Fréttablaðið - 14.12.2005, Page 53
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 2005 15
S K O Ð U N
Vísitala neysluverðs í desember
mælist 248,9 stig og hefur
hækkað um 0,36 prósent frá því
í nóvember. Vísitalan hefur því
hækkað um 4,1 prósent síðast-
liðna tólf mánuði. Verðbólgan
var umfram spár bankanna.
Greiningardeild Landsbankann
segir frávik frá sinni spá eink-
um skýrast af hækkun á dag-
vöru umfram væntingar.
„Þessi hækkun er nokkuð
meiri en við höfðum gert ráð
fyrir, en spá okkar fyrir desem-
ber var 0,1% hækkun og aðrar
opinberar spár voru um
óbreytta vísitölu. Þeir liðir sem
hækka mest nú eru póstur og
sími (2,95% vísitöluáhrif 0,09%)
föt og skór (2,13% vísitöluáhrif
0,11%), og húsnæði (0,73% vísi-
töluáhrif 0,20%).
Frávik spár okkar skýrist að
mestum hluta af því að matar-
og drykkjarvörur hækkuðu um
0,36% en þar reiknuðum við
með töluverðri lækkun (-0,5%).
Hækkun á eigin húsnæði mæld-
ist 0,9% (við reiknuðum með
1,0%). Ýmsir undirliðir þar
lækka töluvert en aðrir hækka
(einkum mjólk og drykkjarvör-
ur). Einnig var hækkun á fötum
og skóm sem og ýmsum þjón-
ustuliðum nokkuð yfir því sem
við höfðum gert ráð fyrir.“
Greiningardeildin segir ljóst
að nokkuð vanti upp á að hag-
stætt gengi skili sér að fullu til
neytenda. „Frá því í janúar
hefur verð á innfluttum vörum
hækkað að jafnaði um 0,4% á
meðan viðskiptavegið gengi er-
lendra gjaldmiðla hefur lækkað
(krónan hækkað) um 5,5%.“
Þá segir greiningardeildin að
hækkun vísitölunnar hafi haft
greinileg áhrif á markaði.
Þannig hafi krónan styrkst um
0,6 prósent við opnun markaða
og styrkingin haldist út daginn
„Viðskipti með skuldabréf
voru jafnframt töluverð eða 8,1
ma.kr., einkum með íbúðabréf eða
5,9 ma.kr. og lækkaði ávöxtunar-
krafa þeirra um 1 til 5 punkta,
mest á HFF24. Ávöxtunarkrafa
Ríkisbréfa hækkaði um allt að 17
punkta, mest á RB07.“
Verðbólgan umfram væntingarnar
Skiptimarkaður
bankabréfa
Ég er enn að pæla í bréfum
Straums í Íslandsbanka. Sumir
halda því fram að Björgólfur
Thor vilji ekki selja Jóni Ásgeiri
og FL Group mönnum bréfin.
Eignarhluturinn er stór og ekki
margir kaupendur að svona stór-
um hlut í Íslandsbanka og það er
leiðinlegt að selja eitthvað ef
ekki eru fleiri en einn til að
kaupa. Þá lendir maður í svo lé-
legri samningsaðstöðu.
Karl Werners hefur verið að
reyna að sannfæra Björgólf Thor
um að hann geti keypt með Hann-
esi og Jóni Ásgeiri, en ekki tekist
að sannfæra hann enn. Maður er
búinn að heyra af því lengi að
Straumsmenn hafi verið að bjóða
hlutinn úti um allan bæ. Ég held
reyndar að einn kaupandi enn
gæti verið í pípunum. Það er
Ólafur Ólafsson og hans menn.
Það myndi væntanlega ganga
út á það að Ólafur léti bréfin sín í
KB banka í skiptum fyrir Ís-
landsbankabréfin. Ólafur væri
stærri fiskur í minni tjörn í Ís-
landsbanka og Straumur fengi
seljanlegri hlut í KB banka. Þar
er veðjað á að fyrr eða síðar tak-
ist að laða að erlenda fjárfesta og
þá gæti Straumur losað um stöð-
una í bankanum.
Ólafur Ólafsson hefur reyndar
ekki verið efstur á vinsældalista
Björgólfsfeðga, en bisness er bis-
ness og Þórður Már er nýbúinn
að leysa erfitt mál með Ólafi.
Þeir hafa alltaf getað unnið sam-
an og hvers vegna ekki nú? Alla
vega væri ekkert leiðinlegt fyrir
Straum að ná að búa til smá
keppni um eignarhlutinn í Ís-
landsbanka.
Spákaupmaðurinn á horninu
S P Á K A U P M A Ð U R I N N
Þ J Ó Ð A R B Ú S K A P U R I N N
„Frávik spár okkar skýrist að mestum hluta af því að matar- og drykkjarvörur
hækkuðu um 0,36% en þar reiknuðum við með töluverðri lækkun (-0,5%).
Hækkun á eigin húsnæði mældist 0,9% (við reiknuðum með 1,0%). Ýmsir undir-
liðir þar lækka töluvert en aðrir hækka (einkum mjólk og drykkjarvörur). Einnig
var hækkun á fötum og skóm sem og ýmsum þjónustuliðum nokkuð yfir því sem
við höfðum gert ráð fyrir.“
14_15_Markadur lesið 13.12.2005 15:16 Page 3