Fréttablaðið - 14.12.2005, Side 70
14. desember 2005 MIÐVIKUDAGUR34
timamot@frettabladid.is
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Þegar andlát ber að
Síðastliðin 15 ár höfum við feðgar
aðstoðað við undirbúning útfara.
Alhliða útfararþjónusta
Símar: 567 9110,
893 8638 og 897 3020
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
„Austanpóstur kom í gær-
kveldi. Enginn giftur, dáinn
eða jarðsunginn í bænum.
Skipaferðir engar.“ Á þessa
leið var ein af forsíðufrétt-
um fyrsta tölublaðs Vísis
sem kom út miðvikudag-
inn 14. desember 1910.
Greindi hún frá ástandinu í
Reykjavík deginum áður og
má merkja af fréttinni að
þriðjudagurinn 13. desem-
ber árið 1910 hafi verið tíð-
indalaus með öllu.
Vísir hét ekki bara Vísir
heldur Vísir til dagblaðs í
Reykjavík. Undir því nafni
kom blaðið út fyrstu mánuð-
ina en var svo breytt í Vísi.
Blaðið varð fljótlega að
dagblaði sem kom út fimm
daga vikunnar en um það
leyti voru aðeins gefin út
vikublöð í Reykjavík. Eldri
tilraunir til dagblaðaútgáfu
höfðu mistekist og taldist
Einar Gunnarsson, eig-
andi, útgefandi og ritstjóri
Vísis, djarfur að stefna að
svo tíðri útgáfu blaðsins. Í
fyrstu voru Einar og eigin-
kona hans, Margrét Hjart-
ardóttir Líndal, einu starfs-
menn Vísis en síðar réðust
fleiri til starfa.
Meðal þess sem gerði Vísi
að vinsælu blaði í Reykjavík
voru smáauglýsingar sem
strax þá voru með svipuðu
sniði og sjá má í blöðum í
dag. „Atvinna“, „fæði og
húsnæði“ og „tapað-fundið“
voru meðal smáauglýsinga-
flokka.
Þegar Vísir hafði komið
út í þrjú ár fregnaðist af
stofnun nýs dagblaðs í
borginni. Vísismenn höfðu
spurnir af því að til stæði að
nefna nýja blaðið Dagblaðið
og drifu því í að gefa út lítið
blað sem þeir kölluðu Dag-
blaðið. Stálu þeir því nafni
nýja blaðsins sem í kjölfar-
ið var skírt Morgunblaðið.
Vísir var lengi fram-
an af óháð dagblað en
síðar varð það hallt undir
stjórnmálaskoðanir og um
nokkurt skeið átti Sjálf-
stæðisflokkurinn hlut í
Vísi. Um miðjan sjöunda
áratuginn keypti hópur
kaupsýslumanna blaðið
en þeir voru flestir tengd-
ir Sjálfstæðisflokknum.
Áhrifamenn innan flokks-
ins beittu svo ítökum sínum
til að hafa áhrif á skrif og
stefnu blaðsins og einnig
um hver ritstýrði því. Varð
það á endanum til þess að
Dagblaðið var stofnað 1975.
Nokkrum árum síðar voru
blöðin tvö sameinuð undir
nafninu Dagblaðið og Vísir
sem síðar varð að skamm-
stöfuninni DV.
Meðal ritstjóra Vísis á
síðari árum voru Gunnar
G. Schram, Jónas Kristj-
ánsson, Þorsteinn Páls-
son, Ólafur Ragnarsson og
Ellert B. Schram.
Helstu heimildir: Nýj-
ustu fréttir eftir Guðjón
Friðriksson.
DAGBLAÐIÐ VÍSIR: NÍUTÍU OG FIMM ÁR FRÁ UPPHAFI ÚTGÁFU
Enginn dáinn í bænum
FYRSTA TÖLUBLAÐ VÍSIS
JÓNAS KRISTJÁNSSON
GUNNAR G. SCHRAM
ELLERT B. SCHRAM
ÓLAFUR RAGNARSSON
ÞORSTEINN PÁLSSON
JARÐARFARIR
11.00 (Stefán) Örn Ólafsson,
Lönguhlíð 3, Reykjavík,
verður kvaddur með athöfn
frá Fossvogskirkju.
