Morgunblaðið - 21.01.2007, Blaðsíða 62
62 SUNNUDAGUR 21. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
fólk
Kalvin & Hobbes
MAMMA! ÞAÐ
KOM STÓR HUNDUR
OG REIF HOBBES
AF MÉR!
ÉG REYNDI AÐ NÁ HONUM
EN ÉG GAT ÞAÐ EKKI... OG
NÚNA ER ÉG BÚINN AÐ TÝNA
BESTA VINI MÍNUM
KALVIN, EF ÞÚ VÆRIR EKKI
AÐ DRÖSLA HONUM MEÐ
ÞÉR ÚT UM ALLT ÞÁ VÆRI
HANN EKKI TÝNDUR
ÞAÐ SKIPTIR EKKI MÁLI HVAÐ
MANNI LÍÐUR ILLA... FÓLKI
TEKST ALLTAF AÐ BÆTA
SAMVISKUBITI OFAN Á ALLT
SVO MANNI LÍÐI ENNÞÁ VERR
Kalvin & Hobbes
AUMINGJA HOBBES?
HVAR ÆTLI HANN SÉ?
HVAÐ HEFUR KOMIÐ FYRIR
HANN?
HVAÐ HEF ÉG
GERT TIL ÞESS AÐ
VERÐSKULDA ÞETTA
HVAÐ SEM ÞAÐ
ER ÞÁ ÞYKIR MÉR
ÞAÐ LEITT!
Kalvin & Hobbes
ÉG ER BÚINN AÐ TÝNA
TÍGRISDÝRINU MÍNU,
HONUM HOBBES...
KANNSKI ÆTTIR ÞÚ AÐ
LÝSA HONUM
HANN ER Í FEIMNARI
KANTINUM OG MEÐ
FREKAR SKRÍTINN
HÚMOR... EN ER SAMT
GÓÐUR VINUR Ó!
ÞÚ ÆTTIR KANNSKI
FREKAR AÐ LÝSA
HONUM Í ÚTLITI
Litli Svalur
HRAÐAR! OG Í TAKT,
REYKTU BREKKUSNIGLARNIR
YKKAR!
ÉG VIL AÐ ÞIÐ STAFLIÐ ÞESSUM LÓÐUM HINUM MEGINN VIÐ VÖLLINN.
ÞETTA ER GÓÐ BYRJUN TIL AÐ RÆKTA VÖÐVANA
PPPFF! ÞETTA ER SVO
SVAKALEGA ÞUNGT KENNARI
PFFF... SVAKALEGA ÞUNGT...
KRAFTLAUSU STRÚTAR...
JÆJA GAMLINGI! ÁTTU ERFITT
MEÐ AÐ VAKNA?!
FINNDU VÖÐVANA
SEM VIÐ RÆKTUÐUM!
ALLT ÞÉR AÐ ÞAKKA
ÞÚ ÆTTIR AÐ HREYFA ÞIG MEIRA, ANNARS
FÆRÐU LIÐAGIGT
OG VÖÐVARNIR
RÝRNA
ÚPS! HANN
BROTNAÐI Í
ÞÚSUND MOLA
EKKERT MÁL!
ÉG SKAL LAGA
HANN
NEI! EKKI BERJA
MIG! NEI! ZZZ
ÞESSI KYNSLÓÐ...
ZZZ... LETINGJ...
ZZZ... AR...ZZZZ
ÖÖÖ... LEGGIST STRAX NIÐUR!
NÚ ER HVÍLDARTÍMI!!
?
? ? ?
Lesblindusetrið er til húsa íKjarnanum, Mosfellsbæog býður upp á lesblindu-meðferð með svokallaðri
Davis-aðferð. Einnig eru hjá Les-
blindusetrinu haldin hraðlestr-
arnámskeið fyrir börn.
Kolbeinn Sigurjónsson er Davis-
ráðgjafi: „Davis-námskeiðin eru ætl-
uð bæði börnum og fullorðnum sem
glíma við lesblindu eða tengda náms-
örðugleika, en fólk á aldrinum 6 til 65
ára hefur leitað til Lesblinduseturs-
ins til meðferðar,“ segir Kolbeinn.
Davis-aðferðin, eða Davis-
leiðrétting, er kennd við Ron Davis
sem þróaði þjálfunarkerfi til að
hjálpa fólki að ná tökum á lesblindu.
