Morgunblaðið - 15.12.2007, Blaðsíða 28
Morgunblaðið/Kristján
Höfuðból Nýr eigandi Grundar hyggst efla búskapinn.
LJÓSABORG, félag í eigu Guðjóns Sigfússon-
ar verkfræðings á Selfossi, hefur keypt hið
forna höfuðból Grund í Eyjafirði. Þar verður
áfram rekið myndarlegt mjólkurbú að sögn
nýja eigandans, og hann kveðst hafa ýmsar
hugmyndir varðandi búskap þar í framtíðinni.
Um er ræða jarðirnar Grund I og Grund II.
Með í kaupunum fylgja öll hús, vélar, tæki, bú-
stofn og mjólkurframleiðsluréttur, en Grund-
arkirkja fylgir ekki með. Guðjón hefur þegar
ráðið bústjóra og aðstoðarmann og taka þeir
við búinu strax. Á Grund eru um 90 kýr og
framleiðslurétturinn um 370 þúsund lítrar.
„Frændi minn býr rétt hjá, á Hrafnagili. Hann
er með rúmlega 900 þúsund lítra framleiðslu-
rétt og það verður ákveðin samvinna á milli
okkar. Til samans eru búin nokkuð stór,“ sagði
Guðjón í samtali við Morgunblaðið í gær.
Fyrirtækið Ljósaborg á og rekur fasteignir
en Grund er fyrsta býlið sem það eignast.
Landið sem félagið keypti er alls um 300 hekt-
arar. Guðjón segist líta á kaupin sem góða fjár-
festingu en hann hafi mikinn áhuga á að efla
búskapinn. „Svæðið er mjög vaxandi og spenn-
andi tímar framundan á ýmsan hátt. Margar
nýjungar eru mögulegar; þess vegna keypti ég
jörðina. Fyrsta skrefið er að styrkja búskap-
inn og renna frekari stoðum undir hann. Svo
látum við verkin bara tala.“
Grund er á meðal kunnustu höfuðbóla hér á
landi. Þar bjuggu m.a. Sturlungar á 13. öld og
Sighvatur Sturluson fór frá Grund til Örlygs-
staðabardaga. Magnús Sigurðsson, bóndi og
verslunarmaður, kom að Grund árið 1874 og
keypti smám saman alla jörðina. Dóttir hans
er Aðalsteina Magnúsdóttir, fædd 1925 og
uppalin á Grund. Hún bjó þar lengi og hefur
átt jörðina þar til nú.
„Spennandi tímar framundan“
Guðjón Sigfússon, verkfræðingur á Selfossi, hefur keypt jörðina Grund
28 LAUGARDAGUR 15. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
SEX verkalýðsfélög í Eyjafirði af-
hentu í gær Mæðrastyrksnefnd Ak-
ureyrar styrk að upphæð 1,1 milljón
króna. Jóna Berta Jónsdóttir veitti
styrknum viðtöku fyrir hönd
Mæðrastyrksnefndarinnar en fyrsti
úthlutunardagur hennar er í dag.
Í ávarpi við athöfnina lýsti Björn
Snæbjörnsson, formaður Einingar-
Iðju, yfir þakklæti fyrir hönd félag-
anna sex fyrir það mikla og góða
starf sem unnið væri í nefndinni.
„Það er mikil gæfa að eiga að þær
konur sem í Mæðrastyrksnefndinni
starfa og eru tilbúnar að leggja
mikla vinnu af mörkum til þess að
rétta hjálparhönd þeim sem á þurfa
að halda til þess að geta búið sér og
sínum gleðilega jólahátíð. Það er
sárt til þess að hugsa að leggja þurfi
til háar upphæðir til að mæta þörfum
þessara einstaklinga,“ sagði Björn.
Mikill stuðningur
Í dag, laugardag, er fyrsti dagur
úthlutunar hjá Mæðrastyrksnefnd
Akureyrar sem nú er til húsa í
Íþróttahöllinni, gengið inn að vestan.