13.00 Benedikt Kjartansson
(Marjóns) málarameist-
ari, Hrafnistu, Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá
Hafnarfjarðarkirkju.
13.00 Magnús Valur Þorsteins-
son, fyrrverandi sjómaður,
Gaukshólum 2, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá
Grafarvoskirkju.
15.00 Lára Ósk Arnórsdóttir,
Eiríksgötu 6, verður jarð-
sungin frá Dómkirkjunni.
17.00 Minningarathöfn um Helga
Jósefsson Vápna, verður í
Akureyrarkirkju. Útförin fer
fram frá Laugarneskirkju
fimmtudaginn 15. desem-
ber klukkan 15.00.
Elsa Ágústsdóttir, Digranesheiði
45, Kópavogi, lést á Landspítalan-
um við Hringbraut miðvikudaginn
30. nóvember. Útför hennar hefur
farið fram í kyrrþey.
Sólveig Ágústa Runólfsdóttir,
Laufbrekku 17, Kópavogi, lést á
Sjúkrahúsinu á Selfossi fimmtu-
daginn 8. desember.
Þórdís Þorgrímsdóttir lést á
Hrafnistu í Reykjavík fimmtudag-
inn 8. desember.
Stefán Reynir Kristinsson, fram-
kvæmdastjóri Spalar, Aflagranda
17, Reykjavík, lést á Landspítalan-
um laugardaginn 10. desember.
Guðný Maren Matthíasdóttir lést
á hjúkrunarheimilinu Eir mánu-
daginn 12. desember.
AFMÆLI
Hannes Pétursson rithöfundur
er 74 ára.
Geirharður Þorsteinsson arkitekt
er 71 árs.
Ástráður Hreiðarsson læknir er
63 ára.
Hjálmtýr Heiðdal kvikmynda-
gerðarmaður er sextugur.
Vilhelm G. Kristinsson útvarps-
maður er 58 ára.
Guðrún Pétursdóttir líffræðingur
er 55 ára.
Guðmundur Ólafsson leikari og
rithöfundur er 54 ára.
Ástvaldur Traustason tónlistar-
maður er 39 ára.
Hrefna Hallgrímsdóttir leikkona
er 34 ára.
Kristjana Skúladóttir leikkona
er þrítug.
Gísli Galdur Þorgeirsson plötu-
snúður er 23 ára.
PATTY DUKE (1946-) FÆDDIST
ÞENNAN DAG
Það er erfiðast að fyrirgefa
sjálfum sér, þannig að það
er líklega best að byrja á að
fyrirgefa öðrum.
Patty Duke er bandarísk leikkona.
MERKISATBURÐIR
1819 Alabama verður 22 ríki
Bandaríkjanna.
1902 Fyrsti símakapallinn lagður
yfir Kyrrahafið.
1911 Roald Amundsen og hans
menn komast fyrstir manna
á Suðurpólinn.
1939 Sovétríkin rekin úr Þjóðar-
bandalaginu.
1979 Pönkbandið The Clash
gefur út plötuna London
Calling.
1981 Ísraelsríki slær eign sinni á
Gólan-hæðirnar.
2003 Handtaka Saddams Huss-
ein tilkynnt.
Þennan dag árið 1959 var útgáfufyrirtækið Motown
Records stofnað í Detroit í Bandaríkjunum. Það var
Berry Gordy Jr., lagahöfundur úr bílaborginni, sem
stofnaði fyrirtækið. Það varð fljótt virtasta útgáfu-
fyrirtæki á sviði sálartónlistar í
Bandaríkjunum, og á sjöunda og
áttunda áratug seinustu aldar var
fyrirtækið orðið stærsti útgefandi
sálartónlistar í Bandaríkjunum.
