Morgunblaðið - 10.06.2007, Page 77

Morgunblaðið - 10.06.2007, Page 77
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. JÚNÍ 2007 77 hlutavelta ritstjorn@mbl.is Félagsstarf Bólstaðarhlíð 43 | Ferð að Skógum fimmtudaginn 21. júní kl. 12.30. Geng- ið um staðinn og safnið skoðað. Kaffi- hlaðborð í Drangshlíð undir Eyjafjöll- um. Uppl. og skráning í síma 535 2760. Dalbraut 18-20 | Vorgleði í félags- miðstöðinni að Dalbraut 18-20 sunnu- daginn 10. júní kl. 13-16. Flóamarkaður, handverkssýning, tónlist, kveðskapur og leiklestur. Kaffi og vöfflur. Allir vel- komnir. Félag eldri borgara í Kópavogi | Skrifstofan Gullsmára 9 er opin mánudaga og miðvikudaga kl. 10- 11.30. S. 554 1226. Skrifstofa FEBK í Gjábakka er opin á miðvikudögum kl. 13-14. Félagsvist er spiluð í Gullsmára á mánudögum kl. 20.30, en í Gjá- bakka á miðvikudögum kl. 13 og á föstudögum kl. 20.30. Félag eldri borgara, Reykjavík | Dansleikur sunnudagskvöld kl. 20. Klassík leikur fyrir dansi. Félagsstarf eldri borgara í Mosfells- bæ | Eldri konur í Mosfellsbæ og nær- sveitum. Tökum þátt í Kvennahlaup- inu sem verður frá Hlaðhömrum fimmtudaginn 14. júní kl. 14. Hlaupið/ gangan miðast við getu hverrar konu. Skráning er kr. 1.000, innif. er bolur og verðlaunapeningur. Sími 586 8014 og 692 0814. Félagsstarf Gerðubergs | Dagana 12. og 13. júní kl. 13.30 „Mannrækt, trjá- rækt“ gróðursetning, samstarf leik- skólabarna og eldri borgara. Mið- vikud. 13. júní: Kvennahlaup ÍSÍ. Frá kl. 12.30 upphitun, umsj. Þorvaldur Jónss. harmonikuleikari og Sigvaldi danskennari. Kl. 13 ræsir Þorsteinn Hjartarson hlaupið. Furugerði 1, félagsstarf | Norðurbrún 1, Dalbraut 14-20, Hæðargarður 31 og Furugerði 1. Farið verður í nestisferð að Strandarkirkju, fimmtudaginn 14. júní, með viðkomu í Eden á heimleið. Skráning í Norðurbrún í s. 568-6960, á Dalbraut í s. 588 9533, í Furugerði í s. 553 6040 og í Hæðargarði í s. 568 3132. Hraunbær 105 | 13. júní. Ferð til Siglu- fjarðar. Síldarminjasafnið skoðað, einnig Siglufjarðarkirkja. Hádegis- verður í Bíókaffi. Leiðsögumaður: Hólmfríður Gísladóttir. Verð kr. 7.000. Brottför kl. 8.30 frá Hraunbæ. Skrán- ing á skrifstofu eða í síma 587 2888. Hæðargarður 31 | Allir velkomnir. Morgunganga alla morgna kl. 9. Gönguferðir í stað leikfiminnar. Pútt- völlur opnaður bráðlega. Félagsvist á mánudögum. Ferð í Strandarkirkju 14. júní. S. 568 3132, asdis.skuladott- ir@reykjavik.is. Kirkjustarf Fríkirkjan Kefas | Grillveisla kl. 17. Al- menn samkoma kl. 20. Hreimur H. Garðarsson prédikar. Mikil lofgjörð, fyrirbænir í lok samkomu og kaffisala að henni lokinni. Allir velkomnir. Fríkirjan Kefas. Hlutavelta | Þessi vaski hópur safnaði dóti og hélt basar við verslun 10- 11 í Kaupangi á Akureyri. Þau afhentu Rauða krossinum ágóðann, 1.043 kr. Efri röð frá vinstri: Unnur, Viktor, Sara og Guðný Vala. Neðri röð frá vinstri: Sóldís, Þórunn, Kristín og Sunna. dagbók Í dag er sunnudagur 10. júní, 161. dagur ársins 2007 Orð dagsins: Lækna mig Drottinn, að ég megi heill verða; hjálpa mér, svo að mér verði hjálpað, því að þú ert minn lofstír. (Jer. 17, 14.) Mannleg hlið læknisfræð-innar í hátækniheimi eryfirskrift norræna heim-ilislæknaþingsins sem fram fer í Reykjavík dagana 13. til 16. júní næstkomandi. Elínborg Bárðardóttir er formaður Félags íslenskra heimilislækna: „Ráð- stefnan er haldin á tveggja