Jóna Berta sagði að mikið hefði verið
að gera hjá nefndarmönnum undan-
farið því þörfin væri mikil, of mikil
eins og oft áður. „Það eru mjög
margir sem vilja leggja okkur lið nú
fyrir jólin, fleiri en oft áður og ég vil
þakka öllum fyrir þann góða stuðn-
ing sem við höfum fengið. Við gætum
ekki gert þetta ef þið og aðrir á
svæðinu hefðuð ekki sýnt slíkan
samhug í verki,“ sagði Jóna Berta og
vakti athygli á því að nefndin aðstoð-
aði fólk um allan Eyjafjörð og starf-
aði allan ársins hring. Úthlutað verð-
ur 15. til 20. desember frá kl. 10 til
18, „en þó svo að við auglýsum
ákveðinn tíma til umsókna vegna að-
stoðar fyrir jólin munum við ekki
neita fólki sem á aðstoð þarf að halda
og hefur samband við okkur eftir
þann tíma. Ábendingar eru einnig
vel þegnar ef fólk veit um einhvern
sem þarf aðstoð en af einhverjum
ástæðum getur ekki óskað eftir
henni,“ segir Jóna Berta. Á mynd-
inni er hún ásamt fulltrúm fé-
lagannna sem gáfu nefndinni féð.
Gáfu Mæðra-
styrksnefnd
eina milljón
NÝTT húsnæði á þremur hæðum
var í gær formlega tekið í notkun í
Suðurálmu Sjúkrahússins á Ak-
ureyri, á ársfundi stofnunarinnar.
Í álmunni verður m.a. barna- og
unglingageðdeild, sjúkraþjálfun,
iðjuþjálfun, sjúkraflutningaskól-
inn, móttaka fyrir sykursjúka,
skrifstofur sjúkrahússins og kap-
ella, en hún var einmitt vígð í gær.
Þrettán ár eru síðan hafist var
handa við byggingu þessarar nýju
álmu en það var þáverandi heil-
brigðis- og tryggingamálaráð-
herra Sighvatur Björgvinsson sem
tók fyrstu skóflustunguna í júlí
1994 en alls hafa fimm heilbrigð-
isráðherrar sinnt því embætti síð-
an framkvæmdir hófust þar til nú
að verkinu er lokið.
Neðsta hæðin var tekin í notkun
í lok árs 2005 en hinar tvær á
þessu ári. „Ljóst er að þessar fram-
kvæmdir hafa tekið allt of langan
tíma, eða rúm 13 ár. Í því er engin
skynsemi og engin hagkvæmni,“
sagði Halldór Jónsson, forstjóri
Sjúkrahússins, á fundinum í gær.
„Við höfum lengi beðið eftir bættri
aðstöðu og þetta hús breytir miklu.
Bætt aðstaða, betra vinnuumhverfi
og betri tækjabúnaður, gefur okk-
ur möguleika til að auka og bæta
þjónustuna. Það hefur sannanlega
verið að gerast hér hjá okkur.“
Langþráður draumur rættist í
gær þegar kapella var tekin í notk-
un á sjúkrahúsinu. „Sá draumur á
sér langa sögu,“ sagði Halldór við
vígslu hennar í gærmorgun.
„Margir hafa óskað þess að slík að-
staða væri á sjúkrahúsinu og
margir hafa lagt þessu ómetanlegt
lið og stuðlað að því að í dag getum
við vígt kapellu. Með tilkomu Suð-
urálmunnar og endurskipulagn-
ingu á nýtingu þess húsnæðis varð
samkomulag um að þetta húsnæði
hér hentaði vel fyrir kapellu.
