Fréttablaðið - 14.12.2005, Side 35
][
Ferðaáætlun
Útivistar 2006
kemur út í dag
Sólarlandaferðir verða sífellt vinsælli hjá Íslendingum um
jólin. Það skiptir máli þegar farið er til sólarlanda að gleyma ekki að
nota sólarvörn þar þó að það sé hávetur hérna heima.
Ólöf Björnsdóttir er íslensk
myndlistarkona sem hefur
verið búsett í London til fjölda
ár. Hún er mikill matgæðingur
og hér er listi yfir uppáhalds-
veitingastaði hennar í heims-
borginni sem Íslendingar
sækja mikið til.
MORO RESTAURANT Frábær
marokkóskur/spænskur veit-
ingastaður. Þarf helst að panta.
Ekki alveg í miðbænum, frekar
á mörkum City, en þess virði að
taka leigubíl þangað. Meðalverð
á aðalrétt er um 30 pund.
www.moro.co.uk/, á Exmouth
Market sími: 0044 (0) 207 833 8336
CORK AND BOTTLE Virkilega
góður vínbar með mat, sérstak-
lega áströlsk og nýsjálensk vín.
Hann er ódýr þótt sum af 1000
vínum sem boðið er upp á kosti
sitt, óformlegur og frábærlega
staðsettur. Er á Cranbourn street
sem liggur frá Charing Cross
Rd inn á Leicester Square. Þar
er hann á vinstri hönd, gengið
niður hringstiga niður í kjallara
(vinstra megin við brúnt skilti
sem á stendur „Sex shop“). Þarf
yfirleitt ekki að panta nema ef til
vill á föstudagskvöldi.
44-46 Cranbourn Street, Leicester
Square, sími: 0044(0)20 7734 7807
MOHSEN Góður persneskur
matur. Gott að taka leigubíl eða
tube a High Street Kensington.
Má hafa vín með sér (bring your
own). Þarf ekki að panta.
152 Warwick Road, sími: 0044 (0)
207 602 9888.
SMITH‘S Fyrir steikarunnendur
er enginn staður betri en Smith´s.
Þar er gengið af hæð á hæð og
steikurnar verða sífellt dýrari
og fínni eftir því sem ofar er
komið uns komið er á efstu hæð
með útsýni yfir St. Pauls og dýrð-
legum 23 daga svartfjallasteik.
Þarf að panta á efstu hæð en ekki
neðar í húsinu.
Við Smithfields market (kjöt-
markað borgarinnar), 67-
77 Charterhouse St., sími
0044(0)2072517997.
FRENCH HOUSE DINING
ROOM Franskur og skemmti-
legur, mjög lítill og notalegur.
Matseðillinn hljómar ekki alltaf
vel, nautatunga með beinmerg
til dæmis, en látið ekki blekkjast,
Virkilega gott. Þarf að panta.
49 Dean Street, Soho, LOND-
ON, W1D 5BG, W1D 5BG sími:
0044(0)207 437 2477.
THE RED FORT Einn af bestu
indversku veitingastöðum Lond-
on (og þar með heimsins!?).
77 Dean Street, Soho, London,
W1D 3SH sími: 020 7437 2115.
BELGO Fínn belgískur matur í
Covent Garden, borinn fram af
þjónum í munkakuflum. Þarf yfir-
leitt ekki að panta. Þeir eru með
hádegistilboð fyrir tæp 6 pund.
http: / /www.belgo-restaurants.
com/. 29B Sheldon Street.
ITSU Sushi á færibandi. Fínn fyrir
hádegismat og svona rétt fyrir bíó.
Sniðugt fyrir mjög litla hópa.
103 Wardour Street, Soho.
LA PORTE DES INDES London
Fransk indverskur matur. Namm.
Ævintýralegt umhverfi. Frábær
fyrir hópa. Endar alltaf með að
vera frekar dýr. Ágætis kokteil-
ar hækka reikninginn. Matseðill
kostar 38 pund.
http: / /www.blueelephant.com/
pi/london/set_menu.html
Góðir veitingastaðir í London
Það er meira hægt að gera í London en að versla.
Sífellt meiri straumur ferða-
manna fer í gegnum Keflavík-
urflugvöll samkvæmt nýjustu
tölum.
Samkvæmt tölum frá Keflavíkur-
flugvelli eru farþegar á þessu ári
orðnir mun fleiri en allt árið 2004. Í
nóvember á síðasta ári fóru 107 þús-
und farþegar um völlinn en í sama
mánuði á þessu ári voru farþegarn-
ir tæplega 116 þúsund. Aukningin
er því upp á átta prósent.
Það sem af er þessu ári hafa
rúmlega 1,7 milljónir farþega farið
um Keflavíkurflugvöll. Taldir eru
allir ferðamenn, bæði þeir sem
fara frá landi, millilenda eða hafa
viðdvöl. Aukning á straumi ferða-
manna nemur því 10,6 prósentum
milli ára. Fyrstu ellefu mánuði
ársins í fyrra fóru rúmlega 1,5
milljónir farþega um völlinn.
Miðað við fyrstu ellefu mánuði áranna 2004 og 2005 hefur ferðamannastraumur um
Keflavíkurflugvöll aukist um 10,6 prósent.
Fleiri fara um
Keflavíkurflugvöll
Hallormsstaðarskógur er
stærstur allra skóga á Íslandi.
Þar er hægt að ganga um
fjörutíu kílómetra eftir merkt-
um gönguleiðum og skoða
sum elstu tré landsins. Eins er
landslagið umhverfis skóginn
afar fjölbreytt og heillandi.
Stærsti skógur landsins er við
sunnanvert Lagarfljót. Hallorms-
staður, sem áður var prestssetur,
er tæplega þrjátíu kílómetra frá
Egilsstöðum, skammt frá þeim
stað sem Jökulsá í Fljótsdal fellur
í Fljótið.
Lög um verndun Hallorms-
staðarskógar voru sett árið 1899
og sex árum síðar var megnið af
skóginum girt af. Nú eru um 740
hektarar innan girðingar en heild-
arflatarmál friðlandsins er 18,54
ferkílómetrar. Árið 1940 var skóg-
urinn friðaður fyrir búfjárbeit.
Skógrækt var stofnuð í Hall-
ormsstaðarskógi árið 1903 og eru
þar nú framleiddar trjáplöntur og
gerðar tilraunir með erlendar teg-
undir. Þar eru framleiddar um það
bil tvö hundruð þúsund plöntur
árlega, sem svo eru gróðursettar
á skógræktarsvæðum landsins.
Trjásafn er við gróðrarstöðina,
þar sem flest elstu og stærstu trén
er að finna.
Um sjötíu prósent skógarins
eru náttúrulegur birkiskógur og
eru þau elstu þeirra um 160 ára
gömul og ná allt að tólf metra hæð.
Jafnframt er meira af náttúruleg-
um reyniviði og gulvíði þarna en
annars staðar á landinu.
Í Hallormsstaðarskógi eru um
fjörutíu kílómetrar af götuslóðum
og merktum gönguleiðum og er
öllum frjálst að ganga um skóginn.
Stærsti skógur
á Íslandi
Trén í Hallormsstaðarskógi eru afar fjöl-
breytt og falleg.