ára fresti og ferðast á milli Íslands, Noregs, Svíþjóð- ar, Danmerkur og Finnlands. Að þessu sinni er ráðstefnan með alþjóðlegra yf- irbragði en áður, ráðstefnumálið er enska og fáum við til okkar gesti frá 19 löndum, en hátt í 1.300 manns hafa skráð þátttöku og er það metfjöldi,“ segir Elínborg. Mannlegi þátturinn „Á dagskrá eru yfir 200 viðburðir af ýmsum toga, fyrirlestrar, málþing og vinnustofur, en eins og yfirskrift ráð- stefnunnar gefur til kynna verður sjón- um sérstaklega beint að mannlegum þætti heimilislækninga,“ segir Elín- borg. „Meðal fyrirlesara má nefna Richard Horton, ritstjóra hins virta læknarits Lancet. Hann hefur skrifað mikið um læknisfræði í samfélagslegu samhengi og verður mjög fróðlegt að hlýða á hans framlag. John Salinsky er einnig í hópi heiðursfyrirlesara ráð- stefnunnar en hann er þekktur frum- kvöðull í rannsóknum á tengslum lækn- is og sjúklings. John segir í erindi sínu frá eigin reynslu á 33 ára læknisferli og samskiptum við sjúklinga sína.“ Hvert stefnum við? Elínborg nefnir að auki fyrirlestur Ionu Heath frá Bretlandi og Önnu Stavdal og Steinars Westin frá Noregi, sem gott dæmi um inntak ráðstefn- unnar. „Erindi þeirra ber yfirskriftina Social Solidarity or Commercial Prof- its. Þar fjalla þau um á hvaða hugsjón- um við viljum byggja heilbrigðiskerfið: hvort sé fýsilegur kostur að fylgja skandinavíska módelinu þar sem heilsu- gæsla er hluti af velferðarkerfinu, eða hvort annars konar fyrirkomulag heil- brigðisþjónustu geti reynst betur.“ Finna má nánari upplýsingar um dagskrá þingsins á slóðinni www.meet- ingiceland.com/gp2007. Heilsa | Alþjóðleg ráðstefna heimilislækna í Reykjavík 13. til 16. júní Lækning, tækni, maður  Elínborg Bárð- ardóttir fæddist í Vestmannaeyjum 1960. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð 1981, kandídats- námi frá lækna- deild HÍ 1988 og stundaði framhaldsnám í heimilis- lækningum í Connecticut í Bandaríkj- unum. Elínborg hefur starfað sem heimilislæknir á Íslandi frá 1997, fyrst á Ísafirði og síðar í Reykjavík. Hún hefur verið formaður Félags íslenskra heimilislækna frá 2003. Elínborg er gift Ólafi Þ. Guðnasyni öldrunarlækni og eiga þau þrjá syni Tónlist Íþróttahúsið í Reykjahlíð | Kóra- stefna við Mývatn. Hátíðartón- leikar kl. 15. Messa barnanna eftir John Rutter og heimstónlist frá sjö löndum. Þátttökukórar á Kórastefnu, einsöngvarar, Sinfón- íuhljómsveit Norðurlands. Stjórn- endur: Lynnel Joy Jenkins og Guðmundur Óli Gunnarsson. Fyrirlestrar og fundir Kennaraháskóli Íslands | Mánu- daginn 11. júní kl. 13 verður opinn fyrirlestur í Bratta, sal Kennara- háskóla Íslands. Jude Carroll, deildarstjóri við Oxford Brookes University, heldur fyrirlestur sem hún nefnir: Student plagiarism: defining, detecting and dealing with the issue in 2007. Allir vel- komnir. SJÓRIÐA er titill ljós- myndasýningar sem var opnuð á kaffihús- inu Kaffi Vín, Lauga- vegi 73, á sjómanna- daginn, 3. júní. Ljósmyndirnar tók Sigrún Harpa Jóseps- dóttir í sinni fyrstu ferð sem háseti á togara, Ásbirni RE 50, og er titill sýningarinnar vís- un í mikla sjóriðu sem hrjáði listamanninn eft- ir að í land var komið. Myndefnið er lífið um borð, myndir af veiðunum, aflanum og öðru því tengdu séð með listrænu auga Sig- rúnar, sem einnig er þekkt undir nafninu núrgiS. NúrgiS er áhuga- ljósmyndari, menntuð í