Fréttablaðið - 14.12.2005, Page 40

Fréttablaðið - 14.12.2005, Page 40
Björgvin Guðmundsson skrifar „Samkeppnishæfni fyrirtækja getur skipt sköpum hvort heldur er innanlands eða utan. Með vax- andi alþjóðavæðingu og sam- keppni á heimsvísu kjósa alþjóð- leg stórfyrirtæki sér starfsvett- vang þar sem hagstæðust skil- yrði bjóðast, óháð staðsetningu. Okkur er mikið í mun að íslensk- ur sjávaútvegur haldi sínum sessi. Verði hér eftir sem hingað til í allra fremstu röð,“ sagði Ein- ar Kristinn Guðfinnsson sjávar- útvegsráðherra þegar hann kynnti nýja skýrslu um sam- keppnishæfni íslensks sjávar- útvegs í samanburði við þann norska. Samanburðurinn var gerður í líkani sem verðlagsstofa skipta- verðs vann í samstarfi við Há- skólann á Akureyri og Háskólann í Tromsö. Sagði ráðherra líkanið góðan mælikvarða á samkeppnis- hæfni sjávarútvegsins. „Íslensk fiskvinnslufyrirtæki eru feti framar en þau norsku. Forskot Íslendinga er einkum að þakka háu tæknistigi og góðu samstarfi við íslenska framleið- endur fiskvinnslubúnaðar. Afli berst að landi mun jafnar hér en þar. Ástæðan er líklega meira samspil veiða og vinnslu, en hér á landi eru eignatengsl þessara þátta ríkari en í Noregi,“ sagði Einar Kristinn. Þó vantaði mikið upp á hér á landi í að mennta fiskvinnslufólk og millistjórn- endur. Staða þeirra mála væri betri í Noregi. Eins og sjá má í meðfylgjandi töflu skilar fiskveiðistjórnun Ís- lendinga þeim töluvert hærri samkeppniseinkunn en Norð- mönnum. Sjávarútvegsráðherra sgaði þetta helgast fyrst og fremst af því að á Íslandi væri framsal aflaheimilda mun frjáls- ari en í Noregi. Þá væri meiri ánægja með fiskveiðikerfið hér en í Noregi. „Norðmenn eru svo aftur á móti mun sáttari við hafrann- sóknir sínar og veiðiráðgjöf og munar þar töluvert miklu. Ís- lendingar standa sig hins vegar miklu betur við eftirlit hvers konar. Reyndar vekur það síðast- nefnda nokkra athygli því út- gerðarmenn hafa á stundum kvartað undan óhóflegu eftirliti að þeirra mati. Þegar á reynir virðast þeir bara býsna ánægðir, í það minnsta umtalsvert sáttari en Norðmenn,“ sagði Einar K. Guðfinnsson. Vika Frá áramótum Actavis Group 1% 30% Bakkavör Group 5% 112% Flaga Group -2% -19% FL Group 4% 78% Grandi -1% 22% Íslandsbanki 2% 50% Jarðboranir 0% 19% Kaupþing Bank 2% 54% Kögun 0% 28% Landsbankinn 0% 102% Marel -2% 30% SÍF 0% -14% Straumur 1% 65% Össur 4% 54% *Miðað við gengi í Kauphöll á mánudag MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 2005 MARKAÐURINN2 F R É T T I R G E N G I S Þ R Ó U N Ívið betri en Norðmenn Rekstrarumhverfi sjávarútvegsfyrirtækja er mun verra á Ís- landi en í Noregi, aðallega vegna sterkrar krónu. Heilt á litið kemur þó íslenskur sjávarútvegur vel út í samanburðinum. „Við ætlum að bjóða viðskipta- vinum okkar símaþjónustu í gegnum netið,“ segir Hreinn Jak- obsson, forstjóri Skýrr. Verða símtölin flutt með svokölluðum IP-staðli og er ekki um hefð- bundna símaþjónustu að ræða í samkeppni við Símann og Og Vodafone, að sögn Hreins. Þetta er viðbót við internetþjónustu og gagnaflutninga sem viðskipta- vinum Skýrr býðst. Forstjóri Skýrr segir þessa tækni hafa lengi verið í umræð- unni en ekki rutt sér til rúms hér á landi ennþá. Fjarskipta- og tölvutækni sé að renna saman í eitt. Nú sé verið að prófa þetta kerfi, uppitíma og áreiðanleika. Áfram verði fylgst með tækni- þróun en gæðin eigi ekki að vera minni en í hefðbundna símakerf- inu. Kostnaður við þessi símtöl sé hins vegar mun minni. Þetta er sambærileg tækni og notendur Skype-forritsins þekkja. Hins vegar verður not- andinn bara með hefðbundin sím- tæki á borði sínu og getur hringt í hvaða númer sem er. – bg deCODE vill kaupa líftæknifyrir- tækið Urður, Verðandi, Skuld (UVS). Samningaviðræður um það hafa verið í gangi í þó nokkurn tíma. Erfiðlega hefur gengið að ná saman. Er meðal annars tekist á um hversu verð- mætt félagið er samkvæmt heim- ildum Markaðarins. Einn heim- ildarmaður segir að Urður, Verð- andi, Skuld hafi nánast verið komið í þrot með reksturinn. Urður, Verðandi, Skuld var stofnað árið 1998 og hefur byggt upp stórt safn lífsýna sem mynda gagnagrunn um krabbamein á Ís- landi. Hafa yfirmenn fyrirtækis- ins sagt gagnagrunninn einstak- an í heiminum. Í byrjun desember var öllu