Fréttablaðið - 14.12.2005, Síða 2
Jörundur
hundadaga-
konungur
Ævintýramaðurinn
sem lagði Ísland
undir sig.
Lygilegri en nokkur
skáldskapur.
Frábær ævisaga.
SKRUDDA
Eyjarslóð 9 - Reykjavík
s. 5528866 - skrudda@skrudda.is
ÞEGAR NEYÐIN ER STÆRST Hundruð millj-
arða króna berast til Afríku frá innflytjend-
um sem fengið hafa störf í Evrópu.
NORDICPHOTOS.AFP
SPÁNN Afrískir innflytjendur á
Spáni senda sem svarar til 24
milljarða króna af launum sínum
hvert ár til ástvina sinna í heima-
löndum sínum og lina þannig
þjáningar og fátækt hjá hálfum
milljarði manna.
Þetta er niðurstaða rannsóknar
sem spænsk stofnun í alþjóðamál-
um lét gera. Þar kemur auk þess
fram að gera megi því skóna að
þetta fé, og annað það sem berst frá
innflytjendum í öðrum vestrænum
löndum, geri meira fyrir fátæka
íbúa í mörgum ríkjum álfunnar
en sú neyðarhjálp er þjóðir heims
senda reglulega til Afríku þar sem
fleiri milljónir manna lifa á 60
krónum eða minna hvern dag. ■
Innflytjendur á Spáni:
Senda fúlgur
til síns heima
������ ��������� ���� ������
��������� �� ���������� ������ ��
������������������������������
������������������������������
���� ������ ������ ������ �����
�����������������������������
�������� ���� ��������� �������
��� ������� ��� ������� ������ ����
���� ����� �������� �������� ���
���������������������� �����
������������������������������
��� ��� ������ ����������� ������
������� �������������� ��� ����
����������������������������������
�������� ��� ���������� ���� ����
���������������������������������
������������������������������
�� ����� ��������� �����������
����� ������ �������������� �����
������������������ ����� ����
��������
���������
HONG KONG, AP Til átaka kom á milli
nokkurra tuga mótmælenda og lög-
reglu við upphaf ráðherrafundar
Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar
WTO í Hong Kong í gær.
Eftir að friðsamlegri kröfu-
göngu lauk í gærmorgun þar sem
4.500 manns fylktu liði reyndu
rúmlega sjötíu suðurkóreskir
bændur að brjóta varnarlínu lög-
reglunnar umhverfis fundarstað
erlendu sendinefndanna í borg-
inni. Þeir létu höggin dynja á lög-
reglumönnum með bambusstöfum
sem svöruðu að bragði með því að
sprauta á þá piparúða.
Áður en til þessarar snerru kom
stukku um eitt hundrað Suður-Kór-
eumenn ofan í eina af höfnum borg-
arinnar og freistuðu þess að synda
til ráðstefnuhallarinnar. Áður en
þeir komust á leiðarenda voru þeir
hins vegar veiddir upp úr vatninu
af lögreglumönnum á bátum.
Suðurkóresku bændurnir óttast
að kröfur WTO um að hrísgrjón-
amarkaðir landsins verði opnaðir
muni ganga af stétt þeirra dauðri.
John Tsang, viðskiptamálaráð-
herra Hong Kong, kvaðst harma
átökin og varaði óeirðaseggina við
að tekið yrði á þeim af hörku. Einn
leiðtogi mótmælendanna sagði hins
vegar að þeir væru hvergi nærri
hættir aðgerðum sínum.