Trúarleg þjónusta er mik-
ilvægur þáttur í heildrænni
umönnun hvers manns. Þannig er
komið til móts við andlegar og
trúarlegar þarfir, auk hinna lík-
amlegu. Kapellan verður aðgengi-
leg sjúklingum, aðstandendum og
starfsfólki í erli dagsins, auk þess
sem hún gefur fallega umgjörð um
helgihaldið. Kapellan er fallega
búin munum sem félög og ein-
staklingar hafa gefið. Munar þar
mest um gjöf Rebekkustúkunnar
nr. 2 Auðar IOOF á Akureyri,“
sagði Halldór.
Í kapellunni eru einnig eldri
munir sem áður voru notaðir í
kennslustofu á 2. hæð en hún var
notuð sem kapella við helgihald og
skírnir. Allir munirnir eru unnir af
lista- og hagleiksfólki á Akureyri
og í nágrenni. Stór hluti nýju mun-
anna er unninn úr eik sem upp-
haflega var ætluð til skipasmíða.
Á ársfundinum í gær voru heiðr-
aðir átta starfsmenn FSA sem látið
hafa af störfum vegna aldurs frá
síðasta aðalfundi í maí 2006. Allt
eru það konur, með samanlagt um
það bil 250 ára starfsreynslu á
stofnuninni! Þær eru: Amalía Jóns-
dóttir, starfsmaður í Seli, Auður
Ólafsdóttir sjúkraliði, Halla Lilja
Jónsdóttir, starfsmaður á sauma-
stofu, Heba Ásgrímsdóttir ljós-
móðir, Hildur M. Egilsdóttir,
starfsmaður í eldhúsi, Inga S.
Magnúsdóttir ljósmóðir, Val-
gerður Franklín forstöðulífeinda-
fræðingur og Vilborg G. Þórð-
ardóttir hjúkrunarfræðingur.
Suðurálman formlega tekin í
notkun og nýja kapellan vígð
Þrettán ár eru síðan ráðherra tók fyrstu skóflustungan að byggingunni
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Kvaddar með virktum Sex af átta starfsmönnum sem heiðraðir voru sátu ársfundinn í gær. Frá vinstri: Halldór Jónsson forstjóri, Vilborg Guðrún Þórð-
ardóttir, Valgerður Franklín, Inga Magnúsdóttir, Heba Ásgrímsdóttir, Auður Ólafsdóttir, Amalía Jónsdóttir og Bjarni Jónasson starfsmannastjóri.
Nærri 250 ára starfsreynsla
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Góð aðstaða Í nýju kapellunni. Frá vinstri: Séra Guðrún Eggertsdóttir
sjúkrahúsprestur, Valgerður Valgarðsdóttir djákni og séra Jón Aðalsteinn
Baldvinsson, vígslubiskup á Hólum, sem vígði kapelluna í gærmorgun.
JÓLASÖNGVAR
Kórs Akureyrar-
kirkju verða á
morgun, sunnu-
dag, kl. 17 og 20 í
kirkjunni. Á efn-
isskránni er
Messe de minuit,
messa byggð á
jólalögum eftir
franska barokk-
tónskáldið Marc-
Antoine Charpentier. Einsöngvarar
eru Helena Guðlaug Bjarnadóttir,
Elvý G. Hreinsdóttir, Sigrún Arna
Arngrímsdóttir, Michael Jón Clarke
og Haraldur Hauksson. Sigrún
Magna Þórsteinsdóttir leikur á orgel
og stjórnandi er Eyþór Ingi Jónsson.
Auk þess að hlýða á kórinn gefst
kirkjugestum kostur á að æfa jóla-
sálmana fyrir jólin því auk kórsöngs
og einsöngs verður mikill almennur
safnaðarsöngur. Jólasöngvarnir hafa
notið mikilla vinsælda á undanförn-
um árum og eru kirkjugestir hvattir
til að mæta tímanlega. Aðgangur er
ókeypis og eru allir velkomnir.
Jólasöngvar
Kórs Akur-
eyrarkirkju
Eyþór Ingi
Jónsson
♦♦♦