Morgunblaðið - 14.01.2007, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 14.01.2007, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. JANÚAR 2007 35 Aldrei fyrr hefur mig langaðtil að flytja til útlanda. Enþegar ég las um þá „blóð- mjólkun“ sem ég og aðrir launþeg- ar þessa lands sætum, ef marka má samanburðartölur við ná- grannalöndin, þá fylltist hjarta mitt allt í einu útþrá. Jafnvel flug- hræðslan vék fyrir þessari máttugu tilfinningu – út vil ek. Hingað til hef ég alltaf maldað í móinn þegar fólki hefur orðið tíð- rætt um ágæti útlandanna, t.d. Danmerkur. Ég hef hæversklega bent á að hér séu fá skordýr sem ástæða er til að hræðast, ekki þurfi fólk að óttast ofbeldi hér í sama mæli og erlendis – miklu færri eigi hér við fíkniefnavanda að stríða, vatnið sé gott og sumarnóttin ís- lenska sé engu lík. Það sé borgandi fyrir þessi lífsgæði. Hvað hefur svo gerst meðan ég hef sungið þennan söng – jú, geit- ungar hafa lagt undir sig landið, a.m.k. höfuðborgarsvæðið, venju- legt fólk þorir ekki niður í miðbæ að nóttu til, í flestum fjölskyldum er fíkniefnavandi (áfengi og dóp) illvígt böl – vatnið stendur að vísu fyrir sínu og sannarlega íslenska sumarnóttin, – en nú, þegar grýlu- kertin mynda sárbeittan múr við útidyr og glugga, þá er hún víðs- fjarri. Það sem er nálægt er um- rætt ástand sem fjölmiðlum verður æ tíðræddara um og svo hitt sem ekki er betra – hið ofurháa verð- lag. Ég veit ekki hvað heldur hér í „venjulegt“ fólk, líklega sama stór- furðulega þrjóskan og hélt forfeðr- unum hér þrælkuðum og fátækum undir nýlendukúgun Dana. En nú eru það önnur öfl sem hafa töglin og hagldirnar. Ég er farin að ótt- ast að ættjarðarástin og sum- arnóttin bjarta hafi ekki nógu sterkt aðdráttarafl til þess að mæta þeim upplýsingum sem nú rignir yfir landsmenn, – matarverð, húsnæði, lánakjör, raforka og meira að segja fiskur er samkvæmt birtum samanburðartöflum marg- falt dýrara hér en nokkurs staðar á byggðu bóli. Fyrirtækin græða mikið en stórir hópar launþega, t.d. þeir sem sinna umönnun, græða ekki – það sýnir fréttaumfjöllun. Enn aðrar fréttir benda til að fólk þurfi að borga það okurverði að vilja ástunda heiðarleika, dreng- skap og umburðarlyndi, jafnvel virðist í sjónmáli samfélag þar sem foreldrar þurfa að að undirbúa börn sín nánast með vígorðum frá barnæsku svo þau verði þannig starfsmenn sem hafa í sig og á. Það að vinna vel og trúlega sýnist oft duga skammt, hitt – að kunna að stinga menn í bakið, oftast í óeiginlegri merkingu þó, virðist á stundum mikilvægari eiginleiki. Skyldi vera að nálgast sú stund að Íslendingar harmi það helst að við skyldum ekki öll hafa verið flutt út á Jótlandsheiðar á sínum tíma? Þegar fólk sem ævinlega hefur ver- ið hallt undir allt það sem íslenskt er finnur slíka tilfinningu þá er eitthvað að. Mikil misskipting auðs hefur jafnan þótt ákjósanlegur jarðvegur fyrir byltingu. Nákvæm- lega hver formúlan að slíku er veit ég ekki - en ef svo heldur fram sem horfir gæti ýmislegt enn und- arlegra gerst en það sem þegar hefur átt sér stað í íslensku sam- félagi. Hvað er að gerast? Jótlands- heiðar – fyrirheitna landið! ÞJÓÐLÍFSÞANKAR Guðrún Guðlaugsdóttir Stangarhyl 5, sími 567 0765 Ítarlegar upplýsingar um eignirnar á www.motas.is Íbúðir fyrir fólk 50 ára og eldri, við Skipalón 22-26 á Hvaleyrarholti í Hafnarfirði og í Sóleyjarima 19-23, Grafarvogi. Báðir staðirnir skarta frábæru útsýni. Glæsilegar íbúðir fyrir 50 ára og eldri SkipalónSkipalón 22-26 á Hvaleyrarholti2ja, 3ja, 4ra og 5 herbergja íbúðir á frábærum stað til afhendingar í apríl 2007. • Gróið hverfi. • Frábært útsýni. • Ísskápur, kvörn í vaski og uppþvottavél fylgja. • Granít á borðum og sólbekkjum. • Innangengt úr bílageymslu í lyftur. Söluaðili: Sóleyjarimi 3ja og 4ra herbergja íbúðir á besta stað í Grafarvogi til afhendingar í október 2007. Sóleyjarimi Hvaleyrarholt Grafarvogur > Yfir 20 ára reynsla > Traustur byggingaraðili > Gerðu samanburð www.motas.is Sími 565 5522 | www.fasteignastofan.is Sími 533 4040 | www.kjoreign.is • Tvennar svalir, bæði út úr eldhúsi og stofu. Ótrúlegt útsýni. • Stórar stofur.Tvö baðherbergi, baðherbergi inn af hjónaherbergi. • Amerískur ísskápur, kvörn í vaski og uppþvottavél fylgja. • Granít á borðum og sólbekkjum. • Arinn og 2 stæði í bílageymslu með stærstu íbúðunum. • 80 m2 salur í sameign fylgir (afmæli og minniháttar tilefni). • Þvottastæði í bílageymslu. • Golfvöllur í göngufæri. Söluaðili: ÍS L E N S K A /S IA .I S /M O T 3 56 41 0 1/ 07 Sýningaríbúð www.valholl.is www.nybyggingar.is Opið virka daga frá kl. 9.00-17.00 Ingólfur G. Gissurarson, lögg. fast. Til sýnis í dag gullfalleg 89,1 fm íbúð ásamt 17,6 fm innb. bílskúr. Vandað, glæsilegt fjölbýli sem er klætt að utan með vandaðri klæðn- ingu og nær viðhaldsfrítt að utan. Parket. Glæsilegt útsýni. Stutt í skóla, framhaldsskóla og alla þjón- ustu. Bílskúr með vatni, hita og raf- magni. Verð 20,9 m. Allir velkomnir. Elísabet á bjöllu. Sími 588 4477 Lyngmóar 2 – Garðabæ Opið hús í dag kl. 14-16 120 HEKTARAR Í ÁSAHREPPI Til sölu afar grösugt land, með víðsýni til allra átta, í aðeins klukku- stundar fjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu. Ótakmarkaðir möguleikar fyrir hugmyndaríkt fólk. Tilboð óskast. Upplýsingar gefur Guðrún Hulda í síma 861 1032
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.