Fréttablaðið - 14.12.2005, Page 18
14. desember 2005 MIÐVIKUDAGUR
DÓMSMÁL Tekin hefur verið
ákvörðun um að áfrýja til Hæsta-
réttar tveggja ára fangelsisdómi
sem fyrir helgi var kveðinn upp
yfir 16 ára pilti í Héraðsdómi
Reykjavíkur. Hann nam, í félagi
við aðra, á brott starfsmann Bón-
usverslunar á höfuðborgarsvæðinu
og píndi hann til að taka út peninga
í banka. Árásin átti sér stað föstu-
daginn 2. september.
Jóhannes Ásgeirsson, lögmað-
ur piltsins, staðfesti að til stæði
að áfrýja. Ekki hefur verið tekin
ákvörðun um hvar piltinum verður
gert að sitja af sér dóminn, en
líklegt er talið að það verði á Litla-
Hrauni. Er það vegna þess að pilt-
urinn hefur áður orðið uppvís af
tilraun til að smygla um 44 grömm-
um af hassi í fangelsið á Litla-
Hrauni og því ólíklegra að fallist
verði á lágmarksgæslu. Einnig var
dæmt vegna þess núna, en bróðir
piltsins, tveimur árum eldri, játaði
að hafa fært honum efnin. Sá var
dæmdur til greiðslu 150.000 króna
sektar.
Jóhannes segir hér vanta
úrræði fyrir unga afbrotamenn.
„Að sjálfsögðu verður að vera til
unglingafangelsi og einhver upp-
byggileg starfsemi þar,“ segir
hann og telur aðstæður sem
ungum afbrotamönnum eru hér
búnar vera forkastanlegar. Lög-
maðurinn segir hins vegar nokkuð
vel útlistað í dómsorðinu hvernig
á því standi að dómurinn yfir pilt-
inum sé jafnþungur og raun ber
vitni.
Fram kemur í dómnum að með
broti sínu hafi pilturinn rofið 13
mánaða skilorðsbundna fangelsis-
refsingu, sem kveðin var upp yfir
honum sama dag, en alls hljóðaði
sá dómur upp á 16 mánaða fang-
elsi. Að auki var pilturinn með á
bakinu 5 mánaða skilorðsbundinn
dóm fyrir þjófnað frá því í desem-
ber 2004. „Að rjúfa skilorð dóms-
ins samdægurs þykir bera vott um
styrkan og einbeittan brotavilja
ákærða og er það virt til refsi-
hækkunar,“ segir í dómnum, en
tekið fram að á móti komi skýlaus
játning og ungur aldur.
Sá elsti í hópnum sem rændi
Bónusstarfsmanninum, 26 ára að
aldri, var ökumaður bílsins sem
notaður var við árásina. Hann var
fyrir aðild sína dæmdur í fimm
mánaða fangelsi skilorðsbundið í
tvö ár. Þá voru hann og pilturinn
dæmdir til að greiða þeim sem
rænt var 300.000 krónur í miska-
bætur. olikr@frettabladid.is
VIÐ ÞINGFESTINGU Í HÉRAÐSDÓMI REYKJAVÍKUR Í NÓVEMBERBYRJUN Fimm voru ákærðir í
máli þar sem starfsmanni í Bónusverslun var rænt og hann píndur til að taka út peninga í
hraðbanka. Tveir voru sýknaðir, einn hlaut tveggja ára fangelsi. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Ungur brotamaður
áfrýjar héraðsdómi
Máli 16 ára pilts sem fyrir helgi var dæmdur í tveggja ára fangelsi verður áfrýj-
að til Hæstaréttar. Lögmaður piltsins segir hér vanta úrræði fyrir afbrotaungl-
inga. Af fimm sem voru ákærðir í málinu voru þrír sýknaðir.
Í TILEFNI AF GULLSÖLU Á ÞVÍ
BESTA MEÐ STRÁKUNUM
MÆTA SVEPPI, AUDDI OG PÉTUR
KLUKKAN 15:00
FIMMTUDAGINN
15. DESEMBER
Í BT SMÁRALIND OG ÁRITA!
