Réttur - 01.01.1960, Qupperneq 10
10
R É T T U R
við hér á landi, að roskinn stjórnmálaflokkur lætur málgagn sitr
tala barnamál Litlu gulu hænunnar til að geta tjáð sig fyrir
verðandi kjósendum. Ég vona að Sósíalistaflokkurinn sé svo
gamall syndari, að hann lúti ekki að svo lágu, til auðunnins fylgis,
en hitt er mér ljóst, að flokkurinn verður að finna þann tón, það
pólitíska tungutak, sem hin unga kynslóð skilur og ann, að hann
finni henni klæði við hennar hæfi án þess að færa hana í skrið-
buxur barnagarðsins. Þessi nýja kynslóð íslenzkra launastétta
verður nú hvort sem henni er það ljúft eða leitt að verja þau
lífskjör, sem feður hennar skópu henni, þrátt fyrir allt sem
óhönduglega fór. Og hennar bíður það hlutskipti að hefja næstu
sóknarlotu í lífsbaráttu þjóðarinnar. Þessi kynslóð á eftir að
lifa þá stund á þeim áratug sem nú er að hefjast, að jafnaldri
hennar á þeim hluta jarðarinnar er lýtur undir krúnu sósíalism-
ans taki forustuna í framleiðslu lífsgæðanna. Þá verða mikil
aldahvörf hér í heimi, og þessi kynslóð verður öfunduð af öldum
og óbornum fyrir að hafa mátt lifa þessa stund. Þessi þáttaskil í
heimsframleiðslunni neyða hina vinnandi sétt í öðrum löndum til
þess að setja sósíalismann á dagskrá, gera hann að raunhæfu
verkefni í önn dagsins. Því hærra sem dögunin rís í heimi sósíal-
ismans því meir mun hin þjóðfélagslega nauðsyn sósíalismans,
sem liggur greipt í lífsháttum hins borgaralega þjóðfélags, líkjast
æ meir náttúruafli, sem ekki verður stöðvað, því nú liggja öll
vötn til Dýrafjarðar. Þessi lögmálsbundna þróun til sósíalismans
mun taka á sig sundurleit gerfi, verður steypt í margvxsleg mót,
mörkuð þjóðerni, sögu og landskostum, það hefur þróun sósíal-
ismans á síðustu árum áþreifanlega saman. Það verður því hlut-
verk sósíalistaflokksins íslenzka að móta og mennta þá vinnu-
kynslóð, sem nú er að taka við búsforráðum í landinu, svo að hún
verði hæfari til að gegna sögulegu skylduverki sínu.
En þessi kynslóð mun ekki aðeins með vissu lifa þau umskipti
er leiða af breyttum hlutföllum í framleiðslumætti heimsins. Það
er einnig von til þess, að hún fyrst allra kynslóða á jörðinni muni
lifa skipulagðan heimsfrið. Enn er þetta aðeins von, en ekki vissa.
En ef sú von rætist mundi það verða upphaf nýrrar siðmenningar
á hnettinum. Heimur án árásar- og gereyðingarvopna, heimur