Á fundinum var fyrirhugað að
ljúka svonefndri Doha-samninga-
lotu sem miðar að því að draga
verulega úr hvers kyns tollamúrum
og niðurgreiðslum en ekki er búist
við að mikill árangur verði af við-
ræðunum. - shg
HANDALÖGMÁL Mótmælendur huldu and-
lit sín með grímum til að verjast piparúða
lögreglunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Ráðherrafundur Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar hófst í gær:
Mótmælendur lömdu lögreglu
Nafn hins látna Maðurinn sem
lést í umferðarslysi á hringvegin-
um við Sætún í Svalbarðsstrand-
arhreppi hét Sigurður Arnar Ró-
bertsson. Hann var fæddur árið
1967 í Reykjavík en búsettur að
Laxagötu 6 á Akureyri. Sigurður
lætur eftir sig þrjú börn. Bifreið
sem hann ók lenti út af hring-
veginum að morgni mánudagsins
12. desember, hafnaði á hvolfi
og kom eldur upp. Vegfarendum
sem komu að bílnum tókst ekki að
slökkva eldinn með handslökkvi-
tæki. Þegar lögregla og Slökkvi-
lið Akureyrar komu á staðinn var
Sigurður látinn.
BANASLYS
SVÍÞJÓÐ Svíar ætla að koma sér
upp verksmiðju til að framleiða
efni til bólusetninga fyrir árið
2010. Verksmiðjan er hluti af
viðbragðsáætlun Svía ef farsótt
á borð við fuglaflensu brýst út.
Ríkisstjórnin mun ræða við full-
trúa alþjóðlegra lyfjarisa um
samstarf.
Á vefútgáfu Dagens Nyhet-
er kemur fram að áætlað sé að
verksmiðjan kosti um 10 millj-
arða sænskra króna og að ekki
sé endanlega frágengið hversu
mikið Svíar muni greiða og hvort
aðrar þjóðir taki þátt í að byggja
verksmiðjuna. - ghs
Ótti við útbreiðslu sjúkdóma:
Svíar bregðast
við farsóttum
2 14. desember 2005 MIÐVIKUDAGUR
SPURNING DAGSINS
Hjalti, er nokkuð mál að gera
mynd um Jón Pál?
„Já, ég þarf að hafa mig allan við.“
Hjalti Úrsus Árnason er með í bígerð
heimildarmynd um kraftajötuninn Jón Pál
Sigmarsson heitinn.
BÆKUR Þýskt útgáfufyrirtæki hefur
keypt útgáfuréttinn að skáldsögu
Árna Þórarinssonar, Tíma nornar-
innar, í Þýskalandi fyrir 2,3 millj-
ónir króna. Útgáfufyrirtækið JPV,
sem gefur bækur Árna út, segir
það metfé fyrir íslenska bók.
Um er að ræða fyrirtækið
Droemer Knaur sem er eitt hið
öflugasta í Þýskalandi. Tvö önnur
forlög sýndu einnig mikinn áhuga
á bók Árna.
Sjálfur segir Árni að þetta
hafi komið honum á óvart. „Það
er greinilegt að áhrif Arnalds
Indriðasonar eru mikil og hann
hefur rutt glæpaskáldsögum
ákveðna braut í Þýskalandi. Ég er
að vonum ánægður með árangur-
inn og tel ljóst orðið að Jóhann Páll
Valdimarsson sé ansi góður sölu-
maður.“
Tími nornarinnar er fjórða
skáldsaga Árna en fyrsta bók hans,
Nóttin hefur þúsund augu, var
einnig gefin út í Þýskalandi. „Það
var með litlum árangri og það forlag
fór á hausinn skömmu síðar. Þessi
nýi samningur er hins vegar mikil
búbót og hver veit nema pakkarn-
ir undir jólatrénu þessi jólin verði
stærri en ella fyrir vikið.“ - aöe
Tími nornarinnar eftir Árna Þórarinsson verður gefin út í Þýskalandi:
Metverð fyrir útgáfurétt
HRÓÐUR ÍSLENSKRA RITHÖFUNDA EYKST ENN Fjórða bók Árna Þórarinssonar, Tími nornar-
innar, hefur verið seld fyrir 2,3 milljónir til Þýskalands. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
MANNRÉTTINDI Dick Marty, öld-
ungadeildarþingmaður frá Sviss,
segir í skýrslu sinni fyrir Evrópu-
ráðið að ásakanir um leynifang-
elsi og fangaflutninga bandarísku
leyniþjónustunnar CIA séu trú-
verðugar. Hann segir þó engin slík
fangelsi starfrækt í Evrópu í dag.