TRYGGÐU ÞÉR ÁRITAÐ EINTAK
AF ÞVÍ BESTA MEÐ STRÁKUNUM!
BANDARÍKIN Þrátt fyrir þrjár
þrumuræður um stjórnmálaupp-
bygginguna í Írak að undanförnu
bendir ný viðhorfskönnun CNN,
USA Today og Gallup til að 58 pró-
sent Bandaríkjamanna telji George
W. Bush forseti skorta stefnu sem
skila mun árangri í hernaðinum í
Írak.
Könnunin var gerð um helg-
ina en greint var frá niðurstöðum
hennar í fyrrakvöld. Rúmlega þús-
und Bandaríkjamenn voru spurðir
um afstöðu sína til frammistöðu
forsetans.
59 prósent sögðu hann hafa
haldið illa á málefnum Íraks, sem
er lægra hlutfall en í könnun síð-
astliðins mánaðar en þá voru 63
prósent óánægð með forsetann. 63
prósent telja að Írakar séu á réttri
leið í lýðræðisátt.
Bush hélt ræðu í Philadelphiu
í fyrrakvöld um Íraksmálin en
ræðan var sú þriðja og næstsíðasta
í fundaherferð sem farin er í því
markmiði að vinna hernaðinum
stuðning. Í ræðunni undirstrik-
aði hann að enn væri langt í land
með að lýðræði kæmist á í Írak en
þegar þeim áfanga væri náð væri
heimurinn öruggari fyrir hryðju-
verkamönnum.
Hann viðurkenndi ennfremur
að sennilega hefðu 30.000 óbreytt-
ir borgarar fallið í Írak síðan inn-
rásin var gerð 2003 en hingað til
hafa bandarísk stjórnvöld verið
mjög treg til að áætla slíkt mann-
fall. - shg
GEORGE W. BUSH Forsetinn viðurkenndi í
fyrrakvöld að 30.000 borgarar hefðu fallið í
Írak. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Bandarísk Gallup-könnun á viðhorfum almennings til málefna Íraks:
Fleiri ánægðir með forsetann
FÉLAGSMÁL Greiðslur úr Fæðing-
arorlofssjóði Tryggingastofnunar
árið 2004 námu alls um 6.6 millj-
örðum króna og jukust um yfir einn
milljarð ár hvert frá árinu 2000.
Þetta kemur fram í Staðtölum
almannatrygginga sem nýkomn-
ar eru út. Kemur þar í ljós að árið
2000 fengu rúmlega fjögur þúsund
manns fæðingarorlofsgreiðslur.
Þar af voru karlmenn helmingi
færri en konur.
Fjórum árum síðar nutu yfir
tólf þúsund manns sömu greiðslu
og voru þar af 6600 konur móti
5600 karlmönnum.
Reyndust heildargreiðslur
Tryggingastofnunar vegna þessa
1.6 milljarður um aldamótin en er
nú 6.6 milljarðar króna. - aöe
RÚMLEGA FJÖGUR ÞÚSUND FÆÐINGAR
ÁRIÐ 2004 Fæðingaorlofsgreiðslur jukust
um fimm milljarða króna frá árinu 2000 til
ársins 2004.
Tryggingastofnun greiddi 6,6 milljarða í fæðingarorlof:
Greiðslurnar jukust
um ríflega milljarð
DANMÖRK Danskir atvinnurekend-
ur hafa áhyggjur af aukinni notk-
un inni á vinnustöðunum.
Þetta kemur fram í dagblaðinu
Industriens Dagblad þar sem bent
er á hversu margar fyrirspurn-
ir berist frá vinnuveitendum um
hvernig eigi að taka á starfsmönn-
um sem neyta efna í vinnutíman-
um. Er þar um að ræða allt frá
kókaíni og amfetamíni til örvandi
lyfja af ýmsu tagi. Telja sérfróðir
þetta afleiðingu álags sem leiðir
sífellt fleiri til þunglyndis sem
þeir telja auðveldara að eiga við
með hjálp slíkra efna. ■
NEYSLA Á VINNUSTÖÐUM Danir neyta í
síauknum mæli fíkniefna í vinnunni.
Vaxandi vandamál:
Danir dópaðir
í vinnunni