Morgunblaðið - 15.12.2007, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
STARFSMENN Grasagarðsins í
Laugardal hafa búið garðinn undir
jólin. Gangandi vegfarendur geta
notið Garðskálans sem er prýddur
skrauti og ljósum og Lystihússins
þar sem jatan stendur að kaþólsk-
um sið. Úti er skreytt sitkagrenitré.
Garðurinn nýtur vinsælda hjá
leikskólabörnum á aðventunni.
Þegar veður er ekki vont koma
börn af leikskólum og njóta stund-
arinnar bæði fyrir og eftir hádegi
Veitingar eru ekki seldar yfir
vetrartímann en Garðskálinn er op-
inn alla helgidaga yfir jól og ára-
mót milli klukkan 10-17 nema á að-
fangadag jóla. Fastagestir hittast
gjarnan í Garðskálanum með kaffi
á brúsa og brauð í poka.
Grasagarðurinn
Í DAG kl. 11 opnar Dagur B. Egg-
ertsson borgarstjóri jólaskóginn í
Hjalladal í Heiðmörk og heggur
jólatré með fjölskyldu sinni. Varð-
eldur, kakó og jólasveinar verða á
staðnum og eru allir velkomnir.
Jólaskógurinn verður opinn
þessa og næstu helgi frá kl. 11 til
16. Ekið er inn í Heiðmörk frá
Rauðhólum af Suðurlandsvegi eða
Vífilstaðahlíð í Garðabæ. Skilti
munu vísa leiðina.
Jólaskógurinn
opnar í dag
BANDALAG háskólamanna hvetur
ráðamenn til að eyða þeirri óvissu
sem ríkir um staðsetningu starfs-
fólks matvælasviðs Umhverf-
isstofnunar og matvælaeftirlitssvið
Fiskistofu við opnun Matvælaeft-
irlits nú um áramótin. Bandalagið
styður jafnframt eindregna ósk
starfsmanna stofnananna þess efnis
að störf þeirra verði áfram á höf-
uðborgarsvæðinu en ekki á Selfossi
þar sem aðalstöðvar Matvælaeft-
irlitsins verða. Fyrir þessu séu hag-
nýt, fagleg og persónuleg rök eins
og komi skýrt fram í bréfi starfs-
fólks til landbúnaðarráðherra. Þá
þykir miður að ekki hafi verið haft
betra samráð við starfsfólk við und-
irbúning og skipulagningu hinnar
nýju stofnunar.
Vilja ekki flytja
STÚFUR var
veðurtepptur í
gær og komst
ekki í Þjóðminja-
safnið. Stúfur er
heldur lágur til
hnésins og
reyndist honum
um megn að berj-
ast áfram í
óveðrinu, segir í
tilkynningu.
Stúfur stefnir
að því að koma
með bróður sín-
um Þvörusleiki í Þjóðminjasafnið í
dag, laugardag, í staðinn og er von
á þeim í dag klukkan 11 – ef veður
leyfir.
Áður fyrr var Stúfur líka kall-
aður Pönnuskefill, því hann reyndi
stundum að hnupla matarögnum af
steikarpönnunni, og Þvörusleikir
stalst til að sleikja þvöruna, sem
potturinn var skafinn með. Í Þjóð-
minjasafninu geta börnin líka
fræðst um nöfn jólasveinanna á
sýningunni Sérkenni sveinanna.
Stúfur veður-
tepptur í gær
STUTT
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
FL GROUP mun á næstu misserum
leggja meiri áherslu á fjárfestingar í
óskráðum fyrirtækjum en á hluthafa-
fundi félagsins í gær sagði nýráðinn
forstjóri þess, Jón Sigurðsson, að FL
Group hefði brennt sig illa á stórum
stöðutökum í skráðum félögum. Unn-
ið yrði að því að minnka markaðs-
áhættu með fjárfestingum í óskráðum
eignum.
