Réttur - 01.08.1931, Qupperneq 54
166
BYLTINGIN I LANDBÚNAÐI RÚSSA [Rjettur
stakling en í einstaklingsbúunum. í Norður-Kákasus er
ræktað land til dæmis 5,2 hektarar á mann í samyrkju-
búunum en aðeins 2,3 hektarar í einstaklingsbúunum.
Jafnframt eykst verðmæti afurðanna í samyrkjubúun-
unum. í Kuban nemur framleiðsluverðmæti hvers
verkamanns í samyrkjubúunum 625 rúblur á móts við
378 rúblur í einstaklingsbúum.
Þetta eru tölur sem tala. Hjer hefur samvinnuhug-
sjónin sigrað. Kenning Kommúnista um, að samvinnu-
stefnan geti ekki komist í framkvæmd fyr en auðValds-
þjóðskipulaginu hefur verið kollvarpað og eignarjettur
auðmannastjettarinnar verið afnuminn, hefur sannast
að vera rjett.
Til eru þrjár myndir samyrkjubúa. Einfaldasta
mynd þessarar samvinnu er sameiginleg ræktun lands-
ins, sameiginleg kaup á landbúnaðarvjelum og áburði.
Önnur mynd samyrkjubúanna er strax miklu víð-
tækari. Meðlimirnir afnema öll landamerki, vinnan er
sameiginleg, allar vjelar og skepnur eru afhentar sam-
yrkjubúinu. íbúðarhúsin og innanhússvinna, ávaxta-
garðar og eitthvað af nauðsynlegustu húsdýrum eru
þó áfram á höndum einstaklinganna. Þessi tegund
samyrkjubúanna er ennþá algengust.
Þriðja og fullkomnasta stig samyrkjubúanna er
»kommúnan«. öll vinna, lönd, vjelar, skepnur og hús
verða sameign. Aðeins hið persónulega líf, daglegt við-
urværi, uppeldi barnanna o. a. verður í höndum ein-
staklingsins eða fjölskyldunnar. Jafnframt miðar sam-
yrkjubúið að því, að gera einnig þessar síðustu leyfar
einstaklingsrekstursins fjelagslegar, með stofnun sam-
eiginlegra mötuneyta, barnaheimila o. s. frv.
Með byltingunni í landbúnaðinum rússneska, sem nú
fer fram svo hröðum skrefum, verða bændurnir beinir
þátttakendur í uppbyggingu hins sósialistiska skipu-