Réttur - 01.01.1960, Blaðsíða 75
R É T T U R
75
í byggingariðnaðinum er samdrátturinn þó tvímælalaust rtór-
felldastur og þó alveg sérstaklega úti um landsbyggðina, þar lem
hann mun allvíða sem næst leggjast niður þegar lokið er þeim
íbúðabyggingum, sem nú eru í smíðum. Hér er sama sagan að
endurtaka sig og gerðist eftir 1950. Arið 1951 fyrsta árið eftir
gengisfellinguna hrapaði tala fullgerðra íbúða í Rvík einni úr 410
niður í 282 og öllu landinu úr 845 í 586. Sá er þó meginmunur
á að kaupmáttur rýrnaði margfalt minna eftir 1950 en nú, þar
sem vísitölubætur voru greiddar móti hækkuðu verðlagi, en það
er einmitt geta launamanna, sem mestu ræður um framkvæmdir
í íbúðabyggingum. Vextir voru þá einnig stórfelt lægri. Af þessum
sökum rétti byggingaiðnaðurinn fljótt nokkuð úr kútnum eftir
1950 og fór smám saman vaxandi eftir fyrsta árið. Engar líkur
eru á að svo fari nú að óbreyttum launakjörum og vöxtum, heldur
bendir allt til þess að ástandið fari síversnandi svo lengi, tem
„hinu nýja efnahagskerfi'' verður ekki kollvarpað.
Hversu fáránlegar hinar nýju lánareglur bankanna eru má þó
bezt marka af því að væri þeim haldið til streitu t. d. á mjög
góðri vertíð hlyti það að leiða til algerrar rekstrarstöðvunar.
Hver er sú álagabyrði, sem fylgir vaxtaokrinu, sem ekki á neina
hliðstæðu í veröldinni? Ekki er unnt að svara því með nákvæmni.
Utlán banka og sparisjóða munu nú nema um 3600 millj. kr.
Ætla má að útlán bygginga- og annarra fjárfestingarsjóða og
önnur lán séu ekki undir helmingi þeirrar upphæðar og þá trúlega
hærri. Við bætist svo óhjákvæmileg útlánaaukning vegna breytts
verðlags. Vaxtahækkunin getur því aldrei komið á lægri upphæð
en 6,5 milljarða kr. Reiknað með 3,5% hækkun verða það 194
millj. kr. Oll sú upphæð er hreinar álögur til fjármagnsins og lend-
ir eftir beinum og óbeinum leiðum öll á hlut launa af þjóðartekj-
unum. Ef reiknað er með heildarlaunatekjum 4200 millj. r>em
ekki mun fjarri lagi, rýrna þær því um 4,6% að meðaltali af
vaxtalækkuninni einni.
■ BYLTING I SKATTAMÁLUM
Með lögum um söluskatt og breytingum á lögum um tekju-