hönnun, margmiðlun og klassískum söng. Hún hefur nám við tónlistardeild Listaháskóla Íslands á nýmiðlabraut næst- komandi haust. Sýningin er opin út júní, á afgreiðslutíma kaffihússins. Ljósmyndasýningin Sjóriða í Kaffi Vín Listrænar myndir frá sjóferð Ljósmynd/núrgiS Inniheldur 22 valin bætiefni, 12 vítamín og 10 steinefni. FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ birtir til kynningar um afmæli, brúðkaup, ætt- armót og fleira lesend- um sínum að kostnaðar- lausu. Tilkynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudags- og mánu- dagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælis- tilkynningum og/ eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Hægt er að hringja í síma 569-1100. STJÓRN sjálfseignarstofnunarinnar Skaftholts afhenti Þórunni Sveinbjarnardóttur umhverfisráðherra, Björgvini Sigurðssyni við- skiptaráðherra og Arnbjörgu Sveinsdóttur, formanni þingflokks Sjálfstæðisflokksins, fundarályktun stjórnar Skaftholts vegna fyr- irhugaðra virkjana við Þjórsá. Í ályktuninni segir: „Í Skaftholti hefur verið unnið meðferðarstarf í 27 ár. Mikil upp- bygging hefur átt sér stað. Einstaklingar sem búa í Skaftholti þurfa friðsælt umhverfi og mikilvægur þáttur í meðferðarstarfinu er róandi nærvera Þjórsár og hennar stórbrotna náttúra sem við megum ekki missa. Fyrirhugaðar virkjanaframkvæmdir, svo og vega- og brúargerð yfir Þjórsá við Þjórsárholt, munu stórskemma það frábæra umhverfi sem er hér í næsta nágrenni okkar. Við teljum það nauðsynlegt fyrir starfið í Skaftholti að ekki verði af þessari virkjun, svo að þeir sem hér búa fái áfram að njóta þeirr- ar friðsældar og þess fagra og óspillta umhverfis sem hér er. Skaft- holt er lítið samfélag á landsbyggðinni sem býður upp á fjölbreytt og skemmtileg störf. Landsbyggðin þarf á fjölbreytni í atvinnulífi að halda og fyrirtækjum sem vaxa og dafna í fallegu og rólegu um- hverfi. Við skorum á ykkur að leyfa þessari starfsemi að fá að vera í friði. Með þökk frá núverandi og komandi íbúum og aðstandendum Skaftholts. Stjórn Sjálfseignarstofnunarinnar Skaftholts, Aldís Hjaltadóttir Guðjón Árnason Halldór Kr. Júlíusson Ragnheiður Haraldsdóttir Sigfús Guðfinnsson.“ Stjórn Skaftholts leggst gegn virkjunum í Þjórsá AÐALFUNDUR háskólaráðs Háskólans í Reykjavík var hald- inn föstudaginn 1. júní sl. Á hon- um kom meðal annars fram að á næstu mánuðum hefjast fram- kvæmdir við nýtt húsnæði Há- skólans í Reykjavík við rætur Öskjuhlíðar. Ráðgert er að skól- inn hefji starfsemi þar í 35.000 fermetra húsnæði haustið 2009. Af því tilefni var opnuð tölvu- og ljósmyndasýning á föstudag, sem ætlað er að sýna hvernig framtíðarhúsnæði HR kemur til með að líta út og hvernig því er ætlað að falla inn í náttúrulegt umhverfi sitt. Vilhjálmur Þ. Vil- hjálmsson borgarstjóri opnaði sýninguna á lóð Háskólans í Reykjavík í Ofanleiti. Hún verð- ur síðar flutt niður í Nauthóls- vík, þar sem almenningi gefst kostur á að skoða sýninguna í allt sumar. Nemendur Háskólans í Reykjavík verða um 3.000 í haust, og hefur þeim fjölgað ná- lega tífalt frá því hann tók til starfa árið 1998. Gert er ráð fyrir enn frekari fjölgun nem- enda á næstu árum og að nem- endur verði um 3.500 þegar skólinn flytur starfsemi sína haustið 2009. Framkvæmdir HR í Öskjuhlíð hefjast senn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.