Réttur - 01.01.1960, Blaðsíða 104
104
EÍTTUR
England Bandaríkin V.-Þýzkal.
Vinnandi fólk alls: 22,6 60 22
Þar af verkamenn og f. starfsm.: 20,9 49,3 15,6
í prósentum 93 82 71
Áhrif borgarastéttarinnar á skipulag framleiðslunnar hafa þó
minnkað mun meir en hin hlutfallslega fækkun hennar gefur til
kynna. Enda þótt einokunarhringarnir væru þegar orðnir drottn-
andi í byrjun aldarinnar, og vaxandi fjöldi stóreignamanna, sem
eingöngu lifði á vaxtatekjum, væri fyrir hendi, var þó allstór
hluti borgarastéttarinnar athafnasamur í viðskipta- og atvinnu-
lífinu sem atvinnurekendur, skipuleggjendur og forstjórar eigin
fyrirtækja, sem verkfræðingar og uppfinningamenn. Nú eru svo
að segja öll þessi störf unnin af föstum starfsmönnum. Vísindaleg
vinna og rannsóknir fara nú nær eingöngu fram á tilraunastofum
einokunarhringanna. Allur árangur af vinnu vísindamanna og
uppfinningamanna er eign einokunarhringanna en ekki uppfinn-
ingamannanna. Geysimikill og vaxandi hluti borgarastéttarinnar
verður afætulýður, þ. e. lifir eingöngu af vaxtatekjum. Árið 1958
skiptust tekjur þessa hóps í Bandaríkjunum þannig (í milljörðum
dollara): arðsútborgun 12,3 (Dividende), persónulegar tekjur af
rentum 19,4 (Zinsen), alls gerir það 31,7 milljarð dollara. 4rð-
ránstekjur bandarískra auðjöfra eru hcerri en allar þjóðartekjur
Indlands, sem telur um 400 milljónir manna.
Fámenn klíka auðjöfra (Finanzoligarchie) nær stöðugt meiri tök-
um á efnahagslífinu. Með ýmiss konar bragðvísi, forgangshluta-
bréfum, dótturfyrirtækjum, Holding-félögum og öðrum ráðum
sviptir einokunarauðvaldið hina venjulegu hluthafa réttindum
sínam og gerir þá að óvirkum móttakendum arðsútborgana. Klíka
auðjöfranna eykur stöðugt völd sín á sviði efnahagslífs og stjórn-
mála auðvaldslandanna, enda þótt hinu borgaralega lýðræði takist
að meira eða minna leyti að fela þessa stðreynd fyrir verkalýðnum.
Auðvaldsþjóðfélag nútímans í hinum háþróuðu löndum saman-
stendur þannig af fámennum hópi auðjöfra og öðrum arðræningj-
um (borgurum, landeigendum og stórbændum) og launafólki
(verkalýður og starfsfólk), sem eru yfirgnæfandi meirihluti þjóð-