Fréttablaðið - 14.12.2005, Side 37
MIÐVIKUDAGUR 14. desember 2005 7
JÓLA
SPRENGJA
Í NÆS - GRAFARVOGI
FULL BÚÐ AF
NÝJUM VÖRUM
GÓÐAR STÆRÐIR...
ÓTRÚLEGT VERÐ!
ALLAR
VÖRUR FRÁ
2400
TIL 5900
• KÁPUR
• JAKKAR
• PILS
• BUXUR
• TOPPAR
• BOLIR Opið virka daga frá kl. 11-18
laugardaga frá kl. 11-16
Hverafold 1-3, sími 577 4949
i i f l. -
l f l. -
l - , í i
Nonni GULL
markvissar auglýsingar
Lesendur „Allts“ er fólk með áhuga á efni
hverrar opnu og eru auglýsingarnar eðlilegur
hluti lesefnisins og ein af ástæðum þess að
þeir staldra við.
Það er með öðrum orðum, vel skilgreindur og
áhugasamur hópur, sem skoðar t.d. þessa
auglýsingu.
Grunnhugmyndin á bak við „Allt“ er að flokka
auglýsingar og staðsetja í lesefni sem vekur
áhuga þeirra sem auglýsandinn vill ná til.
„Allt“ er löngu tímabær og áhugaverður valkostur
á íslenskum auglýsingamarkaði.
...um mat
á föstudögum í Fréttablaðinu.
Hafið samband við auglýsingadeild „Allts“
Síminn er 550-5000
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
L†
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
-
PR
E
28
02
3
0
4/
20
05
Alltaf á föstudögum
Stúfur heimsækir Þjóðminjasafnið
kl. 11.
Jólahrollur í hádeginu - Yrsa Sigurð-
ardóttir les úr bók sinni Þriðja táknið
í Þjóðmenningarhúsinu kl. 12:15.
Reyklaust hádegi á aðventunni á
Súfistanum í Hafnarfirði. Hjörleifur
Valsson og Brynhildur Guðjónsdóttir
leika af fingrum fram frá kl. 12.15.
Jól í hjarta - Aðventutónleikar
verða haldnir í Hallgrímskirkju undir
stjórn Margrétar J. Pálmadóttur kl.
20. Kórarnir sem fram koma eru:
Gospelsystur Reykjavíkur, Stúlknakór
Reykjavíkur, Vox Feminae og Vox
Junior.
á jóladöfinni }
14. desember
Skósmiðir hafa nóg að gera
fyrir jólin því allir vilja
vera í sínu fínasta pússi á
aðfangadag. Sumir þurfa að
láta laga gamla skó, aðrir
þurfa að breyta nýjum skóm og
enn aðrir vilja láta lappa upp
á spariskóna.
,,Það er alltaf meira að gera fyrir
jólin,“ segir Þráinn Jóhannsson
betur þekktur sem Þráinn skóari.
„Annars erum við orðin svo mörg
og við vinnum svo hratt að það er
löngu liðin tíð að við springum
viku fyrir jól,“ segir Þráinn.
Logi Arnar Sveinsson vinn-
ur á skóvinnustofu Hafþórs og
hann finnur vel fyrir jólavertíð-
inni. „Fólk vill fá spariskóna sína
vel burstaða og svo eykst salan
á mannbroddum þegar frostið
eykst,“ segir Logi. „Fólk kemur
líka inn í stressi rétt fyrir jól og
ætlast til þess að við vinnum eins
og ofurmenni og björgum öllu
rétt fyrir jól. Svo eru þessir skór
ekki sóttir fyrr en eftir áramót.“
Skósmiðir fá ekki einungis
gömul skópör inn á borð til sín
því margir þurfa að láta breyta
nýjum skóm sem einhverra hluta
vegna passa ekki eða gætu passað
betur. Jónína Sigurbjörnsdóttir á
skóvinnustofu Sigurbjörns segir
að ýmis verkefni tengd nýjum
skóm verði algengari rétt fyrir
jól. „Við setjum mikið af gúmmí-
botnum á spariskó með þunnum
leðurbotni því það eykur endingu
þeirra,“ segir Jónína. „Svo erum
við mikið í stígvélavíkkunum því
svo virðist sem íslenskar konur
séu kálfameiri en þær ítölsku.“
Flestar skóvinnustofur lengja
opnunartíma sinn um jólin eftir
því sem þurfa þykir. Skóvinnu-
stofa Hafþórs hefur opið 9-18,
Skóvinnustofa Sigurbjörns 8-18 og
Þráinn skóari opnar klukkan 8.30
eins og hann hefur gert síðastlið-
in 24 ár. „Ég hef lengi sagt að það
þurfi að breyta opnunartímanum
í miðbænum svo að hann verði
annar en í Kringlunni og Smára-
lind,“ segir Þráinn. „Það er fullt
af fólki sem vill versla snemma
á daginn og það er grátlegt að
horfa á útlendingana á Lauga-
veginum á sunnudagsmorgnum
sem vita ekkert hvað þeir eiga að
gera við sjálfa sig. Þeir geta ekki
einu sinni fengið kaffi því allt er
lokað.“
Skósmiðir önnum
kafnir fyrir jólin
Starfsmenn Skósmíðaverkstæðis Hafþórs finna fyrir jólaösinni og þurfa að vinna fram eftir
til jóla. FRETTABLAÐIÐ/HARI