Fréttablaðið - 14.12.2005, Qupperneq 80
...yndislegt að gera sér glaðan dag í
hádeginu í desember. Veitingastaðurinn
Vox býður upp á dýrðlegt jólahlaðborð
þar sem forréttirnir eru sérlega girnilegir,
allt frá gröfnu lambi til síldarrétta. Svo er
ekki slæmt að fá sér væna desertrétti og
kaffi áður en haldið er í vinnuna aftur.
Það verður bara að gæta þess að ganga
hægt um gleðinnar dyr svo dagurinn fari
ekki til ónýtis vegna ofáts.
...gaman að búa til hjartalaga pönnu-
kökur handa ástvinum sínum, það er
heldur ekki verra að fá þær í morgunmat.
Hjartalaga formin er hægt að fá í verslun-
inni Kokku á Laugavegi.
...nauðsynlegt að fara í nudd í öllu
jólastressinu. Staðir eins og Mecca Spa,
Nordica Spa og Laugar bjóða allir upp á
fyrsta flokks nudd.
...gott að
fá sér nokkra
blómadropa á
hverjum degi.
Nokkrir dropar
eru settir í glas
og blandað með
vatni. Hægt er
að fá dropa við
nánast hvernig
líðan sem er.
Hver segir nei við sjálfsöryggi í fljótandi
formi?
...frábært að gera jógaæfingar heima í
stofu. Þetta er bara spurning um að vera
með réttu dýnuna og að sjálfsögðu lipr-
an fatnað.
FÓLKINU FINNST...
Stella Design er nýtt hönnunar-
fyrirtæki sem rekið er af þeim
Ingibjörgu Hönnu Bjarnadóttur
og Dagnýju Kristjánsdóttur en
þær hafa nú þegar vakið mikla
athygli með hönnun sinni. Um er
að ræða glös sem Epal hefur tekið
til sölu en glösin prýða skemmti-
legar myndir með fjölskylduþema.
„Við sérhæfum okkur í að hanna
grafík á gler og postulín og þessi
glös eru fyrsta línan okkar,“ segir
Ingibjörg Hanna. „Hugmyndin
að glösunum kom upp þegar við
vorum að ræða um hvernig hlut-
irnir voru þegar við vorum litl-
ar. Þá var ekki neitt sem truflaði
borðhaldið, fjölskyldan settist við
matarborðið klukkan sjö og allir
snæddu saman.“
„Það var ekkert sjónvarp í eld-
húsinu og fólk var ekki í sínu horni
að borða kvöldmatinn eins og vill
gerast nú á tímum,“ segir hún og
bætir því við að þær hafi langað að
fá fólk til að setjast niður og borða
saman. „Ég veit ekki hvort glösin
hafi þau áhrif en við gerðum glas
fyrir hvern og einn. Eitt á mann,
fyrir mömmu, pabba, krakkana,
ömmu og afa.“
Umbúðirnar utan um glös-
in hafa ekki síður vakið athygli
en þær eru í formi gamaldags
torfbæja. „Við pældum mikið í
umbúðunum og vildum hafa þetta
heilsteypt og nýta þetta íslenska
þema. Þegar nokkrum glösum eru
raðað saman mynda þau stóran
torfbæ, við reynum að hafa svolít-
inn leik í þessu öllu saman.“
Glösin hafa nú þegar fengið
góðar viðtökur og segir Ingibjörg
það hafa komið sér á óvart hve
glösin höfða til margra. „Við héld-
um að börnin yrðu aðallega spennt
fyrir þessu en það er fólk á öllum
aldri sem fellur fyrir glösunum
og jafnvel fullorðnir karlmenn,“
segir hún og hlær.
