Réttur - 01.01.1960, Blaðsíða 16
16
R É T T U R
viðleitni hennar til að leggja ísland undir sig til frambúðar, hern-
aðarlega og efnahagslega.
Þótt flokknum tækist að sameina þjóðina um að neita Banda-
ríkjunum um herstöðvar til 99 ára 1945, hefur sókn erlendrar
heimsvaldastefnu og innlendra bandamanna hennar á árunum
1946 til 1951 valdið því að síðan hefur þjóðfrelsisbaráttan að
mestu verið varnarbarátta og beinzt gegn því: 1) að Bandaríkja-
her færði enn út kvíarnar, 2) að þjóðin yrði efnahagslega algerlega
háð bandaríska hervaldinu, 3) og gegn þeirri hættu að erlent auð-
vald kæmi upp stóriðju á Islandi.
Flokkurinn hefur stjórnað þessari frelsisbaráttu þjóðarinnar
gegn bandaríska imperíalismanum af fullri ábyrgðartilfinningu
og gert sér fullkomlega ljóst að um líf og framtíð Islendinga var
að tefla, yfirráð þjóðarinnar yfir landi sínu um ófyrirsjáanlega
framtíð.
Þau tvö stórvirki sem flokkurinn hefur haft forgöngu um í
því skyni að leggja traustan grundvöll að sjálfstæðu íslenzku efna-
hagslífi — nýsköpunin 1944—’47 og viðreisn atvinnulífsins úti
um land 1956—’58 — hafa í senn verið hagsmunamál alþýð-
unnar og meginatriði efnahagslegs og þar með pólitísks sjálfstæðis.
Þau miklu viðskiptasambönd sem flokkurinn hefur samtímis
komið á við ríki sósíalismans hafa og átt ríkan þátt í því að efla
efnahagslegt sjálfstæði þjóðarinnar, jafnframt því sem þau gerðu
kleift að tryggja atvinnu handa öllum og treysta þannig afkomu-
öryggi alþýðunnar.
Baráttan gegn imperíalismanum, sem sett hefur markt sitt á
síðustu tvo áratugi, verður einnig framvegis að vera aðalatriðið
í allri stefnu flokksins. Þar verður jöfnum höndum að vernda það
sem enn er óglatað og endurheimta það sem andstæðingum þjóð-
arinnar hefur tekizt að klófesta. Fullnaðarsigur þjóðarinnar í
baráttunni við imperíalismann er forsenda fyrir sigri sósíalismans
á Islandi.
En samtímis varnarbaráttunni gegn bandaríska imperíalisman-
um hefur flokkurinn unnið mikinn sigur, þegar honum tókst að
sameina þjóðina um þá stórfelldu sókn að stækka fiskveiðiland-
helgina í 12 mílur. Sá sigur vannst því aðeins að fulltrúi flokksins