Morgunblaðið - 21.01.2007, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. JANÚAR 2007 59
menning
ÞAÐ hlýtur aldeilis að hafa virkað
spennandi á forráðamenn Þjóðleik-
hússins þegar sænskur leik-
húsmaður dúkkar þar upp með
leikrit (eða allavega hugmynd eða
drög) þar sem raunverulegir at-
burðir og aðstæður í íslensku sam-
félagi mynda bakgrunn djúp-
stæðrar samfélagsgagnrýni um
siðaklemmur sem eru að byrja að
þrengja að nútíma tæknisamfélagi,
sem aukinheldur stýrist að miklu
leyti af stjórnlausri auðhyggju.
Ekki veit ég hversu langt Jacob
Hirdwall var genginn með þegar
ákveðið var að setja það á svið.
Eins er ekki ljóst hversu stór hlut-
ur hans er í því handriti sem liggur
sýningunni til grundvallar því leik-
stjóri og dramatúrg sýningarinnar
eru skrifaðir fyrir „leikgerð“ á
verkinu.
Hitt er jafnskýrt að einhvers
staðar á leiðinni fór eitthvað alvar-
lega út af sporinu.
Undirstaða verksins er ágætis
upplegg í vondan „þriller“, eða jafn-
vel sæmilega tveggja þátta seríu í
sjónvarpi. Maður nokkur kemst
undir læknishendur og kveðst vera
150 ára gamall. Rannsóknir leiða í
ljós að í erfðamengi hans eru frávik
sem koma í veg fyrir þá hrörnun
sem orsakar elli í venjulegu fólki.
Hvað á að gera við þennan fróð-
leik? Að því gefnu (og verkið gefur
sér það) að hægt sé að þýða þessa
þekkingu yfir í lyf sem veitir öðrum
sömu gæði, hver á að njóta þess og
er það þess virði? Sjálfur virðist
hinn langlífi ekkert sérlega ánægð-
ur með hlutskipti sitt og hefur
mögulega verið að reyna að binda
enda á það á sérlega hálfkákslegan
hátt. Hann tjáir sig gjarnan í
óhemjuvondum kveðskap, en er að
öðru leyti eiginlega ekki persóna,
meira svona höfundartæknileg
brella til að koma hreyfingu á
„plottið“. Enda heitir hann Aion (ei-
lífð), svona ef einhvern áhorfanda
færi að gruna að hann væri ekki
fyrst og fremst tákn.
En eins og í öllum sæmilegum
sjónvarpsseríum er líka persónuleg
hlið á siðaklemmunni. Það er hún
Tekla, sem verður ástkona vísinda-
mannsins og heldur því leyndu fyrir
honum að hún er með alvarlegan
erfðasjúkdóm sem fljótlega mun
draga hana til dauða. Tilkoma
Aions og vonin um töfralyfið virðist
gefa henni von, þó erfitt sé að sjá
hvernig lyf við öldrun sé sjálfkrafa
líka lyf við Huntingtons-sjúkdómn-
um. En hvað veit ég? Þegar útlit er
fyrir að hagsmunir elskendanna
fari ekki saman grípur hún til ör-
þrifaráða. Inn í allt saman blandast
síðan illyrmislegur svissneskur
lyfjaframleiðandi með ógnvænlegar
hugmyndir sem benda til að hann
hafi hrifist mjög á unglingsárum
þegar hann las Brave New World,
en hætt í miðri bók.
Þetta er ekki gott leikrit. Fyrir
utan klisjurnar sem einkenna það
þá hefur það því miður ekkert
merkilegt fram að færa um þær
stóru siðferðisspurningar sem virð-
ast vera kveikjan að því. Fram-
vindan er bæði hæg og bláþráðótt,
stíllinn er hvorki hverdagsraunsær
né rismikill heldur fyrst og fremst
flatur, ósannfærandi sem talmál og
óáhugaverður sem skáldskapur.
Fyrirlestur um Huntingtons-
-sjúkdóminn skar sig nokkuð úr,
var vel unninn og tengdi hið fræði-
lega og persónulega á þann hátt
sem hefði þurft að einkenna allt
verkið. Það var ekki nóg.
Fyrir vikið er varla nema von að
leikurunum gangi allbrösuglega að
blása lífi í persónur sínar. Það var
kannski helst líkamstjáning Sól-
veigar Arnarsdóttur sem gladdi,
svo og túlkun hennar á fyrr-
nefndum fyrirlestri. Já, og kóm-
ískur „vísindanörd“ Baldurs
Trausta Hreinssonar. Um annað er
varla neitt áhugavert að segja.
Meira og minna skammlaust en
frekar tilgangslítið.
