Réttur - 01.08.1931, Page 48
160 PRINSINN FERDINAND [Rjettur
ur baki brotnu og framleiðir verðmæti, sem auðvaldið
hremmir jafnharðan, mun fylgja dæmi rússnesku
bændanna, berjast við hlið verkalýðsins og sigra undir
forustu Kommúnistaflokksins.
Brynjólfur Bjarnason.
Prinsinn Ferdinand.
eftir
Henri Barbusse.
Einu sinni var ungur konungssonur; hamingjan hló
við honum, því að — eins og ég' sagði — hann var ung-
ur. Og fríður var hann þar að auki, auðugur og fræg-
ur. Faðir hans, konungurinn, ávann sér með degi
hverjum aukið lof og frægðarorð fyrir það eitt, að
hann sat á veldisstóli.
Móðir hans, drottningin, sem helgaði sig alla skáld-
skapargerð sinni, hafði óbifanlega trú á því, að henni
væri snilldargáfa gefin. Lofgerðir hinna tignu lesenda
hennar og ritdómendanna, sem voru viðurkenndir
meistarar í sinni grein, styrktu hann í trú sinni. Prins-
inn ungi hafði ekki snefil af áhuga fyrir bókmenntum;
hann kaus heldur að lifa löstum sínum.
Með þessum hætti varðveitti hann á miklu skýlaus-
ara hátt erfðavenjur langfeðga sinna og veitti þar með
í raun og veru hinni tiginbornu móður sinni hævesk-
lega ofanígjöf.
Hversu oft hafa stjórnmálahneigðir ríkiserfingja
valdið hinum háu foreldrum bannsettum heilabrotum og
eins þessum ráðsmönnum og vikapiltum konungsætt-
anna, sem kallaðir eru stjórnarherrar og ráðgjafar.