Réttur - 01.08.1931, Side 80
192 BARÁTTA RÆNDA ERLENDIS [Rjettui'
neyða þá til að ljósta upp nöfnura þeirra, er fengið
höfðu þeim flugblöðin. En ekkert svar. Fasistarnir
misþyrmdu þeim svo, að einn þeirra, Bresowzek, dó af
meiðslunum. Þá söfnuðust þúsundir bænda um lík
hans er það var flutt heim. 0g kröfugangan varð svo
geigvænleg og hatri þrungin, að lögregla og fasistar
þorðu ekki að sýna sig þann dag. En daginn eftir varð
bardaginn því blóðugri — og þeirri baráttu verður
ekki lokið fyrr en ítalskir verkamenn og bændur reisa
sitt eigið ríki á rústum ofbeldisríkis fasistanna.
Bardagar í Jugoslavíu.
í Jugoslavíu ríkir hið mesta hervaldsalræði. í fjöl-
mörgum þorpum Serbíu hefur bændum og skatt-
heimtumönnum ríkisins lent saman í hörðum bardög-
um. Á einum stað rjeðst alt þorpið á fjölmenna lög-
reglusveit, sem ætlaði að framfylgja lögtaki á eignum
nokkurra smábænda, varð blóðugur bardagi og fjellu
6 lögreglumenn og 2 bændur.
Hjá »bölvuðum bolsjevikkunum«.
í Ráðstjórnarríkjunum var landbúnaðarframleiðslan
1929 og 1930 sem hjer segir:
1929
Kornuppskeran 71,7
Bómullaruppskeran 8,6
Rófuuppskeran 62,5
1930
87.4 milj. tonn
13.5 — tvívætta
151,7 — —
Ræktaða landið óx úr 118 miljónum hektara 1929
upp í 127,8 mlij. ha. 1930, en á 1931 að verða 143 milj.
ha. — og nær því.
Helmingur allra bænda — eða 13 miljónir bænda-
býla — eru gengin inn í samyrkjubú bændanna.