Marty kynnti niðurstöður bráða-
birgðaskýrslu sinnar fyrir mann-
réttindanefnd Evrópuráðsins í
gær en hann var fenginn til að
kanna hvort fótur væri fyrir því
að CIA flytti grunaða hryðju-
verkamenn um evrópska flugvelli
í leynileg fangelsi til yfirheyrslna
í trássi við alþjóðalög. Í skýrsl-
unni segir Marty að „upplýsing-
ar sem safnað hefur verið fram
á þennan dag renni stoðum undir
trúverðugleika ásakananna um
flutninga og tímabundið varðhald
einstaklinga, án dóms og laga, í
evrópskum ríkjum.“
Á blaðamannafundi í kjölfarið
sagði Marty telja að engin leyni-
fangelsi væru ennþá starfrækt í
álfunni heldur hefði þeim verið
lokað í kjölfar frétta af málinu og
fangarnir fluttir til Norður-Afr-
íku, að líkindum til Marokkó.
Engin Evrópulönd voru sér-
staklega nefnd í skýrslunni. Þar
segir samt að „þótt of snemmt
sé að staðhæfa að ríkisstjórnir
landanna sem í hlut eiga hafi haft
vitneskju um eða tekið þátt í ólög-
legu athæfi er alvara ásakananna
svo mikil og vísbendingarnar svo
eindregnar að rétt sé að halda
ítarlegri rannsókn áfram.“
Marty fer hörðum orðum um
bandarísk stjórnvöld í skýrslunni
og bendir á að þau hafi aldrei neit-
að ásökununum. „Skýrsluhöfund-
ur vill lýsa vanþóknun sinni á að
Rice gaf engar upplýsingar eða
útskýringar um málið í Evrópuför
sinni,“ segir í skýrslunni og er þar
átt við Condoleezzu Rice, utanrík-
isráðherra Bandaríkjanna.
Rannsókn málsins mun halda
áfram og hefur Marty meðal ann-
ars farið fram á að fá gervihnatta-
myndir af tveimur herflugvöllum
í Rúmeníu og Póllandi en mann-
réttindasamtökin Human Rights
Watch hafa haldið því fram að þar
hafi leynifangelsin verið starf-
rækt. sveinng@frettabladid.is
Ásakanir um leyni-
fangelsi trúverðugar
Svissneskur öldungadeildarþingmaður sem rannsakað hefur ásakanir um
fangaflutninga og leynifangelsi CIA fyrir Evrópuráðið segir þær trúverðugar í
nýútkominni skýrslu sinni. Hann átelur bandarísk stjórnvöld fyrir þögn sína.
Á FUNDI MANNRÉTTINDANEFNDARINNAR Að sögn Dicks Marty flutti CIA alla sína fanga frá
Evrópu til Marokkó þegar umræður um leynifangelsin komu upp í síðasta mánuði. MYND/AP
Á IÐUFELLI Sextugur maður hefur verið
úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna rækt-
unar á marijúana. MYND/SUNNLENSKA
LÖGREGLA Á annað hundrað kann -
abisplöntur og fimm kíló af
marijúana fundust við húsleit á
ferðaþjónustubænum Iðufelli í
Laugarási í gær. Þetta er einn
stærsti fíkniefnafundur lögregl-
unnar á Selfossi hvað magnið
varðar. Söluverð fíkniefnanna er
3.000 til 3.500 krónur grammið
komið á götunni.
Lögregla hefur handtekið einn
mann vegna málsins og óskað
eftir að hann verði úrskurðaður
í viku gæsluvarðhald. Maðurinn
hefur áður verið ákærður fyrir
tryggingasvik og íkveikjutilraun
í húsi á Stokkseyri og verður það
tekið fyrir í dómi á næstunni. ■
Marijúana á Selfossi:
Maður í viku
gæsluvarðhald