Morgunblaðið - 10.06.2007, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. JÚNÍ 2007 55
GUÐFINNA S. Bjarnadóttir,
stjórnunarfræðingur, nýbakaður
þingmaður Sjálfstæðisflokks, aug-
lýsti eftir skilgreiningu á umræðu-
stjórnmálum/
samráðsstjórnmálum í
viðtali eftir kvöld-
fréttir útvarps á Rás 1
í gær (22. maí) og
sagðist ekki skilja
þessi fyrirbæri.
Í stuttri grein sem
ber heitið Þrjú hundr-
uð þúsund pistlahöf-
undar? og birt er í
greinasafninu Skárri
veröld sem út kom á
síðasta ári, er fjallað
um þjóðfélagsumræðu
hérlendis og ákvarð-
anir ríkisvalds í ljósi
þróunar til beins lýð-
ræðis. Í greininni er
m.a. að finna eftirfar-
andi klausu:
„Lítið lýðræðisríki
eins og Ísland hefur
vaxandi þörf fyrir
bestu fáanlegu ákvörð-
un úr ferli þjóðfélags-
umræðu. Enginn einn
eða fáir ná yfirsýn yfir
allt. Aðferð umræðu og samráðs
sækir heldur meir til stjórnlistar en
stjórnvísinda um árangur því leitast
er við að laða til leiks bestu starfs-
krafta, hugmyndir og starfshætti.
Aðferðin réttnefnd umræðu- og sam-
ráðsstjórnmál; stjórnlist sveigj-
anleika sem hliðrar markvisst og
skipulega þyngdarpunkti (áhrifa)
valds í einstökum málum nær beinu
lýðræði á kostnað fulltrúalýðræð-
isins, einkum þegar mikið liggur við,
án þess að ábyrgð á ákvörðunum
fylgi sjálfkrafa með. Hún hvílir sem
fyrr á kjörnum fulltrúum.“
Ástæður þróunar frá fulltrúa-
lýðræði til beins lýðræðis (og löngu
er hafin um Vesturlönd,
hvort sem líkar betur
eða verr) eru margar og
samtvinnaðar og jafn-
framt um margt for-
sendur áframhaldandi
þróunar; m.a. auðveld,
útbreidd og í vaxandi
mæli gagnvirk upplýs-
ingatækni, stóraukinn
vilji almennings til þátt-
töku í opinberri um-
ræðu til aukinna áhrifa
á landsmál/staðbundin
málefni, sem og stór-
aukinn vilji/skylda kjör-
inna fulltrúa að taka
lýðræðislegt tillit til
ólíkra sjónarmiða/
grenndarsjónarmiða.
Einn helsti aflvakinn þó
e.t.v. stóraukið flækju-
stig nútímastjórnmála,
sem veldur aukinni þörf
fyrir upplýsta jákvæða
þjóðfélagsumræðu, ekki
síður en aukinni þörf
fyrir sérfræðiþekkingu.
Opinber umræða utan lögvarins
vettvangs alþingis, sem og „sérfræð-
ingaveldið“ öðlast með þessu aukið
áhrifavald um ákvarðanir, sem og
stöðu best sambærilega þrýstihóps,
sem mikilvægir hornsteinar upp-
lýstrar vandaðrar ákvarðanatöku um
landsmál/utanríkismál. En – og ber
að undirstrika, án framsals ákvörð-
unarvalds kjörinna fulltrúa, svo
formleg stjórnskipan er óbreytt, uns
ákvæði sem henni breyta hafa verið
samþykkt inn í stjórnarskrá og/eða
inn í löggjöf frá alþingi, t.d. um þjóð-
aratkvæði.
Þróuninni fylgja óhjákvæmilega
aukin áhrif fjórða valds fjölmiðlanna,
ekki síst varðandi forskot þeirra og
meðferð þess við framsetningu prí-
vatskoðana ritstjórna/eigenda í þjóð-
félagsumræðu, sem og verðmætara
ákvörðunarvald stærstu og/eða vin-
sælustu fjölmiðla um umgjörð þjóð-
félagsumræðu.
Með von og ósk um að Guðfinna sé
nokkru nær.
Umræðu- og
samráðsstjórnmál
Jónas Gunnar Einarsson
skrifar um stjórnmál
Jónas Gunnar
Einarsson
» Aðferð um-ræðu og
samráðs sækir
heldur meir til
stjórnlistar en
stjórnvísinda
um árangur...
Höfundur er rithöfundur.
JARÐIR - LANDSPILDUR - SUMARHÚS
YFIR 100 BÚJARÐIR OG LANDSPILDUR
OG UM 60 SUMARHÚS Á SÖLUSKRÁ FM
Sjá nánar á www.fmeignir.is
www.fasteignamidstodin.is
57.900.000
Glæsilegt fimm til sex herbergja endaraðhús á einni hæð, um 200 fm, þar af 28 fm. bíl-
skúr og 20 fm. óskráður, lokaður sólskáli. Glæsilegur garður og sólpallur með heitum
potti er sunnan við húsið, húsið hefur verið talsvert endurnýjað.
Sigurður og Elísabet taka á móti gestum
Háaleitisbraut 53 - 108 Rvk
530 1800
Opið hús í dag kl. 14:00 - 15:00
Karl Gunnarsson lögg. fasteignasali
F A S T E I G N A S A L A
SUÐURLANDSBRAUT 10, 2. HÆÐ F. OFAN BLÓMASTOFU FRIÐFINNS, 108 REYKJAVÍK
SÍMI 533 1616 FAX 533 1617
Björt og rúmgóð 108 fm,
3ja herbergja íbúð á 5.
hæð í vinsælli lyftublokk.
HÚSVÖRÐUR. Rúmgott
hol, stofa með útgangi á
stórar, yfirbyggðar svalir,
stórt eldhús, 2 herbergi
og flísalagt baðherbergi.
Parket og flísar á gólfum.
Sameiginlegt þvottahús á
hæðinni. Merkt sérbílastæði á steyptri botnplötu fyrir bíla-
geymsluhús. Verð 24,5 millj.
BJALLA 5-G
OPIÐ HÚS Í DAG KL. 14-15
ORRAHÓLAR 7 – 5. HÆÐ