Morgunblaðið - 19.11.2005, Side 67

Morgunblaðið - 19.11.2005, Side 67
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 2005 67 MENNING HUGLEIKUR ræðst nú í það að setja upp leikgerð á Jólaævintýri Dickens. Þetta er fyrsta íslenska leikgerðin á þessari sögu, sem hefur verið vinsælt viðfangsefni leik- húsfólks frá því hún kom út árið 1843. Söguna þekkja flestir, klassísk saga sem öll fjölskyldan getur notið saman, og er kjörin til að koma fólki í jólaskap. Hugleikarar láta sér þó ekki nægja að fara einföldu leiðina að efninu, heldur flytja atburðina úr Lundúnaþoku nítjándu aldar inn í ís- lenskt sveitaumhverfi. Skröggur gamli er nú kominn inn í íslenska nítjándu aldar baðstofu, Tommi litli leikur sér að legg og skel og draugarnir þír eru íslenskar skottur og mórar. Og þátt fyrir dramatískan undirtón sögunnar er vörumerki Hugleiks að ærslast með efniviðinn og gera hann að sínum. Höfundar eru þau Sigríður Lára Sigurjónsdóttir, Sigrún Ósk- arsdóttir, Snæbjörn Ragnarsson og Þorgeir Tryggvason. Með hlutverk Skröggs fer Björn Thorarensen, en alls standa um tuttugu manns á sviðnu. Leikstjórn er í höndum höf- unda. Sýningar fara fram í Tjarnarbíói og standa yfir fram í miðjan desem- ber, auk tveggja sýninga milli jóla og nýárs. Frumsýning er í kvöld kl. 20. Í sýningunni eru fjölmörg sönglög sem þegar hafa verið hljóðrituð og verða gefin út á geisladiski. Um und- irleik sér hljómsveitin Forynjur og draugar, en þar eru m.a. innanborðs félagar úr hljómsveitunum Ampop, Hraun og Innvortis, auk þess sem velflestir leikaranna grípa í hljóð- færi þegar mikið liggur við. Jólaævintýri Hugleiks er viða- mesta uppfærsla félagsins síðan fjöl- skyldusöngleikurinn Kolrassa var sýndur árið 2002. Leiklist | Hugleikur sýnir Jólaævintýri Morgunblaðið/Sverrir Skröggur í íslenskri baðstofu LIONSHREYFINGIN á Íslandi heldur menningarhátíð í Salnum í Kópavogi í dag. Fjölbreytt menn- ingarstarf Lionshreyfingarinnar verður kynnt og fram koma tveir ungir listamenn þau Gróa Margrét Valdimarsdóttir og Joachin Páll Palomares fiðluleikarar. Þau Gróa og Páll hafa bæði farið út og leikið með Orkester Norden. Orkester Norden er sinfón- íuhljómsveit ungra tónlistarmanna frá Norðurlöndum með gestum frá baltneskum löndum á vegum Nor- ræna ráðherraráðsins og hefur þátttaka ungmennanna verið styrkt af Lionshreyfingunni. Íslensk þátt- taka í Orkester Norden hefur um árabil verið hlutfallslega mikil mið- að við fólksfjölda. Þá verður kynntur fulltrúi Lions á Íslandi á tónlistarkeppni Evr- ópuþings Lionshreyfingarinnar, Europa Forum, sem haldin verður í Bournemouth á Englandi á næsta ári, en þar eru það flautuleikarar sem mæta til leiks. Fulltrúi Lions- hreyfingarinnar á Íslandi verður Melkorka Ólafsdóttir flautuleikari. Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir. Menningarhátíð Lionshreyfingarinnar Í TILEFNI af 50 ára afmæli Kópa- vogs var Kársnesskóli með þema- viku 7.