Þeir sem hrærðust í tónlist á
þessum tíma töluðu um „Motown-
hljóminn“ og áttu þá við sérstök
stílbrigði tónlistarinnar sem ein-
kenndi tónlistarmenn sem Motown
hafði á sínum snærum. Tambúrín-
ur, trommur og bassi voru áberandi
í lögum útgefnum af Motown og
söngstíllinn átti upptök sín í banda-
rískri gospeltónlist. Á tíu ára tímabili, frá 1961 til 1971,
höfðu tónlistarmenn Motown 110 sinnum komist á
topp tíu lista yfir vinsælustu og söluhæstu lögin. Tón-
listarmenn á borð við Stevie Wonder, Marvin Gaye,
Diana Ross, Jackson Five voru á
samningi við fyrirtækið.
Í lok sjöunda áratugarins byrj-
aði veldi Motown-útgáfurisans að
hnigna. Þar spilaði helst inn í að
lagahöfundurinn og framleiðand-
inn Holland Dozier Holland, sem
hafði framleitt marga smelli fyrir
fyrirtækið ákvað að segja skilið
við það vegna deilna um greiðslur
vegna höfundarréttar. Einnig náðu
listamenn útgáfunnar sjaldnar en
áður inn á topplistana yfir vinsæl-
ustu lögin.
ÞETTA GERÐIST > 14. DESEMBER 1959
Motown Records stofnað í Detroit
ANDLÁT
Stjórnarmyndun Gunnars
Thoroddsen árið 1980 og
klofningur Sjálfstæðis-
flokksins í kjölfarið verða
til umræðu á opnum fundi
sem Landssamband sjálf-
stæðiskvenna og vefritið
Tíkin standa að í dag. Verð-
ur hann haldinn í hádeginu á
Kaffi Sólon Bankastræti.
Stjórnarmyndun Gunn-
ars vakti mikla athygli á
sínum tíma og hefur margt
verið sagt og ritað um hana
í gegnum árin.
Á fundinum mun Guðni
Th. Jóhannesson sagnfræð-
ingur halda framsögu um
þetta vindasama skeið í
stjórnmálasögu landsins
en Guðni gerir því einmitt
skil í bókinni Völundarhús
valdsins sem er nýkomin út
og vakið hefur athygli.
Pallborðsumræður verða
að framsögu lokinni og
í þeim taka þátt Björn
Bjarnason dómsmálaráð-
herra sem var blaðamaður
á Morgunblaðinu á þessum
tíma og Þorsteinn Pálsson,
fyrrverandi formaður Sjálf-
stæðisflokksins, en hann
var framkvæmdastjóri
Vinnuveitendasambands
Íslands árið 1980.
Ásta Möller, alþingismað-
ur og formaður Landssam-
bands sjálfstæðiskvenna,
verður fundarstjóri.
GUNNAR THORODDSEN Stjórn-
armyndun hans 1980 verður til
umfjöllunar á hádegisfundi á Sólon
í dag.
Býsnaveturinn mikli −
25 árum síðar
Útför mannsins míns, föður, tengdaföður
og afa,
Stefáns Reynis Kristinssonar
framkvæmdastjóra Spalar, Aflagranda 17,
Reykjavík,
sem lést á Landspítalanum 10. desember sl. verður gerð
frá Dómkirkjunni föstudaginn 16. desember kl. 13:00.
Guðríður Þorsteinsdóttir
Ingibjörg Stefánsdóttir Gísli Hrafn Atlason
Nína Guðríður Sigurðardóttir Þorbjörg Anna Gísladóttir
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
Sigurður Kristjánsson
frá Súðavík, áður til heimilis að
Grettisgötu 73, Reykjavík,
sem lést 5. þessa mánaðar verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju föstudaginn 16. desember kl. 15. Blóm
og kransar afþökkuð, en þeim sem vildu minnast hans
er bent á minningarsjóð um forfeður Sigurðar, Þórð
Magnússon og Hjalta Sveinsson, til gróðursetningar við
Raggalund í Súðavík, nr. 1128-05-300229 í Sparisjóði
Súðavíkur.
Valur Sigurðsson Stefanía Pálsdóttir
Jón Sigurðsson Hlíf S. Arndal
Rúnar Sigurðsson Ingibjörg Kjartansdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.