Ingibjörg og Dagný eru nú í
samningaviðræðum um að selja
glösin í Þýskalandi og segir Ingi-
björg að það muni allt skýrast betur
eftir áramót. „Við stefnum svo á að
selja glösin í fleiri löndum í Evr-
ópu og munum hanna fleiri línur.“
hilda@frettabladid.is
Hver á sitt
eigið glas
DAGNÝ KRISTJÁNSDÓTTIR OG INGIBJÖRG HANNA BJARNADÓTTIR Þær eiga saman hönnunarfyrirtækið Stella Design og hafa vakið mikla
athygli með glösum sem nú eru til sölu í Epal.
14. desember 2005 MIÐVIKUDAGUR44
Þegar dagurinn er sem stystur fer hinn vinnandi maður að koma sér í hið hefðbundna jól-
skap sem er svo skemmtilegt á þess-
um árstíma. Það má þó ekki gleyma
blessuðum námsmönnunum sem
strita bróðurpartinn úr desember-
mánuði til þess að ná prófunum sem
lögð eru fyrir þá rétt fyrir jólahátíð-
ina. Við spurðum nokkra nemendur
við Háskóla Íslands hvernig þau
haga hlutunum yfir mesta annatím-
ann. Spurningarnar voru þessar:
Hvort borðar þú hollmeti eða óholl-
ustu yfir prófatímann?
Eyðir þú tíma í útlitið á morgnana
þegar þú þarft að mæta snemma á
bókhlöðuna?
Hvernig haga námsmenn-
irnir sér í prófunum?
JÓHANNES RUNÓLFSSON
SVANHILDUR ÁSTA KRISTJÁNSDÓTTIR
SIGRÚN SVAVA VALDIMARSDÓTTIR
JÓHANN JÖKULL ÁSMUNDSSON
LILJA GUNNLAUGSSDÓTTIR
KONRÁÐ G. GUÐLAUGSSON
Konráð G. Guðlaugsson nemi: ,,Ég
borða ekkert sérstaklega hollt,
held ég. Það mætti alveg vera
hollari fæða. Í samband við útlitið
verð ég að segja að maður er bara
nokkuð rólegur yfir útlitinu yfir
þennan tíma. Maður leggur ekki
mikla áherslu á það.“
Lilja Gunnlaugsdóttir nemi: ,,Ég
borða yfirleitt bara eitthvað rusl-
fæði yfir prófatörnina en ég lít nú
alltaf í spegilinn áður en ég fer
út. Ég sleppi því nú ekki að fara í
sturtu þrátt fyrir að ég sé að læra
undir próf.“
Jóhann Jökull Ásmundsson keram-
ik-batik-listamaður og nemi: ,,Ég
reyni að borða bara hollan mat,
bara þetta helsta, Coco-puffs og
egg. Maður safnar bólum og baug-
um þessa dagana við lesturinn. Ég
hringi nú bara í stílistann minn á
morgnana og fer í gegnum þessa
venjulegu rútínu. Síðan er ég mætt-
ur á hlöðuna fljótlega eftir það.“
Sigrún Svava Valdimarsdóttir nemi:
,,Það er svona sitt lítið af hverju. Má
eiginlega segja að það sé hollt og
óhollt í bland. Ég eyði ekkert sér-
staklega miklum tíma í útlitið þegar
ég þarf að fara að læra.“
Svanhildur Ásta Kristjánsdóttir
nemi: ,,Ég reyni nú að borða bara
það sama og venjulega þegar ég er
í prófum. Vanalega borða ég frek-
ar hollan mat. Ég geri lítið fyrir
útlitið áður en ég mæti á hlöðuna
á morgnana.“
PÉTUR INGI PÉTURSSON
Pétur Ingi Pétursson nemi: ,,Ég
reyni að borða næringarríkan mat
yfir prófatímann. Ég eyði samt
ekki mjög miklum tíma í að hafa
mig til á morgnana. Maður reynir
þó að vera snyrtilegur.“
Jóhannes Runólfsson nemi:
,,Maður lætur bæði í sig hollt og
óhollt, það er þó meira um óholl-
ustuna en hitt. Ég eyði nær engum
tíma í útlitið þegar ég vakna á
morgnana. Það er bara farið beint
út í hlöðu.“