Réttur - 01.01.1960, Blaðsíða 95
R É T T U R
95
Og stcttarleg afstaða innan auðvaldsþjóðfélagsins hefur heldur
ekki breytzt. Þrátt fyrir það hefur auðvaldsheimurinn tekið
miklum breytingum.
Ibúar jarðar eru nú (um það bil) helmingi fjölmennari en í
byrjun aldarinnar. Framleiðsluöflin hafa einnig aukizt verulega.
Gífurlegar framfarir hafa orðið í vísindum og tækni. Iðnaðar-
framleiðsla auðvaldsheimsins er nú nær fimmfalt meiri en hún
var í byrjun aldarinnar, matvælaframleiðsan hefir aukizt um
allt að 100% á þessu tímabili og unnt væri að framleiða 20—30
sinnum meira en um aldamót miðað við nútíma tækni, ef ekki
væru viðjar auðvaldsins. En þrátt fyrir þessar framfarir ríkir
enn hungur, eymd og kvíði fyrir komandi degi í auðvaldsheim-
inum. Forstjóri hjálparstofnunar Sameinuðu þjóðanna fyrir van-
þróuð lönd skýrir svo frá, að „af 82 löndum, sem eru meðlimir
hinna Sameinuðu þjóða, teljast 60 til vanþróaðra landa. I þess-
um 60 löndum bjuggu yfir einn milljarður manna árið 1957,
sem höfðu 120 dollara meðaltekjur á mann það ár samkvæmt
opinberum skýrslum". Það verða 33 cent á íbúa á dag. I raun-
inni hafa verkamenn aðeins um helming þessara tekna, en hinn
helmingurinn rennur í vasa landeigenda, okrara og innlendra og
erlendra atvinnurekenda.
Hinn gífurlegi mismunur á Jífskjörum í nýlenduveldunum
og vanþróuðu löndunum sést einnig á því, að meðalaldur manna
er 65 ár í hinum fyrrnefndu en um 33 ár í löndum eins og t. d.
Indlandi og Suður-Ameríkulöndunum.
En það eru ekki aðeins íbúar vanþróaðra landa, sem lifa við
sult og seyru. Samkvæmt opinberum skýrslum frá Bandaríkjun-
um — „paradís" auðvaldsheimsins — höfðu 3,1 miljónir fjöl-
skyldna og einstaklinga minna en 1000 dollara tekjur 1954, en
það verða tæpir 3 dollarar á fjölskyldu á dag. Þetta þýðir hung-
urtilveru fyrir viðkomandi fjölskyldur þegar tekið er tillit til
hinnar háu húsaleigu og opinberra álagna. Milljónir atvinnu-
leysingja, sem ekki fá neina atvinnuleysisstyrki, eru einnig dæmd-
ir til hungurtilveru og enginn veit með vissu um tölu þess fólks,
sem býr við skort í löndum eins og Italíu, (einkum suðurhluta
hennar), Spáni og fleiri löndum! Gera má ráð fyrir að í auð-