Um helmingur eignasafns FL Gro-
up, miðað við markaðsvirði, liggur í
Glitni banka og Tryggingamiðstöð-
inni. Fjórðungur eignasafnsins er í
skráðum félögum, innlendum sem er-
lendum og annar fjórðungur í óskráð-
um eignum. Stór hluti síðastnefnda
þáttarins kemur til vegna nýaf-
greiddra kaupa FL Group á hlutum
Baugs Group, og dótturfélaga Baugs,
í nokkrum fasteignafélögum. Félögin
sem um ræðir eru Landic Property,
Fasteignafélag Íslands, Þyrping og
Eikarhald.
Fjárhagsstaðan bætt
Samþykkt var á fundinum að veita
stjórn félagsins heimild til að hækka
hlutafé þess um allt að 3.659.265.291
kr. að nafnverði með útgáfu nýrra
hluta á genginu 14,7 til að efna kaup-
samninginn við Baug Group, en mið-
að við þetta gengi er virði hins nýja
hlutafjár tæpir 54 milljarðar króna. Í
gær hófst útboð á hluta þessa nýja
hlutafjár til fagfjárfesta, en ætlað er
að selja til þeirra hluti fyrir 10-15
milljarða að markaðsvirði. Þá er gert
ráð fyrir forgangsréttarútboði til
hluthafa að fjárhæð allt að þremur
milljörðum króna fyrir lok fyrsta árs-
fjórðungs 2008.
Í greinargerð stjórnar með tillög-
unni segir að með viðskiptunum sé fé-
lagið að styrkja enn frekar eignasafn
sitt og séu kaupin liður í stefnu félags-
ins að auka vægi óskráðra eigna í
starfseminni. Kom fram í máli Jóns
að vegna lækkana á gengi skráðra fé-
laga, sem FL Group á, eða átti, hlut í,
hafi fjárhagsstaða félagsins verið orð-
in slík að nauðsynlegt hafi verið að
grípa til aðgerða.
Ný stjórn kjörin
Einn möguleikinn hefði verið að
selja eignir til að bæta stöðuna en
slíkar aðgerðir hefðu ekki verið félag-
inu hagfelldar. Að vísu hafi ákveðnar
stöður verið losaðar, t.d. eign FL Gro-
up í bandaríska flugfélaginu AMR.
Almennt hafi þó stjórn og stjórnend-
ur félagsins talið heppilegra að fara
þá leið sem ákveðin var með kaup-
unum á fasteignafélögunum, sem áð-
ur greinir.
Meðal annarra aðgerða til að bæta
fjárhagsstöðu félagsins nefndi Jón að
stefnt væri að lækkun rekstrarkostn-
aðar FL Group um 30-35% á næsta
ári, og næðist það markmið meðal
annars með því að loka skrifstofu fé-
lagins í Kaupmannahöfn og flytja
starfsemi sem þar hefur farið fram til
skrifstofu félagsins í Lundúnum.
Þá var á fundinum kjörin ný stjórn
FL Group, en sjálfkjörið var í stjórn-
ina. Nýja stjórn skipa þau Gunnar S.
Sigurðsson, Hannes Smárason, Jón
Ásgeir Jóhannesson, Kristín Edwald,
Pálmi Haraldsson, Þórður Már Jó-
hannesson og Þorsteinn M. Jónsson.
Varamenn eru Peter Mollerup og
Smári S. Sigurðsson.
FL Group leggi meiri
áherslu á óskráðar eignir
Forstjóri FL Group segist munu minnka rekstrarkostnað um 30-35% á næsta ári
Markaðsáhætta Jón Sigurðsson sagði að félagið hefði brennt sig illa á stórum stöðutökum í skráðum félögum.
Í HNOTSKURN
» FL Group á rætur sínar aðrekja til flugfélagsins Flug-
leiða, en tók upp núverandi nafn
hinn 10. mars 2005.
» Aðskilnaður FL Group ogIcelandair Group varð svo að
veruleika 16. október 2006, en
fjárfestingarhlutur félagsins
fylgdi þá FL Group, en flug-
rekstur Icelandair.
» Hannes Smárason var ráð-inn forstjóri FL Group í októ-
ber 2005, en hafði áður starfað
sem stjórnarformaður þess og
þar áður sem stjórnarmaður.
Morgunblaðið/Ómar