Réttur - 01.01.1960, Page 108
108
R É T T U R
verðskráningu neyzluvara, þrátt fyrir það að Bandaríkin eiga
geysimikinn gullforða.
Minnkandi kaupmáttur peninganna á þó ekki eingöngu rætur
sínar að rekja til verðbólgunnar, heldur er það einnig afleiðing
af starfsemi einokunarhringanna. I maí 1959 leit verðskráning í
Bandaríkjunum þannig út (1947 —1949 = 100):
Aluminium Stál Húsgögn Vefnaðarv. Leðurv. Matvæli
168 170 124 94 118 108
An efa hefur verðmæti aluminiums eða stáls (þ. e. sá vinnutími
sem nauðsynlegur er til framleiðslu vörunnar frá þjóðfélagsins
hálfu) minnkað mun meira en verðmæti húsgagna eða leðurvara.
Sú staðreynd, að þessar vörur hafa hækkað miklu meira í verði,
en aðrar vörur, sem ekki eru beinlínis á snærum einokunarhring-
anna sýnir ljóslega áhrifavald þeirra.
Aðalorsök verðbólgunnar er sú, að mun stærri hluti þjóðar-
teknanna, en auðvaldsþjóðfélagið þolir undir venjulegum kring-
umstæðum, hefur verið notaður til óarðbærra framkvæmda (nicht-
produktive Zwecke) á árum síðari heimsstyrjalarinnar og allt fram
til þessa.
Þýðir þetta þá, að auðvaldslöndin geti yfirleitt ekki tekið upp
„harðan gjaldmiðil"? Engan veginn. Flestum auðvaldslöndum
væri unnt að taka upp fast (stöðugt) gengi. En einokunarhringar
iðnaðarins kæra sig ekki um slíkt. Stöðug en hægfara hjöðnun
verðgildis peninganna skapar auðvaldinu mjög þægilega aðstöðu
í stéttabaráttunni. Verkamenn og fastir starfsmenn, sem búa við
stöðugt versnandi kjör vegna minnkandi kaupmáttar peninganna,
verða að berjast fyrir að fá kaup sitt hækkað. I augum margra
tekur kjarabaráttan þannig á sig ranga mynd, eins og verkalýður-
inn sé stöðugt „árásaraðilinn" en atvinnurekendur í varnarstöðu.
Jafnframt veltir auðvaldið sökinni á vaxandi dýrtíð yfir á verka-
lýðinn. Gengisfellingar lækka einnig skuldir, jafnframt því sem
verðlag hækkar í beinu hlutfalli við gengisfellinguna eða jafnvel
meira. Með tilliti til stöðugt hækkandi herðnaðarútgjalda og
almennrar stefnu einokunarhringanna er tæplega hægt að búast
við aukinni festu í efnahagsmálum eða stöðugu gengi.
6) Bankarnir og einokunarhringar iðnaðarins. Tengslin milli