Réttur - 01.08.1931, Side 69
Rjettur] LANBBÚNAÐARKREPPAN 1 DANMÖRKU 181
vera talinn í skýrslum stjórnarinnar, og fær engan
styrk! Samkvæmt öðrum skýrslum stjórnarinnar eru
18000 unglingar heimilislausir flakkarar! Auk þess
hefir fjöldi verkamanna aðeins vinnu 3—5 daga vik-
unnar eða minna. I vor tókst kapítalistum með tilstyrk
»verkamannastjórnarinnar« að lækka laun verka-
manna um 6—8%. Kaupgeta verkalýðsins hefir því
minkað mjög mikið. 1 haust og sérstaklega í vetur er
búist við ógurlegu atvinnuleysi.
Smásöluverðið hefir ekki lækkað að neinum mun,
þrátt fyrir lækkun heildsöluverðsins. Húsaleiga, skatt-
ar og útsvör hafa ekki lækkað, heldur stigið. Hin sí-
lækkandi kaupgeta verkalýðsins kemur hart niður á
millistéttinni í borgunum. Smákaupmenn og smáhand-
verksmenn hafa ekki aukið tekjur sínar, þrátt fyrir
þann mikla mismun á heildsölu- og smásöluverði, bæði
vegna þess hvað kaupgetan hefir minkað mikið, og
vegna þess, að reksturskostnaðurinn er sá sami þrátt
fyrir minkun veltunnar. Hin síþverrandi utanríkis-
verslun hefir líka rýrt kaupgetu millistéttarinnar og
verkamanna. Verslunin við ísland hefir líka farið
minkandi. Minkandi kaupgeta borgarbúa kemur aftur
hart niður á bændum, því vörur þeirra, smjör, egg og
flesk o. s. frv. hefir alþýðan orðið að spara við sig.
í miðjum júní i sumar lækkaði verðið á dönskum
landbúnaðarafurðum sérstaklega ört. Borgarablöðin
sögðu þá, að verðið gæti ekki lækkað meir. En verð-
lækkunin hélt áfram og ekkert útlit er til að hún stöðv-
ist. i mörgum héruðum landsins er talið að 60—80%
bænda verði gjaldþrota. Það er því ekki að undra að
bændur séu farnir að örvænta um sinn hag.
Um þetta leyti fór að bera mjög mikið á félagsskap
þeim, sem kendur er við Randers á Jótlandi, þar sem
hann var fyrst stofnaður. Hreyfing þessi hefir á
skömmum tíma breiðst út yfir flestar sveitir landsins,
og nú er talið, að 100.000 bændur, skipulagðir eftir