starfsfólki UVS sagt upp. Óvissa er um framhald rekstursins. Stærstu eigendurnir eru Actavis Group og Straumur – Burðarás fjárfestingabanki. deCODE hefur hingað til ekki einbeitt sér að þróun lyfja gegn krabbameini. – bg Magnús Kristinsson, útgerðar- maður úr Vestmannaeyjum og fjárfestir, er í viðræðum við eig- endur Toyota-umboðsins á Ís- landi um kaup á fyrirtækinu eins og komið hefur fram í Markaðn- um. Hann segir niðurstöðuna enn óljósa í þeim viðræðum en vonar að hún fáist fyrir vikulok. Þó geti það dregist lengur. Verðhug- myndir hafi verið settar á borðið en það eigi eftir að ganga frá ýmsum lausum endum. Í mörg horn sé að líta þegar svona fyrir- tæki sé keypt. P. Samúelsson er umboðs- og söluaðili Toyota á Íslandi. Félagið á talsvert af fasteignum bæði á höfuðborgarsvæðinu sem og úti á landi. Samkvæmt ársreikningi félagsins fyrir árið 2003 nam velta þess 11,6 milljörðum króna, rekstrarhagnaður fyrir skatta var 550 milljónir og eigið fé var bókfært á 1.240 milljónir. Telja verður að velta félagsins og hagnaður hafi aukist nokkuð frá árinu 2003. Félagið hefur ekki skilað inn ársreikningi fyrir árið 2004. Bókfærðir fastafjármunir samkvæmt uppgjöri ársins 2003 eru 105 milljónir en raunvirði þeirra nokkuð hærra. – bg Semja um kaupin á Toyota Toyota-umboðið er enn óselt. Viðræður halda áfram. Skýrr í símaþjónustu Símtöl í gegnum netið verða loksins að veruleika. Ísland Noregur Heildareinkunn 4,6 4,5 1. Stjórn fiskveiða 4,5 4,0 2. Rekstrarumhverfi 4,6 5,1 3. Innviðir rekstrar 4,8 5,2 4. Sjávarútvegsfyrirtæki 4,8 4,7 5. Fiskvinnsla 4,6 4,2 6. Markaðsstarf 4,3 4,0 deCODE vill kaupa UVS Gagnagrunnur um krabbamein Íslendinga til sölu. Útgáfan nálgast 150 milljarða Toyota vill enn njóta íslenskra skuldabréfavaxta. „Á síðasta ári sóttu skráð fyrir- tæki um 170 milljarða króna á markað eða um 16 prósent af markaðsvirði fyrirtækjanna í árslok. Hlutfallið var hvergi hærra í Evrópu og fjárhæðin í krónum var raunar hærri en í nokkurri annarri kauphöll á Norðurlöndum. Skráð félög hafa á þessu ári haldið áfram að virkja hlutabréfamarkaðinn til vaxtar og hafa það sem af er ári gefið út nýtt hlutafé að markaðsvirði yfir 120 milljarð- ar,“ segir Kristín Jóhannsdótt- ir, markaðs- og kynningarstjóri Kauphallar Íslands, í grein sem hún ritar í Markaðinn í dag. Kristín segir kauphöllina hafa leikið stórt hlutverk í vexti skráðra fyrirtækja. Það megi merkja best af því mikla fjármagni sem fyrirtækin hafi sótt á hlutabréfamarkaðinn. Skráning liðki líka fyrir annarri fjármögnun og skráð félög hafi nýverið gert samn- inga um mjög stórar lántökur á hagstæðum kjörum. – bg. Nánar bls. 14 Styrking krónunnar í kjölfar nýrra verðbólgutalna eykur enn hvata til erlendrar skuldabréfa- útgáfu í íslenskum krónum. Fjármálaarmur bílafyrirtæk- isins Toyota gaf út skuldabréf í íslenskum krónum fyrir fimm milljarða í gær. Erlend skulda- bréfaútgáfa í krónum stefnir nú hraðbyri í 150 milljarða króna. Toyota hafði áður gefið út bréf fyrir fimm milljarða króna og nemur því heildarútgáfan tíu m i l l j ö r ð u m króna. Bréf g æ r d a g s i n s eru til tveggja og hálfs árs, en algengasta lengdin á útgáf- unni er eitt til tvö ár. Lengstu bréfin í þess- ari útgáfu hafa verið til fimm ára. Nýsjálendingar hafa lengsta reynslu af slíkri útgáfu, en hún hefur staðið yfir þar í meira en tvo áratugi. Í nýrri grein í Pen- ingamálum Seðlabankans er far- ið í saumana á erlendri skulda- bréfaútgáfu. Þar er meðal ann- ars bent á að reynsla Nýsjálend- inga sé sú að þessi útgáfa hafi haft jákvæð áhrif á efnahagslíf- ið og geti verið til þess fallin að dýpka gjaldeyris- markaðinn. -hh S A M K E P P I S H Æ F N I S J Á V A R Ú T V E G S I N S S A M A N B U R Ð U R M I L L I Í S L A N D S O G N O R E G S NÓTIN DREGIN SAMAN „Norðmenn fá hærri heildareinkunn en Íslendingar fyrir hag- stjórn og almenn skilyrði fyrirtækja. Þar vegur gengið þungt og mikill styrkur íslensku krón- unnar,“ sagði sjávarútvegsráðherra.FORSTJÓRI DECODE Starfsmenn Kára Stefánssonar ræða nú við fulltrúa Urðar, Verðandi, Skuldar um möguleg kaup á fé- laginu. Sóttu 170 milljarða Skráð íslensk fyrirtæki duglegust að sækja peninga. 02_03_Markadur lesið 13.12.2005 15:39 Page 2

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.