Morgunblaðið - 14.01.2007, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 14.01.2007, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. JANÚAR 2007 49 menning Launasjóður fræðiritahöfunda Rannís Rannsóknamiðstöð Íslands, Laugavegi 13, 101 Reykjavík, www.rannis.is Auglýsing um starfslaun Launasjóður fræðiritahöfunda auglýsir eftir umsóknum um starfslaun úr sjóðnum sem veitt verða frá 1. júní 2007. Rétt til að sækja úr Launasjóði fræðiritahöfunda hafa höfund- ar alþýðlegra fræðirita, handbóka, orðabóka og viðamikils upplýsingaefnis á íslensku. Meginhlutverk Launasjóðs fræðiritahöfunda er að auðvelda samningu bóka, og verka í stafrænu formi, til eflingar íslenskri menningu. Starfslaun eru veitt til hálfs árs, eins árs, til tveggja ára eða þriggja. Þeir sem hljóta starfslaun úr sjóðnum skulu ekki gegna föstu starfi meðan á starfslaunatímanum stendur. Starfslaun miðast við núgildandi kjarasamning félags háskólakennara. Umsóknarfrestur er 23. febrúar nk. Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð fást á Rannsóknamiðstöð Íslands, Rannís, að Laugavegi 13, sími 515-5800, eða á heimasíðu Rannís - www.rannis.is. Umsóknir sendist til: Launasjóður fræðiritahöfunda Rannís Laugavegi 13 101 Reykjavík Fyrsti konsert er frír SÍMI 545 2500 ::: WWW.SINFONIA.IS Sinfónía og fiðlukonsert FIMMTUDAGINN 18. JANÚAR KL. 19.30 Hljómsveitarstjóri ::: Petri Sakari Einleikari ::: Judith Ingólfsson rauð tónleikaröð í háskólabíói Wolfgang Amadeus Mozart ::: Fiðlukonsert nr. 5 Anton Bruckner ::: Sinfónía nr. 7 í boði FL Group og Sinfóníuhljómsveitarinnar Sinfónían fagnar komu góðra gesta til að flytja með hljómsveitinni hinn dramatíska fiðlukonsert Mozarts og þekktasta verk Bruckners. í Sunnusal Hótels Sögu kl. 18.00. Halldór Hauksson kynnir efnisskrá kvöldsins. Boðið verður upp á súpu og kaffi. Aðgangseyrir er 1.200 kr. tónleikakynning vinafélagsins Dagskráin í dag Á Sögusýningu Landsbankans er margt markvert að sjá og skoða, ekki aðeins úr bankasögunni heldur eru dregnar upp myndir úr þjóðlífi fyrri tíðar enda saga bankans og þjóðar- innar samtvinnuð á ýmsan hátt. Sögusýningin spannar 120 ára sögu bankans og þjóðarinnar og er skemmtileg upplifun fyrir alla fjölskylduna. Leiðsögn í boði kl. 14:00, 15:00 og 16:00 Eggert Þór Bernharðsson, sagnfræðingur, og Sveinbjörn Guðbjarnarson fara með hópa um sýninguna, deila sérfræðikunn- áttu sinni á sýningargripum og gefa aukna innsýn í sögu banka og þjóðar. Sögusýning Landsbankans Aðalstræti 6 (húsnæði TM) Sími: 410 4300 Opið virka daga kl. 11:00-17:00 og helgar kl. 13:00-17:00 Enginn aðgangseyrir ÍS L E N S K A S IA .I S L B I 35 53 4 01 /0 7 DANSINN dunar í sumum ljóðum, svitastorknir líkamar sveiflast og svo er umfram allt gleymska, óm- inni. Í lítilli ljóðabók, sem nefnist Ég halla mér að þér og flýg eftir Krist- ínu Bjarnadóttur, er okkur boðið í tangóferðalag til Buenos Aires, fæð- ingarhrepps tangósins. Hér áður fyrr seint á 19. öld tóku innflytjend- urnir frá Evrópu að dansa þennan dans eða forvera hans þarna suð- urfrá fyrir andalúsísk áhrif og áhrif af dönsum sem nefndust habanera og milonga. Í dansbúllunum og hóruhúsunum fæddist þessi alþýð- lega fótament blönduð karlbundinni hugmyndafræði Gaucho-menningar- innar í Argentínu. Ljóð Kristínar eru meira og minna lýsingar á dönsum sem ljóð- mælandi dansar við hitt og þetta fólk í Argentínu. En jafnframt mannlífs- myndir sterkar og vel skrifaðar. Stíllinn er knappur. Þannig er for- saga Argentínu skrifuð í þremur lín- um: Í Buenos Aries býr heimsins hvítasta fólk er mér sagt. Svartir sem ekki fórust í fremstu víglínu flúðu til Uruguay; indjánar út úr bænum og upp í fjöll … Nokkurn veginn þannig byrjaði saga þessarar þjóðar sem búið hefur við svo mikið ofbeldi og fasisma í gegnum tíðina. Kristín reynir, ekki ólíkt því sem Borges gerði á sínum tíma, að lýsa lífinu á strætunum, götuhornunum og danssölunum. En þetta er ferðalag inn í annan heim, aðra veröld sem bersýnilega hrífur ljóðmælandann. Dansinn er aðdrátt- araflið eins og mannlífið en ljóðsegj- andinn, sem augljóslega er kven- kyns, er framandi á þessum stað og það er alltaf viss fjarlægð milli kon- unnar og veruleikans í kringum hana. Hún með sína norrænu sýn skilur ekki alltaf ryþmann og dans- sporin, hvað þá hugarfarið. Þegar danskennarinn, Fernando, segir að hún megi ekki hugsa í dansinum, hann eigi að koma af sjálfu sér, veltir hún því fyrir sér og spyr hvað sé hægt að hugsa sér ef ekki á að hugsa neitt. „Fernando svarar: Ekki neitt og það er víst erfitt fyrir evrópskar konur.“ Innst inni eru ljóðin þó ekki síst innra ferðalag um litríkan tilfinn- ingaskala, gleði og sorg við undirleik bandonéon. Þótt kvæðin í þessari bók séu meitluð er dálítið flug í henni og leik- ur en kannski umfram allt viðleitni til að leita í algleymi dansins. Ég halla mér að þér og flýg. Dansinn dunar BÆKUR Ljóð Ég halla mér að þér og flýg – Engin venju- leg ferðasaga eftir Kristínu Bjarnadóttur. Eigin útgáfa 2006 – 50 bls. Skafti Þ. Halldórsson Ferðalag „Innst inni eru ljóðin þó ekki síst innra ferðalag um litríkan til- finningaskala, gleði og sorg við undirleik bandonéon,“ segir í dómi. AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is, sími 569 1111
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.