjast
í byrjun nýs árs. Með dyggri aðstoð
velunnara tekst vonandi að gera það
fullbúið á næsta ári, segir í frétta-
tilkynningu.
Kortin verða til sölu á skrifstofu fé-
lagsins, Skipholti 50c, 3. hæð, í Bjark-
arási, Stjörnugróf 9, Lækjarási,
Stjörnugróf 7, Lyngási, Safamýri 5,
Ási, Brautarholti 6, Þroskahjálp,
Háaleitisbraut 11–13, Öryrkjabanda-
lagi Íslands, Hátúni 10, Lyfjum og
heilsu, Eiðistorgi 17, Efnalauginni
Björg, Álfabakka 12 og Háaleit-
isbraut 58–60, og Skipholtsapóteki,
Skipholti 50 b.
Jólakort Styrktarfélags vangefinna