Réttur


Réttur - 01.01.1960, Page 57

Réttur - 01.01.1960, Page 57
R É T T U R 57 þegar ég flutti kveðju mína á þinginu og spurðist fyrir um það hvernig hann ætti að fara að því að læra íslenzku. Þingið var haldið í nýju og veglegu stórhýsi, sem hefur verið byggt sérstaklega til þess að halda í því hverskonar ráðstefnur og meiriháttar sýningar; er þar aðstaða öll hin ákjósanlegasta til slíkra starfa, m. a. unnt að þýða ræður manna jafnóðum á fimm önnur tungumál. Þingsalurinn tekur um 5.000 manns, og meðan þing kommúnistaflokksins stóð var hann oft troðfullur, en full- trúar á þinginu voru um 1000 talsins. Aðrir voru flokksmenn sem fylgdust með störfum þingsins, en einnig hafði sérstaklega verið boðið ýmsum þjóðkunnum mönnum sem ekki eru í komm- únistaflokknum en hafa unnið með honum; þarna var t. d. rit- höfundurinn frægi Carlo Levi, en bók hans Kristur nam staðar í Eboli kom út hjá Heimskringlu á síðasta ári. Eftir sjálfa þingsetninguna og kosningu nefnda flutti Togliatti, aðalleiðtogi ítalska kommúnistaflokksins, framsöguræðu sína. Togliatti er maður lágvaxinn og þrekvaxinn, kvikur og fjörlegur og lætur lítið á sjá þó hann sé orðinn 67 ára gamall og hafi mestan hluta ævi sinnar orðið að reyna mikið á sig andlega og líkam- lega, verið í útlegð, setið í fangelsi og verið í lífshættu eftir morðárásir. Hann flytur mál sitt stillilega og beitir lítt handa- hreyfingum, eins og Itala er þó háttur þegar þeir tala. Hann er sagður tala mjög fagurt ítalskt mál, og öll er framsetning hans einstaklega skýr og rökræn, og allt mál hans, eins þegar hann talar um nærtæk hagnýt viðfangsefni, er yljað af eldmóði hug- sjóna og stórbrotinna viðhorfa. Eg hygg að ég hafi ekki heyrt öllu áhrifameiri málflutning en ræður hans á þessu þingi, þótt ég yrði að fylgjast með þeim af þýðingum sem stundum voru gerðar af vanefnum, enda mun hin alþjóðlega verklýðshreyfing ekki eiga marga skarpvitrari, víðsýnni og raunsærri leiðtoga um þessar mundir en Palmiro Togliatti. Framsöguræða Togliattis tók rúma þrjá tíma. Þess er enginn kostur að rekja efni hennar í stuttu máli að neinu gagni, enda fjallaði meginhluti hennar um sérítölsk vandamál. En nokkra meginþætti ætla ég að minnast á. Meginforsendan í ræðu Togliattis og raunar helzta forsenda
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.