Sýningin er lipurlega sviðsett og
flæðir vel hjá Maríu Ellingssen í
þénugri leikmynd Snorra Freys.
Lýsing og niturbasagrafík Björns
Bergsteins Guðmundssonar og Gi-
deons Kiers var smart og truflaði
ekki neitt þó hún hefði misst áhrifa-
mátt sinn eftir fyrstu senu. Tónlist
Ólafs Björns Ólafssonar lítt eft-
irminnileg, en alls ekki til ama.
Hvað hefur leikhúsið fram að
færa í umræðu um erfið, flókin og
brýn úrlausnarefni samfélagsins?
Hvað gerir það betur en aðrir miðl-
ar? Jú, það sýnir fólk í návígi tak-
ast á við siðferðisspursmál og af-
leiðingar þess sem ákvarðanir
þeirra og annarra hafa í för með
sér. Enginn vafi leikur á að þeim
Jacobi, Maríu og Grétu Maríu þótti
þau vera með merkilegt viðfangs-
efni. En þeim lánaðist ekki að finna
í því kjarnann, fundu ekki söguna
sem varpaði gagnlegu ljósi á það,
fundu ekki orðin sem persónurnar
þurftu til að miðla líðan sinni, höfðu
kannski einfaldlega ekkert spenn-
andi um málið að segja.
Þetta hefði einhver átt að sjá í
tíma, stýra verkefninu í farsælli átt,
spyrja frjórra spurninga, og mögu-
lega taka verkið af dagskrá ef svör-
in voru ekki nógu góð.
Eitt er víst. Ef ungt, íslenskt
leikskáld með takmarkað orðspor
hefði sent Þjóðleikhúsinu það hand-
rit að Sælueyjunni sem liggur til
grundvallar sýningunni þá hefði
það uppskorið stuttan fund með
leiklistarráðunaut hússins, kaffi-
bolla, hvetjandi orð og kurteislegt
nei.
Vonandi.
Að lifa lengi og lifa vel
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið
Höfundur: Jacob Hirdwall, leikgerð Gréta
María Bergsdóttir og María Ellingsen,
leikstjóri: María Ellingsen, dramatúrg:
Gréta María Bergsdóttir, leikmynd og
búningar: Snorri Freyr Hilmarsson, tón-
list: Ólafur Björn Ólafsson, ljósa- og
myndbandshönnun: Björn Bergsteinn
Guðmundsson og Gideon Kiers. Leik-
endur: Anna Kristín Arngrímsdóttir, Atli
Rafn Sigurðarson, Baldur Trausti Hreins-
son, Elma Lísa Gunnarsdóttir, Hjálmar
Hjálmarsson, Kristján Franklín Magnús,
Sólveig Arnarsdóttir og Þórunn Erna
Clausen. Þjóðleikhúsið 19. janúar 2007.
Sælueyjan
Stórar spurningar „Fyrir utan klisjurnar sem einkenna [leikritið] þá hefur það því miður ekkert merkilegt fram
að færa um þær stóru siðferðisspurningar sem virðast vera kveikjan að því.“
Þorgeir Tryggvason
Mexíkóskaleikkonan
og þokkagyðjan
Salma Hayek
væri ef til vill ekki
lengur meðal vor
ef ekki væri fyrir
hundinn hennar,
sem heitir Diva.
Tveimur tímum
fyrir Golden Globe-verðlaunaafhend-
inguna sl. mánudag ákvað Salma að
fá sér blund á heimili sínu í Kali-
forníu. Það sem hún vissi ekki var að
það var gasleki í húsinu.
„Ég var með höfuðverk og hafði
lagt mig þegar Diva vakti mig með
því að grípa með munninum í ermina
mína og reyna þannig að draga mig
út úr húsinu. Þá fyrst gerði ég mér
grein fyrir hvað var að gerast.“
Salma hrósaði Divu og sagði að ef
ekki væri fyrir hana hefði hún ekki
komist á verðlaunaafhendinguna þar
sem þátturinn Ugly Betty, sem hún
leikur í, fékk tvenn verðlaun.
Og meira afhundum því
söngkonan Pink
er í sárum eftir að
Elvis dó – þ.e.
hundurinn henn-
ar. Pink kom að
Elvis þar sem
hann flaut í sund-
lauginni hennar
og reyndi að lífga
hann við, en án árangurs. Hundurinn
hafði oft synt í lauginni.
Það var dóttir hins eina sanna Elv-
is, Lisa Marie, sem gaf Pink Elvis.
Vinur Pink sagði við The Sun:
„Fyrir Pink var Elvis eins og barn.
Hún er miður sín.“
Fólk folk@mbl.is