Upphaf aðferðanna má rekja aftur til
1980 en hún barst fyrst hingað til
lands árið 2003: „Áður en meðferð
hefst fer fram ítarlegt viðtal þar sem
lagt er mat á hvort og hvernig þjálf-
unin getur nýst þeim sem leitar að-
stoðar,“ segir Kolbeinn. „Um er að
ræða nokkuð umfangsmikið nám-
skeið sem spannar heila viku þar
sem nemandinn er einn með leið-
beinanda og í stöðugri þjálfun allan
daginn.“
Kolbeinn segir best mega lýsa
Davis-aðferðinni þannig að hún
byggist á styrkleikum nemendanna
frekar en veikleikum: „Þjálfunin
liggur því oft vel fyrir nemendum og
læra þeir meira fyrir vikið á
skemmri tíma,“ segir Kolbeinn.
„Lesblindu fylgja iðulega hæfileikar
eins og gott ímyndunarafl og rík
sköpunargáfa, enda finna lesblindir
sig oft vel í verklegum greinum. Dav-
is-leiðrétting byggist á þessari stað-
reynd og er leirinn helsta verkfærið
á námskeiðinu, en með því að notast
ekki við blað og blýant má segja að
eitt stærsta vandamálið sé tekið úr
myndinni. Byrjað er á að fást við erf-
iðleika tengda einbeitingu, og síðan
unnið í gegnum grunntáknin; bók-
stafi og greinarmerki. Loks er ráðist
að orðunum sjálfum.“
Kolbeinn leiðbeinir einnig á hrað-
lestarnámskeiði fyrir 9–15 ára
krakka, en þau námskeið gagnast
bæði börnum sem hafa farið í gegn-
um Davis-meðferð sem og þeim
börnum sem eiga ekki við lestr-
arvandamál að stríða: „Margir sækja
hraðlestrarnámskeið á meðan þeir
eru í framhalds- eða háskóla, en fáir
gera sér grein fyrir að börn geta
auðveldlega tileinkað sér hrað-
lestur,“ segir Kolbeinn. „Raunar eru
börn svo móttækileg að þau eru oft-
ast mun fljótari en fullorðnir að ná
tökum á hraðlestri, og ná yfirleitt
betri árangri en fullorðnir.“
Þess má geta að Lesblindusetrið
kennir hluta af námskeiðinu Aftur í
nám sem nýtur mikilla vinsælda hjá
Mími símenntun. Þar er boðið upp á
Davis-leiðréttingu sem hluta af nám-
skeiðinu, auk íslenskukennslu og
þjálfunar í tölvunotkun.
Þá má vekja athygli á að 22. febr-
úar næstkomandi flytur Kolbeinn er-
indi um Davis-aðferðina á fundi for-
eldrafélaga grunnskólanna á
Akureyri.
Nánari upplýsingar má finna á
slóðinni www.lesblindusetrid.is og
með tölvupósti á netfangið kolbeinn-
@lesblindusetrid.is.
Menntun | Lesblindusetrið býður upp á Dav-
is-leiðréttingu fyrir fólk á öllum aldri
Lestrarörðugleik-
ar og hraðlestur
Kolbeinn Sig-
urjónsson fædd-
ist í Reykjavík
1972. Hann lauk
stúdentsprófi frá
Fjölbrautaskól-
anum í Breiðholti
1992 og útskrif-
aðist sem kerf-
isfræðingur frá
Tölvuháskóla Verslunarskóla Ís-
lands 1995. Kolbeinn starfaði sem
kerfisfræðingur, m.a. hjá Tölvun.
Hann hefur starfað sem Davis-
leiðbeinandi frá árinu 2004. Kol-
beinn er kvæntur Guðlaugu Arn-
ardóttur snyrtifræðingi og eiga þau
fjögur börn.
ÞAÐ VAR mikil stemning í hátíð-
arsal Menntaskólans við Hamrahlíð
á föstudaginn þegar þýski rafdúett-
inn Booka Shade leit þar við í heim-
sókn í hádeginu. Meðlimir sveit-
arinnar, Walter Merziger og Arno
Kammermeier, njóta sívaxandi vin-
sælda, í heimalandinu sem víðar, og
er koma þeirra til Íslands tvímæla-
laust hvalreki á fjörur „teknóhausa“
landsins. Þeir voru í miklum ham á
föstudaginn og náðu greinilega að
hrífa menntskælingana í Hamrahlíð
með sér.
Morgunblaðið/ÞÖK
Booka Shade í MH