Réttur - 01.08.1931, Qupperneq 57
Rjettur] STEFNA KOMMONISTAFLOKKS ÍSLANDS 169
inn telja sig vera. Hann er ekki flokkur »bændastjett-
arinnar« sem heildar, hann berst ekki fyrir hagsmun-
um allra bænda á íslandi. Til eru þeir bændur á ís-
landi, sem hafa fylstu ástæðu til að taka aðvaranir
»Tímans« og »Morgunblaðsins« um ógnir og skelfing-
ar kommúnismans alvarlega. ótti þeirra við Kommún-
istaflokkinn er á fullum rökum byggður.
í upphafi stefnuskrár sinnar lýsir Kommúnistaflokk-
urinn því yfir, að hann sje flokkur verkalýðs og fá-
tækra bænda. Með »fátækum« bændum er eigi aðeins
átt við hina fátækustu, heldur einnig þá sem bjargálna
teljast, yfir höfuð alla þá bændur, sem lifa af hand-
afla sínum, 70—80% af allri bændastjett landsins í
mótsetningu við hinn fámenna hóp stórbænda og stór-
jarðeigenda.
Þessvegna mega hinir vinnandi bændur ekki taka
skoðanir stórbændanna um kommúnismann sem góða
og gilda vöru. Nú er það svo að »Tíminn« og íhalds-
blöðin eru málgögn hins fámenna hóps bænda, sem
hafa fullgildar ástæður til að óttast Kommúnistaflokk-
inn. Það gefur því að skilja, að það er ekki holt fyrir
smábændur að sækja fræðslu sína um kommúnismann
í »Framsóknarblöðin« eða íhaldsblöðin.
Allrar þekkingar um kommúnismann verða bændur að
afla sjer frá fyrstu heimildum. Jeg vil benda þeim á
Stefnuskrá Alþjóðasambands Kommúnista, sem að
nokkru hefir birtst í »Rjetti«, bókina »Hvað vill
Kommúnistaflokkur íslands« og »Baráttustefnuskrá
K. F. í.« Auk þess á ýmsar ritgerðir í fyrri árgöngum
»Rjettar«, bæði eftir ritstjórann, undirritaðan o. fl.
Loks má nefna ýmsar greinir í »Verklýðsblaðinu«.
Leiðir allra bænda á íslandi til velmegunar geta ekki
verið hinar sömu. Til eru þeir bændur, sem hafa öll
skilyrði til að auðgast í skjóli auðvaldsskipulagsins. En
gróði þeirra er fenginn á kostnað hinna vinnandi
bænda og landbúnaðarverkamanna. Velmegun og vax-