Réttur - 01.08.1931, Síða 51
Rjettur] BYLTINGIN í LANDBÚNAÐI RÚSSA i(53
eftir fyrsta ofboðið, kveikti sér í vindli og hló fram í
nefið.
Honum var skemmt við ókvæðisorð mannsins, sem
engdist þarna í járnklóm lögreglumannanna.
En innan skamms fannst honum sér misboðið í rík-
iserfingjatign sinni af þeim beiska sannleik, sem
slöngvað var framan í hann af hamslausri bræði.
Hann tók út úr sér vindilinn og lagði glóandi end-
ann upp að andliti verkamannsins, sem lá þarna fjötr-
aður; — þetta gerði hann mjög hægt og að yfirlögðu
ráði, en lögreglumennirnir héldu manninum á meðan
af miklum dugnaði, þrátt fyrir kvalaöskur hans. Svo
gekk erfðaprinsinn hinn rólegasti heim í höll sína.
Prinsinn ungi hét Ferdinand. Það heitir hann enn
í dag. En nú er hann ekki lengur ungur og enginn
prins. Hann er konungur Rúmeníu.
... Eftir að saga þessi var færð í letur, fréttist
andlát Ferdinands af Hohenzollern, Rúmeníukonungs.
(Saga þessi er úr safni 25 smásagna eftir hið heimsfræga
franska skáld, Henri Barbusse. Allar þær sögur — að þessari
meðtaldri, — hafa sér það til ágætis að vera nákvæmlega sann-
ar — aðeins færðar í stíl af skáldinu).
Byltingin í landbúnaðinum
Rússneska.
Tíðindi þau sem nú eru að gerast austur í Rússlandi
hafa vakið óskipta athygli alls heimsins. 160 miljónir
manna — bændur og verkamenn, eru að framkvæma
gagngjörða breytingu á öllum sviðum mannlegs lífs.
Framkvæmd firnm ára áætlunarinnar, þetta volduga
11*