–11. nóvember og í lok vik- unnar var afraksturinn til sýnis fyrir foreldra og aðra gesti. Einn hópur tók að sér þemað Óperuhús í Kópavogi og komu krakkarnir, ásamt kennara sínum Pjetri Maack, í heimsókn í Óperuna í vikunni. Ing- ólfur Níels Árnason fræðslustjóri tók á móti þeim og fór með þau í skoðunarferð um húsið. Ingólfur sat svo fyrir svörum og voru krakk- arnir greinilega vel undirbúin og spurðu Ingólf spjörunum úr um m.a. hvað hann teldi vera æskilega stærð á óperuhúsi, hversu stórt svið þyrfti að vera í húsinu og hvort hægt væri að halda rokktónleika í óperuhúsi. Afraksturinn var svo til sýnis uppi í Kársnesskóla í lok þemavikunnar og höfðu krakkarnir búið til módel og teikningar af óp- eruhúsi framtíðarinnar í Kópavogi. Það er óhætt að segja að sköp- unargleðin hafi ráðið ríkjum hjá krökkunum í Kársnesskóla og sem dæmi má nefna að einn hópurinn hannaði óperuhús sem er eins og hvalur, þar sem aðalinngangur hússins er um gin hvalsins og á þak- inu er gosbrunnur. Annar hópur hannaði hús sem lítur út eins og blóm séð úr lofti. Sýning á verkum krakkanna verður opnuð í Íslensku óperunni í dag kl. 11 og verður húsið opið fyr- ir gesti og gangandi til kl. 14. Börn hanna óperuhús SNORRI Ásmundsson opnar yf- irlitssýningu á Nýlistasafninu í dag þar sem hann gerir upp feril sinn undanfarin ár og þar ber ýmislegt á góma. „Snorri er listamaður sem oft hefur leitast við að hafa bein áhrif á samfélagið með opinberum uppákomum. Hann hefur und- anfarin ár truflað tilveru fólks með umfangsmiklum gjörningum sínum sem hafa oftar en ekki beinst að helstu feimnismálum al- mennings eins og pólitík, kynlífi og trúmálum. Borgarstjórn- arframboð, forsetaframboð, til- nefningar til heiðursborgara og sala aflátsbréfa svo dæmi séu tek- in. Hann hefur fengist við að skoða viðbrögð umhverfisins, þ.e. viðbrögð fólks við því þegar við- urkenndum gildum er snúið á hvolf og þegar, annars valdalaus, einstaklingur tekur sér vald sem alla jafna er úthlutað eftir fyr- irfram gefnum reglum. Hvernig svo sem fólk bregst við þessum uppátækjum listamannsins þá er hann fyrst og fremst að ögra sam- félaginu og gildum þess. Hann leit- ar á mið sem kalla á snörp við- brögð og kannar um leið mörk náungans og væntanlega sín eig- in,“ segir í kynningu. Snorri sýnir á Nýló SÝNING Tilraunaeldhússins verð- ur opnuð í Nýlistasafninu í dag og stendur til 19. desember. Sýnendur eru Helgi Þórsson (Stilluppsteypa), Magnús Helgason, Auxpan (Elvar Már Kjartansson), Borko (Björn Kristjánsson), Trabant og DJ Mus- ician (Pétur Eyvindsson). „Við val sitt á sýnendum ein- blíndi Tilraunaeldhúsið á list sem sendir umsvifalaust flugelda í slag- æðar áhorfandans. Við flækjum ekki heilabrot í hjartarótunum. Við viljum að listin hellist yfir okk- ur milliliðalaust, án málalenginga. Við njótum hennar eins og op- inmynnt barn starir í glitrandi ljósaperu, við heillumst hiklaust. Við potum í takka og sveiflum okk- ur í regnbogalitum vírum. Það er gaman. List er skemmtileg. Hún er ekki flókin gáta fyrir áhorfandann að leysa. Það er gaman í Eldhúsinu og Eldhúsið logar,“ segir í kynn- ingu. Á sýningatímabilinu slær Til- raunaeldhúsið upp röð ellefu við- burða þar sem fornar dyggðir þess eru endurvaktar – eldar kveiktir milli ólíkra listamanna í ólíklegum og æsilegum samstarfsverkefnum. Viðburðir Tilraunaeldhússins verða á þriðjudögum, fimmtudög- um og laugardögum frá og með 22. nóvember–19. desember og verða nánar auglýstir síðar. Tilraunaeldhúsið hefur verið starfrækt í sjö ár af Jóhanni Jó- hannssyni, Hilmari Jenssyni og Kristínu Björk Kristjánsdóttur (Kira Kira). Tilraunaeldhúsið á Nýló

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.